Leita í fréttum mbl.is

Tékkar ekki til í evru

styrmirŢetta er áhugaverđ ábending hjá Evrópuvaktinni. Tékkar eru mjög fegnir yfir ţví ađ vera ekki međ evru og ţurfa ekki ađ taka ţátt í ţeim darrađadans sem evruađild fylgir.

Međ orđum Styrmis Gunnarssonar á Evrópuvaktinni:

Á sama tíma og Árni Páll Árnason, nýkjörinn formađur Samfylkingarinnar bođar evrutrú, sem aldrei fyrr og telur ađ betra sé fyrir íslenzkt launafólk ađ fá launalćkkun í evrum en búa viđ sveiflur íslenzku krónunnar eru Tékkar allt annarrar skođunar og búa ţó í kjarna Evrópu međ söguleg tengsl viđ helztu evruríkin, svo sem Ţýzkaland og Austurríki.

Á heimasíđu forseta Íslands má finna eftirfarandi upplýsingar um samtal Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta, viđ nýjan sendiherra Tékklands, sem kom til ađ afhenda trúnađarbréf sitt sl. ţriđjudag:

„Ţá var fjallađ um ađild Tékklands ađ Evrópusambandinu og ţá breiđu samstöđu sem ríkir í landinu milli allra stjórnmálaflokka, stjórnvalda og atvinnulífs um ađ ţađ ţjóni ekki hagsmunum Tékklands ađ taka upp evru sem gjaldmiđil. Landiđ mun hafa sína eigin mynt á nćstu árum og í nýafstöđnum forsetakosningum kom fram sá almenni vilji ađ evru-ađild yrđi ekki á dagskrá fyrr en í fyrsta lagi eftir áriđ 2017.“

Ţetta er ţeim mun athyglisverđara vegna ţess ađ samkvćmt fréttum blađa í Evrópu voru báđir frambjóđendur í seinni umferđ forsetakosninganna í Tékklandi fyrir skömmu miklir stuđningsmenn aukins samstarfs Evrópusambandsríkjanna. sem fráfarandi forseti hefur ađ hluta til veriđ gagnrýninn á. En ljóst er af ţeim upplýsingum, sem fram koma á heimasíđu forseta, ađ evruađild hefur veriđ mjög til umrćđu í kosningabaráttunni vegna forsetakosninganna og ţar hafa orđiđ til ţćr meginlínur, sem nýr sendiherra Tékklands hefur bersýnilega upplýst forseta Íslands um.

Kannski er tilefni til ađ Árni Páll takist á hendur ferđ til Prag til ţess ađ kynna sér viđhorf Tékka til evrunnar og grafast fyrir um hvers vegna ţeir hafa svo mikla fyrirvara á ađ taka upp evru?

Og ţá vćri ekki úr vegi ađ formađur Samfylkingarinnar leggi lykkju á leiđ sína og komi viđ í Madrid og rćđi ţar viđ verkalýđsleiđtoga á Spáni um stöđu spćnskra launţega. Hugsanlega ćtti hann líka ađ fara til Aţenu og kynna sér afleiđingar ţess fyrir launafólk í Grikklandi ađ fá stöđugt fćrri evrur í launaumslagiđ?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 129
  • Sl. sólarhring: 264
  • Sl. viku: 1043
  • Frá upphafi: 1118760

Annađ

  • Innlit í dag: 118
  • Innlit sl. viku: 939
  • Gestir í dag: 117
  • IP-tölur í dag: 117

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband