Leita í fréttum mbl.is

Hvernig Íslandi verður komið inn í ESB þótt Íslendingar vilji vera fyrir utan

Umsóknin að ESB og aðlögunarferlið gerir það að verkum að það er hægt að koma Íslandi inn í Evrópusambandið þótt Íslendingar vilji alla jafna vera fyrir utan það. Það þarf bara að bíða nógu lengi og finna þann eina tímapunkt sem mögulegt getur verið að ná fram meirihlutavilja - svona líkt og sænska ríkisstjórnin gerði til að koma Svíum inn í ESB.

Atli Harðarson, heimspekingur og skólameistari, skrifar athyglisverða grein sem birt er í Morgunblaðinu í dag. Greinin ber heitið Hvernig er hægt að komast í Evrópusambandið þótt flestir vilji vera fyrir utan það?

Þar segir Atli í upphafi:

„Í augum þeirra sem standa að umsókn Íslands um inngöngu Evrópusambandið kann andstaða við aðild að sýnast vandamál. Almennt er gert ráð fyrir að á einhverju stigi verði þjóðaratkvæðagreiðsla og það kann að virðast erfitt að koma málinu í gegn ef flestir eru á móti. Þetta vandamál er þó alls ekki eins stórt og virðast kann. Ef réttum aðferðum er beitt er hægt að komast inn þótt fylgi við það sé nær öllum stundum vel innan við helming.
En hverjar eru þessar réttu aðferðir?“

Stuttu síðar segir Atli:

„Þetta síðara, að umsóknin geti staðið opin í ótiltekinn tíma, virðist næstum í höfn. Samt þarf áfram að passa að enginn geti knúið á um að málið verði klárað og þannig eyðilagt allt saman. Það er ágætt að láta við og við í veðri vaka að það sé verið að opna einhverja kafla eða kíkja í einhverja pakka eða semja um eitthvað – en umfram allt ekki gera neitt sem getur orðið til þess að það verði rokið í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild á kolvitlausum tíma. Málið er að láta fullgilda umsókn standa opna. Svo er bara að bíða.“

Og undir lokin segir hann:

„Á næstu áratugum koma vísast kollsteypur, alls konar hryðjuverk, ógnir og skelfingar, kannski stríð úti í heimi, nýjar kreppur – eitthvað sem hristir vel upp í fólki svo almenningsálit sveiflast til í nokkrar vikur, jafnvel mánuði. Ef umsóknin stendur munu á endanum atburðir verða sem valda því að fylgi við aðild sveiflast aðeins yfir 50% í dálitla stund og þá skiptir öllu að hægt sé að vinna hratt. Þegar þar að kemur má sem best láta svo heita að búið sé að opna alla kaflana og kíkja í alla pakkana en það skiptir ekki öllu máli. Bara að kýla á fjandans þjóðaratkvæðagreiðsluna og málinu er reddað.“

Þessi grein Atla er skyldulesning fyrir alla áhugamenn um Evrópusambandið - og líka hina sem hafa ekki áhuga á því!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Guðmundsson

mér finnst ekki ljóst að "Íslendingar vilji vera fyrir utan". ég er ekki búinn að lesa þessa grein Atla en eftir að hafa lesið það sem þið hafið eftir henni spyr ég bara. er ekki bara best að klára þessa umsókn núna til að ekki þurfi að hugsam um hana í:

"kollsteypur, alls konar hryðjuverk, ógnir og skelfingar, kannski stríð úti í heimi, nýjar kreppur"

Rafn Guðmundsson, 11.4.2013 kl. 10:07

2 identicon

Mikil andstaða við ESB um þessar mundir skýrist aðallega af mikilli andstöðu við Jóhönnu Sigurðardóttir og Steingrím.  Fólk segir Nei við nánast öllu sem þau segja Já við :)  Þau eru gríðarlega óvinsæl, með innan við 30% fylgi.  Ég er persónulega með 5 ára háskólanám, þar af 3 í viðskiptafögum.  Ég hef ekki tekið afstöðu til inngöngu, þó ég vilji klára aðildarviðræður.  Það er einfaldelga ótímabært að nudda í fólki og fá það til að taka afstöðu.  Rúmlega 60% þjóðarinnar vilja krára aðildarviðræður á t.d. næstu 2-4 árum og taka svo afstöðu.  Það er mjög skynsamlegt.

Guðmundur R Guðmundsson (IP-tala skráð) 11.4.2013 kl. 10:43

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Í ÖLLUM skoðanakönnunum (hátt á annan tug), síðan Össurargengið og handbendi þess "sóttu um" (sakleysislegt orðalag um landráð) í júlí 2009, hefur eindreginn meirihluti svarað spurningum um, hvort fólk vilji að Íslandi gangi í ESB, með NEITANDI hætti. (Sjá HÉR.)

Nú er andstaðan 70% samkvæmt síðustu skoðanakönnun. Rafn verður því, þrátt fyrir alla sína aumlegu óskhyggju, að gera sér grein fyrir þeirri staðreynd, að "Íslendingar vilja vera fyrir utan". Af hverju vill þetta fólk ekki virða þann einbeitta þjóðarvilja?

Nei, fremur skal halda áfram eins og rjúpan við staurinn að jagast í þessu máli, sem stefnt er þó gegn fullveldi okkar -- og jafnvel þrátt fyrir ótvírætt fjandsamleg tiltæki þess sama Evrópusambands gegn okkur í Icesave-málinu og makrílmálinu!

Þess vegna er hin frábæra grein Atla Harðarsonar, sem ég las í Morgunblaðinu í morgun, svo ferskt og gott innlegg í þessa umræðu um framhald eða slit ESB-aðlögunarviðræðnanna. Atli er heimspekingur og beitir hér írónískri rökhyggju til að berhátta fráleitan málstað þeirra, sem vilja sífellt halda þessari Össurarumsókn í gangi.* Ég tek því undir hvatningu hér um að allir lesi þessa grein Atla í heild, hún er bráðskemmtileg aflestrar, þvílík er stílsnilldin og ágengu, afhjúpandi rökhyggjan.

* Það vilja t.d. þessir flokkar nú (og ættu allir að fara á tabú-lista kjósenda): Samfylking, Vinstri græn, "Björt framtíð", "Lýðræðisvaktin" og Pírataflokkurinn. Á mót standa Sjálfstæðisflokkur (a.m.k. landsfundur!), Framsóknarflokkur og Regnboginn.

PS. til Guðmundar: Gallupkönnun birt í nóvember sl.: 59,6% hlynnt afturköllun ESB-umsóknar, 40,4% á móti afturköllun

PPS. Og landsbyggðin veit hvað til síns friðar heyrir: 83,7% á móti "aðild" að Evrópusambandinu í nóv. sl.

Jón Valur Jensson, 11.4.2013 kl. 12:55

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

... ágeng ...

... Á móti standa ...

Jón Valur Jensson, 11.4.2013 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 17
  • Sl. sólarhring: 188
  • Sl. viku: 982
  • Frá upphafi: 1117905

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 874
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband