Leita í fréttum mbl.is

EES-samningurinnn heftir viðskipti fremur en stuðlar að þeim

EES-samningurinn er að breyta um eðli. Í stað þess að vera samningur til að stuðla að frjálsum viðskiptum er hann í æ meiri mæli orðinn að samningi sem heftir viðskipti með vörur sem ekki eru framleiddar samkvæmt sérstökum stöðlum ESB.

Þetta á við um matvörur, bíla og ýmsar vörur svo sem ryksugur. Með þeim breytingum sem hagsmunapotarar evrópskra stórfyrirtækja hafa komið að á reglugerðum af ýmsu tagi eru evrópsku fyrirtækin að skara eld að eigin köku og hindra hagstæð viðskipti íbúa Evrópu við þjóðir utan ESB.

Dæmi um þetta eru reglugerðir um sölu á ryksugum. Frosti Sigurjónsson þingmaður Framsóknarflokksins benti þetta í umræðu og pistli fyrir áramót. Birgir Örn Steingrímsson hefur einnig fjallað um þetta á bloggi sínu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég var í Eisenstad um daginn og fór á markað, sem ekki er í frásögur færandi, nema þar var maður að selja hunang út eigin búi, hann hafði einnig búið til allskonar lækningakrem og sælgæti, en honum er bannað að selja slíkar vörur, hann verður að selja slíkar vörur framleiddar af stórum aðiljum í Þýskalandi, reglur á regllur ofan, til að vernda verksmiðjur þýskalands.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.1.2014 kl. 18:37

2 Smámynd:   Heimssýn

Þakka þér fyrir að deila með okkur reynslu þinni, Ásthildur.

Heimssýn, 23.1.2014 kl. 22:32

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Tollamúrar og styrkjakerfi landbúnaðar í vestrænum ríkjum er hrikalegasta dæmið af þessu tagi, svo stórt, að svonefnd þróunarhjálp er smælki í samanburðinum. EES er enn með meiri kosti fyrir okkur en galla vegna hagstæðari tolla og frjálsara flæði innan svæðisins auk þess sem ýmislegt í löggjöf okkar hefur batnað í evrópsku samstarfi. Við værum til dæmis enn  með gamla kerfið í dómsmálunum, sami maður hefur lögregluvald, rannsóknarvald og dómsvald, ef Jón hjólreiðamaður á Akureyri hefði ekki leitað til mannréttindadómsstóls Evrópu á sínum tíma. Helstu áhyggjur okkar eru reglugerðafarganið, en í mörgum tilfellum er um að kenna linkind og þýlyndi íslenskra embættismanna.  

Ómar Ragnarsson, 24.1.2014 kl. 08:53

4 Smámynd:   Heimssýn

Takk fyrir innleggið, Ómar. Við hér höfum svo sem enga samræmda skoðun á bílategundum, en hér er ein frétt sem segir sína sögu um áhrif reglugerða ESB á innflutning á bílum til Íslands. Það virðist ekki vera hægt að flytja inn pallbíla sem stendur: http://www.visir.is/sala-pallbila-aftur-moguleg-/article/2014140129592

Heimssýn, 24.1.2014 kl. 09:55

5 identicon

Já við eigum bara að segja okkur úr alþjóðasamfélaginu og ganga í Skagfirska efnahagsvæðið, þar er framtíðin.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 24.1.2014 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 415
  • Sl. sólarhring: 426
  • Sl. viku: 1442
  • Frá upphafi: 1119885

Annað

  • Innlit í dag: 338
  • Innlit sl. viku: 1215
  • Gestir í dag: 312
  • IP-tölur í dag: 305

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband