Leita í fréttum mbl.is

Umsókn um aðild að ESB formlega dregin til baka samkvæmt málaskrá ríkisstjórnarinnar

Sigmundur
Fram kom í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld að í málaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir komandi þingvetur komi fram að þingsályktunartillaga um að draga til baka umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið verði lögð fram.
 
Það er mikilvægt að þetta komi fram, sérstaklega í ljósi þeirrar ósvífni ESB að skilgreina Ísland enn sem umsóknarland í sínum innri pappírum og áróðri.
 
Svo segir í frétt mbl.is um þetta: 
 
 

Fram kem­ur í mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar fyr­ir kom­andi þing­vet­ur að þings­álykt­un­ar­til­laga um að draga til baka um­sókn Íslands um inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið verði lögð fram. Þetta kem­ur fram í þeim hluta mála­skrár­inn­ar sem fjall­ar um mál sem heyra und­ir Gunn­ar Braga Sveins­son ut­an­rík­is­ráðherra.

Tekið er fram að tíma­setn­ing fram­lagn­ing­ar þings­álykt­un­ar­til­lög­unn­ar liggi hins veg­ar ekki fyr­ir og þeim mögu­leika haldið opn­um eft­ir sem áður að slík til­laga verði ekki lögð fram. Orðrétt seg­ir: „Til­laga til þings­álykt­un­ar um að draga til baka um­sókn um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Tíma­setn­ing fram­lagn­ing­ar, ef til kem­ur, ligg­ur ekki fyr­ir.“ 

mbl.is Stefnt að afturköllun umsóknarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þessi tillaga verður lögð fram, sem er mjög vafasamt, munu mótmælendur stöðva hana.

Ef hún verður borin undir atkvæði verður hún felld. Það eru til ærlegir sjálfstæðismenn og framsóknarmenn á þingi sem myndu aldrei bendla sig við slík svik sértaklega eftir hörð mótmæli þjóðarinnar.

Einu áhrifin af slíku gerræði væru verulegt  fylgistap ríkisstjórnarflokkanna.

Ásmundur (IP-tala skráð) 10.9.2014 kl. 22:25

2 identicon

Það er nú almennilegt af Evrópusambandinu að hafa ekki gefist upp á okkur alveg strax.

Nú þurfum við Heimsýnarfólk að fara að berjast fyrir því að viðræðunum verði fram haldið og að lokum settar í langþráða þjóðaratkvæðagreiðslu.

Því við Heimsýnarfólk erum sko ekki hrædd við að tapa og munum um fram allt virða niðurstöðuna hver svo sem hún kann að verða og enn fremur fagna sigri lýðræðisins á þeim sem ekki treysta lýðnum, nema til mjög svo takmarkaðra verka.

Enda erum við Heimsýnarfólk öll fylgjandi frelsi einstaklingsins og það ekki bara til athafna hverskonar heldur líka til að að velja stefnur og strauma sem stjórnvöldum hverju sinni ber að fylgja.

mbk,

Björn Heimsýnarmaður #1

Björn (IP-tala skráð) 10.9.2014 kl. 22:57

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ekki voru þeir svo lýðræðislega þenkjandi í flokki Össurar,þegar þeir höfnuðu þjóðaratkvæðatillögu stjórnarandstöðu 2009 og fóru með umsóknina til Brussel,eftir þvingaðar samþykktir stjórnar. Ég sem löglegur Heimssýnar meðlimur,finnst Esb ekkert sýna okkur neitt nema valdið svo langt sem það nær.

Helga Kristjánsdóttir, 11.9.2014 kl. 01:32

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Umsóknin sjálf árið 2009 var hreint stjórnarskrárbrot, eins og ítrekað hefur verið gerð grein fyrir á vef Fullveldisvaktarinnar, fullveldi.blog.is -- Þar fyrir utan var þá verið að þvinga samstarfsflokk í ríkisstjórn til að greiða atkvæði þvert gegn sannfæringu þingmanna (eins og kom fram þegar nokkrir þeirra gerðu grein fyrir atkvæði sínu, þar á meðal Svandís Svavarsdóttir), og einnig það er stjórnarskrárbrot.

Ríkisstjórninni er ekki stætt á öðru en að draga þá umsókn formlega til baka.

Fagna ber því sem fram í mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar fyr­ir kom­andi þingvet­ur, og farið nú að taka rögg á ykkur, ráðherrar! Ítök vesallar stjórnarandstöðunnar í fjölmiðlungum mun gagnslaus reynast henni, þegar tekið er fast og hratt á málinu, og þá verður það brátt og farsællega úr sögunni, rétt eins og taglhnýtingsstefna kommúnista við Sovétríkin varð að einberu hreyksli úr fortíðinni.

Jón Valur Jensson, 11.9.2014 kl. 02:17

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hérna er samningurinn á íslensku: http://www.evropustofa.is/fileadmin/Content/Publications/PDFs/Lissabon-heildarskjal.pdf

Höldum bara þjóðaratkvæðagreiðslu og klárum þetta strax.

Guðmundur Ásgeirsson, 11.9.2014 kl. 03:12

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Um hvað? Guðmundur Ásgeirsson.

Helga Kristjánsdóttir, 11.9.2014 kl. 11:15

7 identicon

Ákvörðun um aðildarumsókn var tekin með nákvæmlega sama hætti og í öllum ESB-löndunum.

Engum datt þar i hug að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja skyldi aðildarviðræður enda ljóst að  fyrst þarf að liggja fyrir samningur áður en hægt er að taka ákvörðun um að hafna aðild.

Að kjósa núna um aðild og missa þannig af möguleikum á sérlausnum væri ótrúleg heimska. Að hugsa til þess að menn sem vilja það komi að stjórn landsins er ógnvekjandi.

Aðildarumsókn var samþykkt á þingi með öruggum meirihluta þrátt fyrir að Borgaraflokkurinn kysi gegn eigin sannfæringu ásamt nokkrum sjálfstæðismönnum. Á þeim tíma var einnig meirihluti fyrir umsókn meðal þjóðarinnar skv skoðanakönnunum.

Að sjálfsögðu er ekkert vit í öðru en að ljúka samningnum og leyfa þjóðinni að kjósa um hann.

Ásmundur (IP-tala skráð) 11.9.2014 kl. 18:34

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Nei Ásmundur,hún var einmitt frábrugðin ákvörðunum ESB-landa,var hreint stjórnarskrárbrot,sem má sjá á vefnum fullveldi.blog.is.

Helga Kristjánsdóttir, 12.9.2014 kl. 14:31

9 identicon

Helga, á hvern hátt var ákvörðunin um aðildarumsókn frábrugðin því hvernig staðið var að ákvörðunum ESB-þjóðanna um aðildarumsókn?

Að halda því fram að um stjórnarskrárbrot hafi verið að ræða er bara hlægilegt.

Stjórnarskráin setur engin takmörk á samstarf við erlendar þjóðir né að mynda bandalag eða ganga inn í samband um slíkt samstarf.

Ásmundur (IP-tala skráð) 12.9.2014 kl. 14:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 38
  • Sl. viku: 825
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 727
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband