Leita í fréttum mbl.is

Orkupakkinn verri en Icesave

virkjunÍ umræðum síðustu daga um Orkupakka 3 hefur komið fram að samþykkt hans á Alþingi getur haft miklar afleiðingar fyrir afkomu íslenska ríkisins og þar með þjóðarinnar allrar. Komið hefur í ljós að hinn svokallaði fyrirvari, sem virðist helst felast í einhverjum kunningjasamtölum í útlöndum, hefur enga þýðingu. Standi Alþingi í vegi fyrir lagningu sæstrengs, sem bresk fyrirtæki virðast nú þegar tilbúin að hefja undirbúning á (sæstrengur er sagður fullfjármagnaður), þá á íslenska ríkið yfir höfði sér himinháar bótakröfur frá viðkomandi fyrirtæki eða fyrirtækjum og verður að öllum líkindum dæmt til að greiða stórar fjárhæðir miðað við nýleg dómafordæmi. 

Á hvaða vegferð er ríkisstjórnin eiginlega? Ríkisstjórnarflokkarnir berjast þarna gegn meirihlutasamþykktum eigin flokksfólks og vilja meirihluta þjóðarinnar. Fyrir hvern er ríkisstjórnin eiginlega að berjast?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er til marks um vanvirðingu við þann breiða hóp fólks sem barðist gegn Icesave að líkja því við þetta mál. Málstaður andstæðinga Icesave grundvallaðist á réttlætiskennd. Málstaður þeirra sem hamast gegn þessari orkureglugerð grundvallast á lygum.

Þorsteinn Siglaugsson, 30.5.2019 kl. 11:40

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei, Þorsteinn, þú hefur sjálfur gengið í þjónustu lyginnar í þessu máli, og það er mér, gömlum kunningja þínum og málvini, jafnvel samherja í Sjálfstæðisflokknum á árum áður, sárt að horfa upp á dag eftir dag vegna þrálátra blekkingarinnleggja þinna inn á vefsíður.

Ég tek að öllu leyti undir pistil Heimssýnar hér fyrir ofan.

Jón Valur Jensson, 30.5.2019 kl. 13:36

3 identicon

Þorsteinn: "Málstaður þeirra sem hamast gegn þessari orkureglugerð grundvallast á lygum". Heldur þykir mér yfirlætið og hrokin í málflutningi þeirra sem finnst þátttaka okkar í O3 mikilvæg einhverrja hluta vegna. Þetta er sami hrokinn og yfirlætið og er í málflutningi andstæðinga Brexit á Bretlandi sem halda því fram að Brexitsinnar byggi allan sinn málflutning á falsfréttum.  Eflaust má finna slíku stað en ekki síður hjá andstæðingum Brexit.  Ég hef ekki betur heyrt en að andstæðingar O3 hafi haft upp margskonar veigamikil rök gegn upptöku hans.  Hinsvegar hef ég bara heyrt tvenskonar rök hjá fylgjendum:

1. Ef við sasmþykjum ekki þá mun það setja EES samningin í uppnám.  Ekki eru þessi rök trúverðug þar sem samningurinn sjálfur gerir ráð fyrir að aðildarríkin geti neitað einstökum tilskipunum.  Annars værum við án nokkur vafa búin að afsala okkur yffirráðum yfir eigin málum. Er hugsanlega hægt að tala um falsfrétt?   

2. Í O3 felst neytendavernd.  Þetta er náttúrulega svo algjörlega út úr kortinu að vel er hægt að tala um falsfrétt.  Rafmagnsverð hér er mun lægra en nokkurstaðar í Evrópu og áhrif af fyrri orkupökkum hefur ekkert gert annað en að hækka orkuverð til heimila. 

Stefán Örn Valdimarsson (IP-tala skráð) 31.5.2019 kl. 10:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 387
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 350
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband