Leita í fréttum mbl.is

Mannfórnir í Evrópu og þroskastig stóru Evrópuríkjanna

heimssyn-skriddreki

Nú standa yfir ótrúlegar og dapurlegar mannfórnir í Austur-Evrópu.

Að því kemur að stríði lýkur og einhvers konar niðurstaða kemur í það sem deilt var um.  Spyr þá einhver hvort ekki hefði mátt fá þá niðurstöðu án mannfórna. Óvíst er að nokkur verði til svars.    

Pólitískar mannfórnir hafa löngum verið þáttur í menningu stóru Evrópuríkjanna.  Í meginatriðum er óhætt að segja að Íslendingar hafi komist á annað þroskastig fyrir um 700 árum.  Því ber að halda til haga.  

Á Íslandi er lítill hópur stjórnmálamanna sem reynir að nýta sér styrjöldina til að suða um að nú þurfi Evrópusambandið að fá völdin á Íslandi. 

Ætli þessu fólki sé sjálfrátt?

 

     

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Með innrásinni í Úkraínu er Rússland Pútíns einfaldlega búið að vera. cool

NATO- og Evrópusambandsríkin hafa verið miklu stærri markaður fyrir Rússa en Kína og sem markaður skipta NATO- og Evrópusambandsríkin miklu meira máli fyrir Kínverja en Rússland.

Og það á einnig við um okkur Mörlendinga, þar sem Vestur-Evrópa og Bandaríkin eru langstærstu markaðssvæði okkar í útflutningi á bæði vörum og þjónustu.

Í NATO- og Evrópusambandsríkjunum búa miklu fleiri en í Rússlandi og almenningur í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum hefur miklu meira fé á milli handanna en almenningur í Rússlandi. cool

Rússneska rúblan er ekki alþjóðlegur gjaldmiðill, eins og evran og Bandaríkjadalur, og Rússar verða að nota alþjóðlega gjaldmiðla til að geta keypt erlendar vörur, rétt eins og við Mörlendingar.

Mörlenska krónan og rússneska rúblan eru því jafn mikið rusl, enda hrundi gengi rússnesku rúblunnar með innrásinni í Úkraínu, rétt eins og gengi mörlensku krónunnar hrundi í Hruninu hér á Klakanum árið 2008. cool

Rússar flytja fyrst og fremst út olíu og gas en Evrópubúar munu draga verulega úr kaupum á gasi og olíu af Rússum og hætta þeim alveg eftir örfá ár en nota í staðinn eigin kjarnorku og vindorku.

Rússar gætu reyndar tekið upp vöruskipti við Kína, eins og Sovétríkin stunduðu, til að mynda með kaupum á sjávarafurðum héðan frá Íslandi í skiptum fyrir olíu og stál.

En Sovétríkin hrundu vegna óstjórnar og spillingar, og það mun Rússland Pútíns einnig gera. cool

Þorsteinn Briem, 13.3.2022 kl. 19:27

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ísland var eitt af stofnríkjum NATO árið 1949 og að sjálfsögðu er ekkert af aðildarríkjum NATO hlutlaust ríki. cool

9.3.2022 (síðastliðinn miðvikudag):

Um helmingur Íslendinga hlynntur aðild Íslands að Evrópusambandinu og einungis 13% andvígir cool

Af 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins eru einungis sex ríki ekki í NATO, Finnland, Svíþjóð, Austurríki, Írland, Kýpur og Malta.

Finnland og Svíþjóð hafa hins vegar átt mikla samvinnu við NATO og meðal annars tekið þátt í loftrýmisgæslu hér við Ísland.

1.3.2022:

Meirihluti Finna vill að Finnland fái aðild að NATO

13.9.2015:

Meirihluti Svía vill að Svíþjóð fái aðild að NATO

Lissabon-sáttmáli Evrópusambandsins (Treaty of Lisbon):

"Does the Treaty of Lisbon create a European army?

No. Military capabilities remain in national hands. The Treaty foresees that Member States can make available civilian and military resources to the Union for the implementation of its Common Security and Defence operations. cool

However, any Member State has the right to oppose such operations and all contributions to them will be always on a voluntary basis.

A group of Member States who are willing and have the necessary capability will be able to undertake disarmament operations, humanitarian and rescue tasks, military advice and peace-keeping tasks.

No Member State can be forced to participate in such operations." cool

Hversu margir Íslendingar dóu vegna seinni heimsstyrjaldarinnar? - Vísindavefurinn

Þorsteinn Briem, 13.3.2022 kl. 20:33

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaðir Heimssýnsmenn, eða þið sem eftir eru.

Þið náðuð ákveðinni lágkúru í síðasta pistli, ykkur þó til aumkunarverðs hrós, var að þegar þið föttuðu að hvorki manndómur, söguleg þekking, eða nokkur sá hæfileiki sem fær menn til að verja skrif sín, var til staðar, að þá þögðu þið.

Smánin gat jú alltaf stækkað, þó erfitt hafi verið að ímynda sér það.

Núna náðu þið samt að toppa lágkúru, sem er fyrir handan alls ímyndunarafls.

Ekkert fær skýrt eða afsakað þessi orð ykkar;

"Að því kemur að stríði lýkur og einhvers konar niðurstaða kemur í það sem deilt var um.  Spyr þá einhver hvort ekki hefði mátt fá þá niðurstöðu án mannfórna. Óvíst er að nokkur verði til svars.".

Yfirtaka Þjóðverja á Tékkóslóvakíu var ekki stríð, innrás Þjóðverja í Pólland, var ekki stríð.

Þá átti kannski aumingjahugarfarið, sem gegnsýrir ykkur sem eftir eru í ritstjórn Heimssýnar, sér ekki skírskotun í þegar þekkta sögu, en þeir hugprúðu Hollendingar sem vörðu virki sín, töfðu þar með framsókn þeirra sem þið í Heimssýn segið að hafi átt í stríði, fórnuðu lífi sínu svo Bretum tókst nokkrum dögum seinna að bjarga megni af her sínum frá Dunkirk, hvorki hinum hugprýðum Hollendingum eða ríkisstjórn Breta undir forystu Churchill tók það í mál að hægt væri að mæta innrás með uppgjöf án mannfórna.

Við erum frjáls í dag vegna þessa hugprýðis og staðfestu, hefði hún verið til staðar fyrr þá hefðu 80 milljónir lifað, sem dóu, vegna þess að þá var til fólk sem þóttist ekki vita betur.

En við vitum betur í dag.

Og að þið skuluð voga ykkur að kenna ykkur við Sjálfstæði Íslands, þið aumingjarnir sem þorið ekki að verja ykkar eigin orð, er smán sem jafnvel Gissur Jarl hefði hrist höfði yfir.

Hvað er eiginlega að ykkur??

Ég bara spyr.

En samt með kveðju að austan.

Ómar Geirsson, 14.3.2022 kl. 16:02

4 Smámynd: Theódór Norðkvist

Að því kemur að stríði lýkur og einhvers konar niðurstaða kemur í það sem deilt var um.  Spyr þá einhver hvort ekki hefði mátt fá þá niðurstöðu án mannfórna.

Rússneski herinn hringdi rétt í þessu úr rústunum í Mariupol og sagðist ekki vera sammála.

Annars tek ég undir með Ómari. Sjálfstæði er ekki meira virði en klósettpappírsrúlla, ef ekki má verja það.

Theódór Norðkvist, 14.3.2022 kl. 22:31

5 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þið eruð tveir svolítið sterkir saman, Ómar og Þorsteinn Briem. Þorsteinn Briem dregur enga dul á vinstriskoðanir sínar, en Ómar með rætur þar og sveiflast um miðjuna, þó oft til vinstri.

Erum við frjáls í dag á Íslandi og sjálfstæð? Það virðist mér fráleitt. Heilaþvottur er stundaður sem aldrei fyrr, og þjóðin sem áður vildi raunverulegt sjálfstæði og þjóðerniskennd er orðin að hlýðinni tík Nató og ESB. Ekkert er fjær sjálfstæði en það.

Hefði Hitler unnið stríðið hefði hér og annarsstaðar ríkti hér meira jafnræði, meira lýðræði og frelsi, því Hollywoodvaldið frá Bandaríkjunum og Bretlandi var þegar orðið sterkt á þeim tíma.

Nazisminn hefði mildazt og samlagast öðrum stjórnmálastefnum hefði Hitler unnið stríð, en í dag eru eiginlega ALLIR kúgaðir af sama andlega valdinu, Nató, ESB, femínisma. Ekkert er fjær sjálfstæði en það.

Ingólfur Sigurðsson, 15.3.2022 kl. 10:48

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fjölmargar hægristjórnir eru og hafa verið í Evrópusambandsríkjunum. cool

En Evrópusambandið er fyrst og fremst frjálslynt bandalag, enda hafa ríkisstjórnir sem eru lengst til hægri í sambandinu, til að mynda í Póllandi og Ungverjalandi, lent upp á kant við bandalagið.

Það breytir því hins vegar ekki að mikill stuðningur er í Pólandi og Ungverjalandi við aðild þessara ríkja að Evrópusambandinu. cool

Og mörlenskir öfgahægrikarlar og -kerlingar telja alla vera vinstrisinnaða sem ekki eru öfgahægrisinnaðir, til að mynda Viðreisn hér á Klakanum, sem er frjálslyndur hægriflokkur.

9.3.2022 (síðastliðinn miðvikudag):

Um helmingur Íslendinga hlynntur aðild Íslands að Evrópusambandinu og einungis 13% andvígir cool

Þorsteinn Briem, 15.3.2022 kl. 11:37

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ellefu Austur-Evrópuríki, sem áður voru kommúnistaríki, eru nú bæði í Evrópusambandinu og NATO. cool

Serbía, Bosnía, Albanía, Svartfjallaland og Norður-Makedónía hafa einnig sótt um aðild að Evrópusambandinu og þrjú síðastnefndu ríkin hafa nú þegar fengið aðild að NATO.

Og Moldóva, Georgía og Úkraína, sem öll voru í Sovétríkjunum, vilja einnig fá aðild að Evrópusambandinu.

"All major political parties in Ukraine support full eventual integration into the European Union." cool

9.12.2020:

Record Support (85%) for Hungarian European Union Membership

9.12.2020:

Foreign Minister of Hungary: Poland and Hungary Not Moving Away from the European Union

Þar að auki vill ríkisstjórn Viktors Orbáns í Ungverjalandi fjölga ríkjum í Evrópusambandinu. cool

Ísland tekur þátt í Schengen-samstarfinu, er eitt af stofnríkjum NATO og enginn stjórnmálaflokkur, sem á sæti á Alþingi, vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu (EES), ekki einu sinni Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn. cool

Þorsteinn Briem, 15.3.2022 kl. 12:19

8 Smámynd: Theódór Norðkvist

Verð að svara hér stutt, Steini eins og venjulega með sína fræðslupistla með fjölmörgum tenglum. Það sem er óvenjulegt er að þetta er í fyrsta sinn sem ég les einhvern halda því fram að lífið hefði bara orðið fínt ef nasistar hefðu unnið stríðið. Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt.

Theódór Norðkvist, 15.3.2022 kl. 12:53

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í dag bullar enn og aftur hægriöfgakarlinn Ómar Ragnarsson: cool

"Íslendingar létu teygja sig ansi langt 2014 þegar við urðum sjálfir fyrir margfalt meiri hlutfallslegum skaða af því að loka á viðskipti við Rússa en nokkur önnur þjóð í EES."

Sjávarafurðir sem seldar höfðu verið til Rússlands héðan frá Íslandi voru einfaldlega seldar til annarra ríkja og fyrst og fremst til Úkraínu.

Og ætli það sé nú ekki Pútín, besti vinur Ómars Ragnarssonar, sem kemur í veg fyrir að við Íslendingar getum ekki selt núna sjávarafurðir til Úkraínu. cool

9.3.2022 (síðastliðinn miðvikudag):

"Ætla má að ár­leg­ur út­flutn­ing­ur sjáv­ar­af­urða frá Íslandi til Úkraínu hafi verið um 9 til 11 millj­arðar og hef­ur Úkraína verið eitt mik­il­væg­asta viðskipta­land Íslend­inga með upp­sjáv­ar­af­urðir frá því að Rúss­land lokaði markaði sín­um árið 2015." cool

Níu til ellefu milljarðar króna undir í Úkraínu

11.3.2022 (síðastliðinn föstudag):

Forstjóri Síldarvinnslunnar kallar eftir samkomulagi við Evrópusambandið um lækkun tolla á sjávarafurðum

Ómar Ragnarsson þorir nú ekki annað en að hætta að verja Pútín eins og fleiri mörlenskir hægriöfgakarlar og gapir nú um tár og blóð cool

Þorsteinn Briem, 15.3.2022 kl. 18:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 97
  • Sl. sólarhring: 308
  • Sl. viku: 1843
  • Frá upphafi: 1120626

Annað

  • Innlit í dag: 94
  • Innlit sl. viku: 1582
  • Gestir í dag: 94
  • IP-tölur í dag: 92

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband