Leita í fréttum mbl.is

Að koma samskiptum við þær þjóðir sem eftir eru í Evrópusambandinu í góðan farveg

Heimssýn hefur sent Alþingi eftirfarandi umsögn: 

Heiðraða Alþingi

Löggjafarvald á Íslandi er samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins í höndum Alþingis og forseta sem eru kjörnir af fólkinu í landinu.  Engu að síður hefur sá háttur verið á um nokkurt skeið að lög sem samin hafa verið af erlendu ríkjasambandi hafa verið gerð að lögum á Íslandi, að heita má umræðulaust.  Er þá iðulega horft framhjá því hvort umrædd lög henti á Íslandi eða hvaða kostnað þau hafi í för með sér.  Þrátt fyrir að íslenska ríkið hafi samkvæmt samningi fulla heimild til að hafna því að setja lög með þessum hætti virðist svo vera að aðilar innan stjórnkerfis landsins og sumir stjórnmálamenn telji að slík höfnun kalli á svo harðar aðgerðir af hálfu hins erlenda ríkjasambands að heimildin til að hafna löggjöf sé ekki til staðar í raun.  Þetta er einkennileg staða og vandséð er að þetta fyrirkomulag standist stjórnarskrá.  Vinnubrögðin sem hér er lýst eru hættuleg hagsmunum Íslendinga og ganga gegn hugmyndum þorra fólks um lýðræði.

Frá því fyrrgreint fyrirkomulag tók gildi hefur hið erlenda ríkjasamband teygt arma sína inn á sífellt fleiri svið samfélagsins með ýmsum hætti.  Má þar nefna löggjöf um orkumál, dóm um innflutning á ófrosnu kjöti og hægfara eyðing á hinu tveggja stoða kerfi EFTA og Evrópusambandsins.  Svo mætti áfram telja.  Allt það veldur því að núverandi fyrirkomulag fjarlægist enn meira ramma stjórnarskrárinnar.

Nú liggur fyrir frumvarp sem hnykkir á forgangi laga sem eiga uppruna sinn í lögum frá Evrópusambandinu og fjallar einnig um stjórnvaldstilskipanir af sama tagi.  Hið síðarnefnda er undarlegt og til þess fallið að auka flækjustig stjórnkerfisins.  Hér er á ferðinni skref í átt að tilfærslu valds frá lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum á Íslandi til Evrópusamandsins sem erfitt er við að una.  

Heimssýn telur að best sé að leggja fyrrgreinda bókun 35 til hliðar og hefjast þegar í stað handa við að koma samskiptum Íslands við þær þjóðir sem eftir eru í Evrópusambandinu í þann farveg að hagsmunir Íslendinga séu sem best tryggðir, án þess að fullveldi landsins sé skert eða fargað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"gerir stjórnvaldstilskipanir af sama tagi rétthærri lögum"

Þetta er beinlínis rangt.

Í greinargerð með frumvarpinu segir:

"Hvað varðar stjórnvaldsfyrirmæli, þá skulu stjórnvaldsfyrirmæli sem innleiða EES-reglu ganga framar öðrum ósamrýmanlegum stjórnvaldsfyrirmælum sama efnis. Á grundvelli greinarinnar er rétthæð réttarheimilda ekki raskað."

Meginefni umsagnar yðar fjallar hvorki um frumvarpið né bókun 35 heldur innleiðingarskylduna samkvæmt 7. gr. EES-samningsins sem hefur verið hluti af íslenskum lögum um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993 frá upphafi. Með umræddu frumvarpi eru ekki lögð til nein nýmæli þar að lútandi.

Afstaða og málflutningur byggð á rangfærslum þjónar engum málstað vel, hvort sem maður aðhyllist hann eða ekki.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.5.2023 kl. 11:17

2 Smámynd:   Heimssýn

Í frumvarpinu segir: 

"Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum." og í greinargerð segir m.a.: 

"Stjórnvaldsfyrirmæli sem innleiða EES-reglur geta þó gengið framar almennum lögum sama efnis ef löggjafinn hefur mælt sérstaklega fyrir um það eins og dæmi eru um, sbr. umfjöllun í 3. kafla um meginefni frumvarps. ",

en í greinargerðinni er líka tekið fram að rétthæð réttarheimilda sé ekki raskað, sbr. athugasemd Guðmundar hér að ofan.  

Það verður seint sagt að skýrleiki ráði hér för, hvorki í orðalagi frumvarpsins né í þeim lögfræðilega skógi sem verið er að rækta.  

Til að gæta varkárni hefur málsgreininni verið breytt til samræmis við fram komna athugasemd.  

Heimssýn, 15.5.2023 kl. 12:06

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"ef löggjafinn hefur mælt sérstaklega fyrir um það eins og dæmi eru um"

Þetta er lykilatriði, enda er löggjafarvaldið í höndum Alþingis samkvæmt 2. gr. stjórnarskrá. Á grundvelli þess getur Alþingi ákveðið með lögum hvaða réttarheimild gangi framar annarri. Rétt eins og er lagt til með frumvarpinu.

Ég er aftur á móti sammála því að það mætti vera skýrara að stjórnvaldsfyrirmæli gangi aldrei framar settum lögum, nema löggjafinn hafi sérstaklega mælt fyrir um það, eins og er bent á í nokkrum prýðilegum umsögnum við frumvarpið.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.5.2023 kl. 12:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 124
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 106
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband