Leita í fréttum mbl.is

Arfavitlaus og hlutdræg skoðanakönnun Fréttablaðsins

Frést hefur af því að Fréttablaðið sé þessa dagana að hringja í fólk til að spyrja um afstöðu til stjórnmálaflokka og um afstöðu til ESB. Spurt er hvort fólk vilji að viðræðum við ESB verði haldið áfram. Þarna er Fréttablaðið að leggjast á sveif með þeim ESB-aðildarsinnuðu öflum sem vilja halda áfram aðlögunarferlinu að ESB. Í spurningum Fréttablaðsins er ekki gert ráð fyrir neinum þeim fyrirvörum sem Alþingi setti svo skýrt inn í ályktun sína umsókn. Núna vilja aðildarsinnar gleyma þeim fyrirvörum til að viðhalda þeirri yfirborðslegu umræðu sem á sér víða stað um þessi mál.

Lýðræðið krefst þekkingar. Án hennar er hætt við því að óvandaðir aðilar leiði landsmenn á villigötur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég treysti ekki Samfylkingu og VG, eins mikið og þessir flokkar æpa um lýðræði og upplýst samfélag, þá vilja þeir ekki upplýsa almenning um raunverulega stöðu aðlögunarviðræðnanna.  Þess vegna eru þeir algjörlega ótrúverðug öfl í þessum málum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2015 kl. 22:06

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Hvað óttast öfgaandstæðingar ? að þjóðin vilji annað en þeir ?

Jón Ingi Cæsarsson, 19.3.2015 kl. 22:20

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei alls ekki Jón Ingi, það sem ég óttast er að lýðræðisleg umræða verið fótum troðin og að menn eins og Árni Páll afvegaleiði málið og staðan verði ekki sanngjörn og lýðræðísleg.  Þetta fólk hefur svo sannarlegha sýnt að sannleikurinn er ekkert að væflast fyrir þeim.  Og andstæðingar ESB eru ekki öfgamennirnir í þessu dæmi heldur þvert á móti Samfylkingin og þeirra pótintátar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2015 kl. 22:28

4 Smámynd:   Heimssýn

Jón Ingi. Því talar þú svona? Hver eru samningsmarkmiðin sem þinn flokkur, Samfylkingin, samþykkti að setja fram haustið 2002? Þú hlýtur að muna eftir þeirri umræðu eftir flokkstjórnarfundinn sem haldinn var í þínu heimahéraði. Sjá hér til nánari skýringar grein eftir þáverandi formann framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar: 

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/690027/

Spurningin sem meirihlutinn samþykkti var: 

Á það að vera stefna Samfylkingarinnar að Íslendingar skilgreini samningsmarkmið sín, fari fram á viðræður um aðild að Evrópusambandinu og að hugsanlegur samningur verði síðan lagður fyrir þjóðina til samþykktar eða synjunar?

Hvers vegna hefur Samfylkingin í 13 ár svikist um að setja fram samningsmarkmiðin?

Heimssýn, 19.3.2015 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 64
  • Sl. sólarhring: 231
  • Sl. viku: 1029
  • Frá upphafi: 1117952

Annað

  • Innlit í dag: 46
  • Innlit sl. viku: 903
  • Gestir í dag: 46
  • IP-tölur í dag: 38

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband