Sunnudagur, 14. desember 2014
ESB skiptir sér af forsetakosningum í Grikklandi
Jean-Claude Juncker formaður framkvæmdastjórnar ESB lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali í Austurríki nýlega að Grikkir ættu að varast að kjósa ákveðna einstaklinga í forsetakosningum sem framundan eru.
Juncker varaði Grikki við að velja það sem hann kallaði fulltrúa öfgaafla. Í staðinn gaf hann í skyn að þeir ættu að velja fyrrverandi fulltrúa í framkvæmdasjtórn ESB sem forseta. Juncker hefur ítrekað lýst því yfir að hin nýja framkvæmdastjórn ESB sem hann er í forystu fyrir myndi verða pólitískari en áður hefði þekkst. Yfirlýsingar hans í áðurnefndum sjónvarpsþætti þykja sýna að hann sé nú að fylgja eftir þeim áformum sínum að hann muni skipta sér meira af pólitík aðildarríkjanna en forveri hans í stóli formanns framkvæmdasjtórnar ESB, Barroso.
Juncker sagði í viðtalinu að hann tryði því að Grikkir vissu mætavel hvaða afleiðingar röng niðurstaða í forsetakosningunum myndi hafa fyrir Grikkland og evrusvæðið. Hann sagðist vilja sjá þekkt andlit í forsetakosningunum.
Gríska þingið velur nýjan forseta á næstu dögum. Til að hljóta kjör þarf forseti að hafa fylgi 180 af 300 þingmönnum. Náist það ekki í þremur tilraunum verður að boða til nýrra þingkosninga. Skoðanakannanir benda til að í þeim myndi vinstriflokkurinn Syriza vinna mikinn sigur.Sem stendur er óvíst að óskafulltrúi Junckers nái fylgi 180 fulltrúa og því gæti stórra pólitískra tíðinda verið að vænta frá Grikklandi.
Þessar hræringar hafa haft áhrif á fjármálamarkaðinn þar sem Syriza hefur krafist þess að samið verði að nýju um ríkisskuldir og opinber útgjöld Grikkja.
Juncker er þó ekki einn um að hafa reynt að hafa áhrif á þróun kosningabaráttunnar í Grikklandi. Framkvæmdastjórnin í heild hefur einnig sagt skoðanir sínar á forsetaefnum og dásamað það að Antonis Samaras forsætisráðherra hefur lýst yfir stuðningi við Stavros Dimas, fyrrverandi fulltrúa í framkvæmdastjórn ESB, mann sem framkvæmdastjórnin lítur á sem nægilega góðan Evrópumann.
Stjórnendur í ESB vilja þannig raða sínu fólki til forystu í aðildarlöndunum.
Europaportalen fjallar um þetta hér.
Evrópuvaktin fjallar einnig um þetta hér.
Evrópumál | Breytt 15.12.2014 kl. 10:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 14. desember 2014
77% Svía á móti evrunni
Andstaðan við upptöku evrunnar í Svíþjóð er mikil og stöðug. Ástæðan er meðal annars sú kreppa sem evran veldur í ESB-ríkjunum. Sænskir stjórnmálaskýrendur telja einnig að andstaðan við ESB í Svíþjóð hafi nú í vaxandi mæli færst yfir á evruna.
Europaportalen greinir frá þessu.
Laugardagur, 13. desember 2014
Rafræn skilríki og náttúrupassi að kröfu EES!
Svo virðist af fréttum að dæma að krafan um rafræn skilríki og náttúrupassa sé tilkomin að miklu leyti vegna þeirra kvaða sem EES-samningurinn setur á okkur. Það er talsverð andstaða í þjóðfélaginu, meira að segja í Samfylkingunni, gegn náttúrupassa. Eins er talsverður urgur vegna rafrænna skilríkja.
Erum við að kaupa köttinn í sekknum með EES-samningnum?
Sjá hér meðal annars umfjöllun Morgunblaðsins um rafræn skilríki. Þar segir m.a.:
Rafræn skilríki eru ekki ný af nálinni, verkefnið er orðið fimmtán ára gamalt. Rótin er lög um rafrænar undirskriftir sem sett voru á Evrópuþinginu árið 1999 og í framhaldinu var tilskipun tekin upp á Íslandi. Evróputilskipunin var uppfærð á þessu ári og unnið er að innleiðingu hennar hérlendis um þessar mundir.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 11. desember 2014
Áróðursstofu ESB hér á landi lokað?
Áróðurspeningar ESB hér á landi eru að verða búnir í bili. Um þrjú hundruð milljónir króna sem farið hafa í að miðla upplýsingum samkvæmt áróðursplani ESB sem miðar að því að Íslendingar myndu með tíð og tíma samþykkja aðild að ESB hafa þegar verið notaðar.
Ýmis áróðursplön ESB eru vel þekkt, svo sem það hvernig átti að fara að því að láta Svía og Norðmenn samþykkja aðild að ESB árið 1994 um leið og Finna og Austurríkismenn. Menn vissu að auðveldast yrði að fá Austurríkismenn til að samþykkja aðild og þeir voru látnir kjósa um aðild fyrst. Síðan kom röðin að þeim sem voru líklegastir á eftir Austurríkismönnum til að samþykkja aðild, nefnilega Finnum. Báðar þjóðir samþykktu. Þá var komið að Svíum en þar höfðu úrslit verið mjög tvísýn og þjóðin oftast á móti. ESB og sænska ríkisstjórnin náði að stilla hluti þannig af að kosið var í þeirri einu viku sem meirihluti var fyrir aðildinni. Þegar kom að Norðmönnum höfnuðu þeir hins vegar aðild og það í annað sinn. Í seinni tíma hefur hliðstæðum aðferðum verið beitt til að samþykkja evruna og eru til plön um það hvernig á að fara að því að fá bæði Svía, Dani og jafnvel Breta til að taka upp evru - svo langsótt sem það virðist nú.
En fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi sem sagt frá því í gær að loka ætti svokallaðri Evrópustofu, sem nátturulega ætti að heita ESB-stofan. Ríkisútvarpið sagði svo frá:
Evrópustofu verður að öllum líkindum lokað hér á landi í sumar þegar samningur um rekstur hennar rennur út. Engin áform eru um að bjóða reksturinn út að nýju.
Evrópustofa var opnuð í Reykjavík í byrjun árs 2012 en hún hefur verið rekin fyrir IPA-styrki frá Evrópusambandinu. Það var þýska almannatengslafyrirtækið Media Consulta, í samvinnu við fyrirtækið Athygli, sem fékk það verkefni að reka Evrópustofu að loknu útboði á Evrópska efnahagssvæðinu. Markmiðið með starfseminni hefur verið að auka skilning og þekkingu á ESB og hvetja til umræðu um kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að sambandinu.
Margir ákafir andstæðingar ESB aðildar Íslands hafa gagnrýnt starfsemina og jafnvel sakað starfsfólk Evrópustofu um heilaþvott. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins og flokksþing Framsóknarflokksins ályktuðu í fyrra gegn Evrópustofu. Nú hyllir (svo!) undir lok Evrópustofu því samningur um reksturinn rennur út í lok ágúst næstkomandi og í svari frá framkvæmdastjórninni við fyrirspurn fréttastofu segir að að svo stöddu séu engar áætlanir uppi um að bjóða hann út að nýju. Þar sem hvert útboð tekur tíma verður Evrópustofu lokað um mitt næsta ár að öllu óbreyttu.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. desember 2014
Grikkland í efnahagslegri spennitreyju ESB í tvo mánuði til viðbótar
Grikkir höfðu vonast til þess að verða lausir undan efnhagskvöðum lánveitenda sinna um áramótin en verða nú að sætta sig við að klæðast spennitreyjunni í tvo mánuði í viðbót. Þetta er ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB og fjármálaráðherra evrulandanna.
Grikkir höfðu óskað eftir að fá síðasta hluta kreppulánsins frá ESB og IMF um áramótin. ESB vill hins vegar að grísk stjórnvöld noti næstu tvo mánuði til frekari aðhalds- og sparnaðaraðgerða.
Mánudagur, 8. desember 2014
Frosti kælir EES-vitleysuna
Þar kom að því að einhver spyrnir við fótum gegn óþörfum EES-reglum sem kosta okkur ómælda fjármuni. Fólk hér á landi hefur verið látið borga milljarða króna á milljarða ofan fyrir algjöran óþarfa - aðeins vegna þess að það hentar tilteknum hlutum Evrópu. Morgunblaðið fjallaði um þetta mál um helgina og greinir svo frá í dag:
Þingmaður Framsóknarflokksins vill að gildistöku ákvæðis um íblöndun lífdísels í eldsneyti hér á landi á grundvelli tilskipunar frá Evrópusambandinu verði frestað til ársins 2020 eins og svigrúm sé til að gera samkvæmt henni.
Frosti Sigurðsson vakti athygli á því á Alþingi í dag að þegar hefðu tapast hundruð milljóna króna í erlendum gjaldeyri úr landi vegna ákvæðis tilskipunarinnar. Með frestun gildistöku ákvæðisins mætti spara 5 milljarða króna sem annars rynnu til erlendra olíufélaga. Benti hann á að hlutfall endurnýjanlegrar orku væri miklu hærra hér á landi en innan Evrópusambandið og að sambandið tæki ekkert tillit til þess. Liechtenstein hefði frestað gildistöku ákvæðisins og Ísland ætti að geta það sama. Þá færi betur á því að akrar sem færu í það erlendis að vinna lífdísel væru notaðir til þess að framleiða matvæli.
Willum Þór Þórsson, samflokksmaður Frosta, tók undir með honum. Tilskipun Evrópusambandsins væri liður í því markmiði að auka vægi endurnýjanlegrar orku en Ísland væri langt yfir þeim markmiðum sambandsins. Upphaflega hafi verið gert ráð fyrir að innlendir aðilar gætu annað þörf Íslands fyrir lífdísel og sú hefði ekki orðið raunin. Fyrir vikið flæddi gjaldeyrir úr landi til erlendra söluaðila.
Vill fresta gildistökunni til 2020 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 7. desember 2014
Uppreisn innan Seðlabanka Evrópu
Svo virðist sem Mario Draghi aðalbankastjóri Seðlabanka Evrópu eigi nú á brattann að sækja með hugmyndir sínar um næstu aðgerðir til björgunar evrunni. Fjölmiðlar í álfunni greina frá því að um helmingur af æðstu framkvæmdastjórn bankans hafi snúist gegn hugmyndum Draghis, þar á meðal fulltrúar Þýskalands og Frakklands. Þeir hafi neitað að skrifa undir síðustu yfirlýsingar Draghis.
Draghi hefur haldið því fram að til að evran standist til frambúðar þurfi eina ríkisstjórn fyrir evrusvæðið og evrópskt stórríki til að styðja við gjaldmiðilinn. Bankastjórinn hefur þótt skeleggur í framgöngu sinni og höfðu t.d. ummæli hans fyrir fáeinum misserum um að Seðlabanki Evrópu myndi gera það sem þyrfti til að bjarga evrunni mjög jákvæð áhrif á gang evrumála.
Frakkland, Lúxemborg og Þýskaland gegn Draghi
Nú virðist sem áhrifamáttur Draghis fari þverrandi. Það gæti haft veruleg áhrif á þróun fjármálamarkaða í álfunni og á langtímahorfur fyrir evruna. Andstöðuhópur innan Seðlabanka Evrópu er sagður samanstanda af Sabine Lautenschläger, fulltrúa Þýskalands, Yves Mersch, fulltrúa Lúxemborgar og Benoît Curé, fulltrúa Frakklands. Í þessu sambandi er bent á að Draghi hafi ekkert komist áfram með hugmyndir sínar sem hann lýsti nýlega um trilljón evra innspýtingu frá Seðlabanka Evrópu í atvinnulíf í álfunni til þess að draga úr hættu á verðhjöðnun og frekari samdrætti og atvinnuleysi. Að líkindum er það fyrst og fremst hörð andstaða Þjóðverja sem setur Draghi stólinn fyrir dyrnar í þessu máli. Því er jafnvel haldið fram að hann muni hverfa úr stóli aðalseðlabankastjóra ESB og sækjast eftir embætti forseta Ítalíu þegar hinn 89 ára gamli Giorgio Napolitano dregur sig í hlé.
Úrillur Draghi
Þjóðverjar eru sagðir þreyttir á Draghi, hann er sakaður um að missa stjórn á skapi sínu, neiti að hlusta á andsstæð sjónarmið, útiloki seðlabankastjóra Þýskalands, Jens Weidmann og styðjist fyrst og fremst við þröngan hóp já-bræðra. Seðlabanki Evrópu er meðal þeirra banka þar sem fundargerðir stjórnarnefnda eru leynilegar og þess vegna hefur fjölmiðlafólk orðið að grafa upp eftir öðrum leiðum hvar skoðanir skerast í stjórn peningamála. Samkvæmt þýskum og breskum fjölmiðlum sem hér er vitnað til er mikil kergja hlaupin í deilur innan bankans um hvort og hversu hratt Seðlabanki Evrópu eigi að veita fé út í hagkerfið til að koma vélum þess í gang (kallað quantitative easing á ensku). Svokallaðir haukar, þeir sem harðast standa gegn slíkum lausatökum í peningamálum, koma frá Þýskalandi. Þannnig hefur Lautenschläger haldið því fram að hugmyndir Draghis um kaup seðlabankans á ríkisskuldabréfum jafnist á við bein fjárframlög bankans til ríkjanna, sem eru bönnuð í ESB, og að slíkt myndi bara auka hegðunarvanda í fjármálalífinu. Bankastjóri Bundesbank, Jens Weidmann, segir að lausatökin í peningamálunum séu þegar orðin of mikil fyrir aðstæður í Þýskalandi (jafnvel þótt þar í landi sé ekki spáð nema 1% hagvexti á næsta ári). Weidmann segir að nýleg olíuverðslækkun eigi að duga til að koma atvinnulífinu í gang og því eigi ekki að vera þörf á peningainnspýtingu frá Seðlabanka Evrópu.
Offramboð af skuldabréfum
Nú þegar er talsvert framboð af ríkisskuldabréfum á evrópskum fjármálamörkuðum vegna mikilla skulda ríkissjóðanna. Ítalir óttast að þetta mikla framboð muni leiða til verulegrar lækkunar á verði bréfanna á næstu árum. Tekist er meðal annars á um það hve langt Seðlabanki Evrópu eigi að ganga sem lánveitandi til þrautavara fyrir viðskiptabanka í álfunni sem gætu lent í erfiðleikum vegna mögulegs verðfalls á skuldabréfaeignum sínum.
Vatn á myllu evruandstæðinga
Svo virðist sem sjónarmið þeirra sem mest takast á séu annars vegar ættuð frá Ítalíu sem er stórskuldug og hins vegar frá Þýskalandi þar sem sparnaður hefur verið í fyrirrúmi undarnfarna áratugi. Draghi hefur látið í veðri vaka að hann gæti bara í krafti meirihluta keyrt yfir Þjóðverjana. Nýlegar fréttir benda þó ekki til þess að meirihlutinn að baki Draghis yrði rúmur, auk þess sem það myndi grafa mjög undan samstarfinu í Seðlabanka Evrópu ef aflsmunar yrði neytt gagnvart stærsta efnahagsveldinu í álfunni, Þýskalandi. Slíkt gæti orðið vatn á myllu evruandstæðinga í Þýskalandi í AFD-flokknum (Alternative fur Deutschland).
Nýjar stjórnarskrárdeilur í uppsiglingu
Jafnframt er minnt á að enn séu ekki allar lagaflækjur leystar fyrir stjórnarskrárdómstóli í Þýskalandi varðandi nýlega vegferð ESB og Seðlabanka Evrópu. Búist er við nýjum dómsmálum vegna áforma um peningaútflæði frá Seðlabankanum til stuðnings ríkissjóðum sem andstæðingar slíkra aðgerða segja að verði skuldbindandi fyrir skattgreiðendur og að það brjóti gegn sáttmálum og reglum í ESB. Sumir halda því jafnvel fram að ef Seðlabanki Evrópu myndi grípa til jafn stórtækra peningainnspýtinga og Draghi hefur boðað þá myndi þýski seðlabankinn, Bundesbank, koma í veg fyrir að slík framkvæmd næði að fullu fram að ganga í Þýskalandi.
Nauðsyn á sameiginlegri skattheimtu í ESB
Það er einmitt þarna sem hnífurinn stendur í kúnni þegar kemur að frekari samruna á evrusvæðinu. Ýmsir telja að til að evran eigi að hafa möguleika á því að standast til frambúðar verði að koma til sameiginleg ríkisstjórn, sameiginlegt skattlagningarvald og sameiginlegt stórríki - og að Seðlabanki Evrópu verði að geta gripið til stórtækra aðgerða til stuðnings gjaldmiðlinum. Þjóðverjar og fylgiríki þeirra standa fast gegn öllum slíkum áformum. Allar tilraunir til að velta vanda bankakerfisins yfir á skattgreiðendur eru eitur í þeirra beinum.
Það verður mjög fróðlegt að fylgjast með þróun þessara mála. Í fyrsta lagi hversu langlífur Mario Draghi verður á stóli seðlabankastjóra og í öðru lagi hvernig deilan á milli þeirra sem vilja annars vegar beita stífum aðhaldsaðgerðum og svo hinna sem vilja leyfa meiri lausatök í fjármálum kemur til með að þróast.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 6. desember 2014
Evrópubúar efins um fríverslunarsamning við Bandaríkin
Vaxandi efasemda gætir í Evrópu um þann fríverslunarsamning sem er í uppsiglingu á milli ESB og Bandaríkjanna. Meðal þess sem er gagnrýnt er að ríki geta verið skuldbundin til að greiða bandarískum fyrirtækjum skaðabætur ef breytingar á lögum í aðildarríkjum ESB verða til þess að draga úr ábata fjárfestinga bandarískra fyrirtækja í Evrópu.
Hafa þeir Íslendingar sem eru þess hvetjandi að Ísland gerist aðili að samningnum eitthvað velt þessu atriði fyrir sér?
Mbl.is segir svo frá:
Rúmlega ein milljón manna í ríkjum Evrópusambandsins hafa skráð nafn sitt í undirskriftasöfnun þar sem kallað er eftir því að hætt verði við fyrirhugaðan fríverslunarsamning sambandsins við Kanada og viðræður um fríverslun við Bandaríkin sett á ís.
Frá þessu er grein á fréttavefnum Euobserver.com en samkvæmt reglum Evrópusambandsins kallað það á formlegt svar frá framkvæmdastjórn sambandsins ef það tekst að safna einni milljón undirskrifta borgara þess.
Milljón gegn fríverslun við Bandaríkin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- Að kalla skóflu skóflu
- Ástæða til upprifjunar
- Meginforsenda brostin
- Skrýtin rök II
- Skrýtin rök I
- Norðmenn greina
- Barnaskapur
- Blóm í grjóthrúgu
- Á útlensku
- Annars hafið þið verra af
- Enn ríða hetjur um héruð
- Á hann að hafa skoðun á nokkrum sköpuðum hlut?
- Ætli hinir séu eins staðfastir?
- Meira lýðskrum
- Siggi flytur viðvörun frá Bretlandi
Eldri færslur
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.5.): 3
- Sl. sólarhring: 182
- Sl. viku: 1466
- Frá upphafi: 1120097
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 1221
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar