Leita í fréttum mbl.is

Evran heldur Ítölum og Frökkum í vanda

Samkeppnisstaða Ítala er slæm ef borið er saman við Þýskaland. Það er vegna þess að Þjóðverjum hefur tekist betur en Ítölum innan evrusamstarfsins að ráða við verðbólguna. Evran setur Frakka í svipaðan vanda og Ítali.

Um þetta má lesa í EUObserver - sjá hér.


Baldur prófessor vill fá meiri áhrif í ESB-málum

BaldurjaIsl

Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði telur að stjórnmálaflokkunum hafi mistekist að taka þannig á ESB-málunum að þeir auki líkurnar á því að Ísland gangi í ESB. Öðru vísi er varla hægt að skilja grein þá eftir hann sem birt er á visir.is. Baldur vill taka málið úr höndum stjórnmálamanna af því að hann telur að þá muni líkur aukast á því að Ísland gangi í ESB. 

Hvers vegna er hægt að skilja grein Baldurs með þessum hætti? Jú, vegna þess að hann telur að stjórnmálaflokkarnir hafi ekki verið almennt ginnkeyptir fyrir þeim ráðum sem hann og fáeinir aðrir þeir úr röðum fræðimanna sem hafa tekið ástfóstri við hugmyndina um Evrópusambandið og aðild Íslands að því hafa haldið fram. Baldur telur greinilega meiri líkur á því að ef málið verði tekið úr höndum stjórnmálamanna og sett beint í hendur almennings, eins og hann segir, að þá muni almenningur fremur fara að ráðum hans líka og samþykkja að fylgja þeim inn í ESB. 

 

Samfylkingin klikkaði, segir Baldur 

Það er annars einna merkilegast við þessa grein Baldurs að hann vænir Samfylkinguna um getuleysi. Sjálfur hefur hann verið fremstur í flokki ESB-sinna í Samfylkingunni. Hann er fræðimaðurinn sem hefur gefið Samfylkingunni ráð. Það var hann sem sagði að það ætti ekki að taka nema fáeina mánuði fyrir Ísland að gerast aðili að ESB eftir að sótt yrði um. Hver varð svo reyndin? Eftir um fjörutíu mánuði hafði umsóknin sem Baldur átti hvað stærstan þátt í að setja af stað steytt á skeri oftar en einu sinni og var orðin kyrfilega strand. Umsóknin sem byggð var á óskhyggju minnihluta stjórnmálamanna þoldi ekki praktíska pólitík.  

Þess vegna sakar Baldur félaga sína í Samfylkingunni um getuleysi. 

Er þetta ekki frekar spurning um að Samfylkingin hafi haft miður góða fræðilega leiðsögn á sinni vegferð í ESB-málunum? Kannski þarf meiri praktísk reynsla að liggja til grundvallar fræðilegum ráðleggingum en gert hefur til þessa. 

 

Almenningur er stundum á annarri skoðun en sérfræðingar - t.d. í Icesave-málinu 

Óskhyggja sérfræðingsins er að honum muni ganga betur að eiga við almenning en stjórnmálamenn. En hvernig varð reyndin í Icesave-málinu? Þar voru ýmsir sérfræðingar úr háskólasamfélaginu á borð við Baldur sem sögðu að Íslendingar yrðu að taka sig byrðar einkabankanna. Almenningur hunsaði þessar ráðleggingar fræðimannanna, en tvær þær eftirminnilegustu komu frá lektor og prófessor í viðskiptafræði og hagfræði. Sem þekkt er fór málið fyrir dómstól sem sagði almenning á Íslandi hafa á réttu að standa. Til þessa hefur almenningur lengstum viljað að Ísland verði fyrir utan ESB. Það er ekkert sem bendir til þess að breyting verði á því. 


"Barroso insisted that the Union expected Iceland to make up its mind fast"

Já, einmitt! Barroso sagði Gunnari Braga að gera upp hug sinn án tafar. Hvort ætlar þú að halda áfram að vera í aðlögunar- og umsóknarferli, vinur minn, eða hætta þessu alveg! Við getum ekki beðið! 

Þarf nokkuð fleiri vitna við? Svona er frásögn vefsins EurActiv:

 “It is in the interest of the EU and Iceland that the decision is taken on the basis of proper reflection, and in objective, serene manner,” the Commission president stated.

But Barroso insisted that the Union expected Iceland to make up its mind fast. 

 


Svona brást Stefan Fule við tilkynningu Gunnars Braga

Gunnar Bragi Sveinsson: „Herra Fule: Ég tilkynni þér hér með að Ísland ætlar að gera hlé á viðræðum um aðild að ESB.“

Stefan Fule: „Allt lagi, elsku besti vinur. Hafðu alveg þína hentisemi með þetta. Ég er alveg pollrólegur yfir því þótt okkur hafi tekist að setja umsóknarferlið út í fen. Við gerum ekkert í málinu og þið fáið aðlögunar-EPA-styrkina eins og ykkur lystir."

Trúir einhver öðru í alvöru en að blóðþrýstingurinn hafi hækkað talsvert hjá Stefáni Fule og öðrum þeim embættismönnum ESB sem sáu fram á það að fjögurra ára púl þeirra færi í vaskinn vegna getuleysis ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og ósveigjanlegrar afstöðu ESB í makrílmálum og öðrum sjávarútvegsmálum og landbúnaðarmálum?

Trúa því einhverjir í raun og veru að Fule og aðrir embættismenn hafi sagt það sama við Gunnar Braga og Sigmund og diplómatar ESB á Íslandi segja nú við fjölmiðla? 


Hvað myndi Brussel gera við loðnuflekkinn fyrir vestan?

Það er ansi hætt við því að loðnuflekkurinn og þau verðmæti sem í honum felast væru horfin áður en bjúrókratarnir í Brussel næðu að kynna sér málið, hvað þá að kalla saman þá fundi sem þarf til að fjalla um það.

Það er ansi hætt við að stjórnsýslan yrði þunglamalegri og verðmæti færu forgörðum ef við værum í ESB.

Eða hvað? 


Forsvarsmenn ESB slógu málið af

Í raun og veru slógu forsvarmenn ESB-umsóknina formlega af þegar þeir stöðvuðu IPA-styrkina. Svo einfalt er það. 
mbl.is Evrópusambandið vildi skýr svör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilyrði ymsóknar að ESB 2009 ekki uppfyllt

Það hefur farið framhjá ýmsum að umsókn Alþingis um aðild að ESB var skilyrt, enda sagði að við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skyldi ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag ogmeginhagsmuni sem fram komu í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Miðað við það sem fram kemur ískýrslu Hagfræðistofnunar og yfirlýsingum sérfræðinga sem unnu með stofnuninni er ljóst að ekki verður að óbreyttu haldið áfram með umsóknina þar sem ljóst er að ferlið uppfyllir ekki þau skilyrði sem sett voru.

Heimildin sem Alþingi veitt til umsóknar var því ekki opin. Í greinargerðinni sem fylgdi með umsókninni var fjallað um þá meginhagsmuni sem ekki átti að gefa eftir í samningaviðræðum. Meðal skilyrða sem sett voru í greinargerðinni voru yfirráð yfir sjávarauðlindinni, samningsforræði vegna skiptingar á veiði úr deilistofnum og að stuðningi við landbúnað yrði ekki raskað með afnámi tolla.

Miðað við þetta er ljóst að mögulegt áframhald viðræðna við ESB kallar óhjákvæmilega á að fyrirliggjandi þingsályktun yrði breytt þar sem ljóst má nú vera að í slíkum viðræðum yrði að falla frá því að þeir meginhagsmunir sem að framan greinir séu óumsemjanlegir. Það er í samræmi við niðurstöðu Hagfræðistofnunar sem telur að engar líkur séu á því að við fáum varanlegar undanþágur í líkingu við það sem Alþingi taldi að yrðu að vera fyrir hendi eins og fram kemur í þingsályktun og greinargerð Alþingis frá 16. Júlí 2009.

Miðað við þetta er því ljóst að viðræðum er sjálfhætt.


Ekki hægt að halda viðræðum áfram

Eftir skýringar fræðimanna á borð við Björgu Thorarensen og Ágúst Þór Árnason, og enn fremur í ljósi þess sem fram kemur í skýrslu Hagfræðistofnunar, er ljóst að það er ómögulegt að halda áfram viðræðum við ESB. Það er jafnframt ljóst ef miðað er við þau skilyrði sem sett voru með samþykkt Alþingis um umsóknina á sínum tíma.
 
Það verður því fróðlegt að sjá hvernig umræðan í utanríkismálanefnd verður.

mbl.is Tillagan gæti tekið breytingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2014
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 29
  • Sl. sólarhring: 39
  • Sl. viku: 913
  • Frá upphafi: 1232348

Annað

  • Innlit í dag: 27
  • Innlit sl. viku: 814
  • Gestir í dag: 26
  • IP-tölur í dag: 25

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband