Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, september 2018

Yfirmađur AGS útlistar vanda evrunnar í Hörpu

ThomsenPoul M. Thomsen, Daninn eitilharđi, sem saumađi saman efnahagsáćtlun međ íslenskum stjórnvöldum haustiđ 2008, fór síđan og gerđi ţađ sama í Grikklandi og Portúgal, og er nú yfirmađur Evrópumála hjá Alţjóđagjaldeyrissjóđnum, sagđi ađspurđur á fundi í Hörpu í dag ađ viđreisnin í Grikklandi hefđi veriđ miklu, miklu erfiđari en á Íslandi, ekki hvađ síst vegna ađildar Grikklands ađ evrusvćđinu.

Reyndar hefđi ađild Grikklands ađ evrusvćđinu átt stóran ţátt í ađ skapa hinn gígantíska skuldavanda sem orsakađi kreppuna ţar í landi međ of lágum vöxtum og of auđveldum ađgangi ađ lánsfé, en svo hefđi lausn vandans orđiđ miklu erfiđari ţar sem ekki var hćgt ađ fella gengiđ heldur ţurfti mjög sársaukafullar sparnađarađgerđir hins opinbera, svokölluđ innri gengisfelling, ađ koma til. 

Ţađ var líka athyglisvert Poul Thomsen sagđi ađspurđur ađ ţađ hefđi veriđ hagstćtt fyrir Íslendinga ađ vera međ sjálfstćđa peningastefnu og sveigjanlegt gengi


Á Ísland ađ taka upp orkulöggjöf Evrópusambandsins? Umrćđufundur í dag.

Hvers vegna?  Hvers vegna ekki? Skiptir valdaframsal til erlends ríkjasambands máli eđa ekki? Gerist eitthvađ ef Íslendingar afţakka Evrópulögin?

Ísafold, Herjan og Heimssýn bođa til opins fundar um orkumál í stofu HT105 á Háskólatorgi í Háskóla Íslands kl. 17.30 í dag, mánudaginn 10. september.

Fulltrúar ţingflokka munu ávarpa fundinn og opiđ verđur fyrir fyrirspurnir.

Allir velkomnir!

 

 

 


Hvernig borđar mađur fíl? Eins og ESB innlimar lönd!

orkubitinnStundum er sagt ađ leiđin til ađ ljúka stóru verki sé ađ taka lítil skref í einu og halda áfram. Ćtli mađur ađ borđa heilan fíl er ţví leiđin sú ađ taka einn bita í einu allt ţar til síđasti bitinn hefur veriđ innbyrtur.

Hugsunin er hin sama hjá ESB gagnvart EES-löndunum. Ţar komum viđ ađ spćgipylsu-ađferđinni sem sumir hafa umorđađ sem koníaksleiđ Monnet. Međfylgjandi mynd Helga Sig sem birt var í Morgunblađinu síđasta laugardag lýsir fyrirbćrinu best og óţarfi ađ fjölyrđa um ţetta frekar. Svo virđist ţó ćtla ađ fara ađ „orkubitinn“ muni standa í ýmsum og verđa öđrum tormeltur.


Sighvatur Björgvinsson vill ekki orkuyfirvald ESB hér á landi

SighvaturBSighvatur Björgvinsson, fyrrverandi iđnađarráđherra og formađur Alţýđuflokksins, skrifar í grein sem birt er í Morgunblađinu í dag ađ tilskipunin um ţriđja orkupakka ESB komi okkur nákvćmlega ekkert viđ og ađ hann beri ekki ađ innleiđa í lög hér á landi. Andstađan viđ orkupakka ESB fer ţví vaxandi og hefur skotiđ djúpum rótum međal krata hér á landi.


Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júlí 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 3
  • Sl. sólarhring: 331
  • Sl. viku: 1347
  • Frá upphafi: 1234043

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 1116
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband