Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2023

Umbúðalaus og galopinn

Einn stjórnmálaflokkur ætlar að fiska stuðning með því að fara í pakkaleik.  Það fer varla vel, því pakkinn er nefnilega umbúðalaus og galopinn.  Það er ekkert sérstakt sem brýnt er að rannsaka í tengslum við aðild að Evrópusambandinu, niðurstaðan liggur fyrir:  Evrópusambandið ræður.  Evrópusambandið setur og afnemur reglur að vild.  Það gerist ekki að undangengnu bænaskjali til Íslendinga eða annarra smáþjóða.  Bænaskjölin fara í hina áttina, frá smáþjóðunum til herranna, ef þau lenda ekki í sjónum á leiðinni. 

Hjörtur rifjar skilmerkilega upp:

https://www.visir.is/g/20232421022d/-thid-vitid-fullkomlega-hvad-er-i-pakkanum-

 


Það þarf ekki leyfi til að rabba

Öðru hverju er kallað á torgum um að það þurfi að greiða þjóðaratkvæði um eitthvað sem nefnt er „aðildarviðræður að Evrópusambandinu“. 

Það gefur auga leið að stjórnvöld geta rabbað við útlendinga án þess að bera slíkt undir þjóðaratkvæði á Íslandi.

Það sem þessir hávaðasömu menn í raun vilja er að Ísland óski eftir aðild að Evrópusambandinu með öllum þeim göllum sem því fylgja, sem og kostum ef einhverjir skyldu finnast.

Hætt er að við að svör þeirra sem hringt er í yrðu öðruvísi ef sannleikurinn væri sagður umbúðalaust.

 

 


Auðvitað þegja þeir

Ef Íslendingar væru þegnar í Evrópusambandinu hefði ekki verið um neitt að semja í flugskattsmálum.  Tilkynning um skattheimtuna hefði komið í tölvupósti frá Brussel. Ef Ísland væri í Evrópusambandinu væru menn nú að skipuleggja þrot flugfélaganna og búa sig undir hrun í ferðaþjónustu.

Ákafamenn um innlimun í Evrópusambandið þegja vitaskuld um málið.  Engum blaðamanni virðist heldur detta í huga að spyrja þá neins. 

 

 


Athyglisverður fundur fimmtudaginn 25. maí

Sú ánægjulega þróun hefur orðið að undanförnu að sífellt fleiri einstaklingar og hópar taka til máls til varnar íslensku samfélagi og fullveldi þjóðarinnar.  Þar má m.a. nefna Málfundafélagið frelsi og fullveldi sem stendur fyrir opnum fundi fimmtudagskvöldið 25 maí nk. Fundað verður á veitingahúsinu Catalínu í Hamraborg í Kópavogi kl. 19.30

Rætt verður um alþjóðastofnanir og alræmdan flugskatt. 

 

Málfundafélagið frelsi og fullveldi hefur Fasbókarsíðu sem er hér:

https://www.facebook.com/profile.php?id=100091052329469


Hver græðir á því?

Arnar Þór Jónsson talar skörulega í Morgunblaðinu í dag. Þegar EES-samningurinn var kynntur til sögunnar var rætt um efnhagssamvinnu, en alls ekki pólitískan samruna, þ.e. að Íslandi yrði formlega stjórnað af gömlu evrópsku nýlenduveldunum.  Hver græðir á því?

 

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2290556

 

Heimssýn er líka á Fasbók - gerist áskrifendur:
 

Enn ein blekkingin

Ögmundur Jónasson fv. ráðherra og reynslubolti í stjórnmálum, svo vægt sé til orða tekið, tekur bókun 35 til skoðunar sem og EES-samninginn í heild sinni, upphaf hans, þróun og framkvæmd.  Ögmundur segir m.a.: 

Í ljósi þessa tel ég að Íslendingar þurfi að skoða framtíðina varðandi EES og þá hvort þeir vilji áfram berast stjórnlaust með straumnum. Og vel að merkja, sá straumur gerist stöðugt stríðari. Sú skoðun að Íslendingar geti haft meiri áhrifinnan ESB en utan er enn ein blekkingin og þarf ekki annað en að skoða ferli ákvarðana í ESB til dæmis varðandi aðkomu ríkja að félagslega skuldbindandi alþjóðlegum viðskiptasamningum; samningum sem hafa stögugt meira vægi í skipulagi samfélaganna. Slíkir samningar reynast í sífellt ríkari mæli hvíla á forsendum alþjóðlegs auðvalds.

Það er auðvitað rétt hjá Ögmundi að það er tóm blekking að halda því fram að Íslendingar hefðu einhver áhrif á Evrópusambandið ef þeir væru þar innanbúðarmenn.  Greinargóð og athyglisverð umsögn Ögmundar er hér:

https://www.althingi.is/altext/erindi/153/153-4635.pdf

 

 


Úr iðuköstum hins daglega lífs

Ástæða er til að láta ekki greinargerð Arnars Þórs Jónssonar til Alþingis í tengslum við bókun 35 fljóta of hratt burt í iðuköstum hins daglega lífs.  Þar er nefnilega margt sem gott er að hafa í huga.

Arnar Þór fjallar m.a. um lagasmíð Evrópusambandsins (og um leið sum lög sem gilda á Íslandi).  Hann bendir á að ferlið í reglusetningunni sé ógagnsætt og fáum skiljanlegt.  Embættismenn, sérfræðingar og alls kyns „lobbyistar“ hafi mest um innihaldið að segja en að lýðræðislega kjörnir fulltrúar komi aðeins að málum á lokastigum.  Þá upplýsir Arnar Þór að fundir ráðherraráðsins, sem hér um höndlar, séu haldnir á bak við luktar dyr, án þess að haldnar séu opinberar fundargerðir, enginn utanbúðarmaður viti hvar þar sé sagt og því síður hvernig atkvæði séu greidd, séu þau greidd.  Flest málin fari annars í gegn án nokkurrar umræðu.

Allt er þetta með miklum ólíkindabrag, en enn skrýtnara er þó að nokkur maður vilji að lög á Íslandi verði sett með þessum hætti.

 

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2290139/

 

Heimssýn er líka á Fasbók - gerist áskrifendur: 

https://www.facebook.com/groups/heimssyn

 


Áminning um stefnuna

Þeir sem fylgjast með stjórnmálum hafa veitt því eftirtekt að sífellt meira vald færist frá aðildarríkjum Evrópusambandsins til miðstjórnar sambandsins.  Einu sinni var um að ræða samband fullvalda ríkja, en nú er réttara að tala um fullvalda samband aðildarríkja.  Tilfærsla á valdi frá aðildarríkjunum hentar þeim stærstu best, en þau hin smærri missa sjálfstæði sitt.  Ekkert af þessu eru nýjar fréttir, þetta hefur verið opinber stefna í mörg ár.  

Stundum gleymist það, en Hjörtur minnir okkur á. 

 

https://www.visir.is/g/20232416141d/minnast-ekki-a-lokamarkmidid


Um hvað var samið?

Heimssýn sendir bréf:

Til forsætisráðuneytisins

Upplýsingar í fjölmiðlum og á blaðamannafundi Katrínar Jakobsdóttur og Úrsúlu von der Leyen 16. maí sl. má túlka á þann veg að frestun svokallaðs flugskatts sé sameiginleg niðurstaða fulltrúa Íslands og Evrópusambandsins, semsagt hluti af samkomulagi, frekar en einhliða ákvörðun Evrópusambandsins að fresta gjaldtökunni.

Heimssýn óskar góðfúslega að fá upplýsingar um öll efnisatriði fyrrgreinds samkomulags og afrit samnings, ef um slíkt er að ræða.

Með fyrirfram þökk

Haraldur Ólafsson

Formaður Heimssýnar

 

 

 


Og hvað svo?

Jæja, það náðust samningar um að fresta flugskattinum til ársloka 2026.  Og hvað þá?  Hvað mun Evrópusambandinu þóknast að leggja háan skatt á flug út til Íslands frá 1. janúar 2027?  Hann gæti þurft að verða afar hár til að sannfæra menn um að ferðast öðruvísi, eins og hugmyndin er á meginlandi Evrópu þar sem menn velja á milli lestar, rútu og flugs. 

 

https://www.visir.is/g/20232416041d/islandi-fai-afram-friar-flugheimildir-til-2026

 

Heimssýn er líka á Fasbók - gerist áskrifendur: 

https://www.facebook.com/groups/heimssyn


Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 74
  • Sl. sólarhring: 240
  • Sl. viku: 1039
  • Frá upphafi: 1117962

Annað

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 910
  • Gestir í dag: 53
  • IP-tölur í dag: 45

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband