Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2019

Dagur íslenskrar tungu

Líklega telur allur þorri kjósenda á Íslandi að löggjafinn eigi að hlúa að íslensku. Aðgerðir þar að lútandi eiga sér djúpar rætur í samfélaginu.

Fátt bendir til þess að allur þorri kjósenda í gömlu evrópsku stórveldunum hafi sérstaka samúð með tungum smáþjóða.  Óvíst er að viðleitni Evrópuráðsins og fleiri til að rækta menningu og tungu smáþjóða eigi djúpar rætur meðal almennra borgara sem ekki eru hluti af smáþjóð.  Í svoleiðis rótleysi getur ræktarsemi yfirvalda við smáþjóðir fokið burt næst þegar vindur snýst.    

Heimssýn óskar íslensku velfarnaðar á degi íslenskrar tungu. 

 

https://theconversation.com/russia-is-cracking-down-on-minority-languages-but-a-resistance-movement-is-growing-101493

 


Heimssýn mótmælir EES-áróðri Stjórnarráðsins

Yfirlýsing frá Heimssýn um EES-myndbönd Stjórnarráðs Íslands

Stjórnarráðið hefur látið gera og birt myndbönd um Samninginn um evrópska efnahagssvæðið.  Myndbönd þessi eru undarleg og vægast sagt vafamál að rétt sé að greitt sé úr ríkissjóði fyrir efni af því tagi sem þar er.  Í myndböndunum er fjallað um margt sem flestir telja jákvætt, svo sem sjúkratryggingar, nám í útlöndum, verslun við önnur Evrópulönd, öryggiskröfur, greiðslumiðlun, vinnuvernd og umhverfismál svo nokkuð sé nefnt.  Ýmist er sagt berum orðum, eða gefið sterklega í skyn, að mál þessi, og fleiri, væru í ólestri ef ekki væri EES-samningur.  Flestir sem til þekkja gera sér grein fyrir að engin ástæða er til að ætla að svo væri, en svo virðist sem myndböndunum sé ætlað að ná til þeirra sem þekkja síður til, í því skyni að sannfæra þá um að EES-samningurinn sé upphaf og endir flestra hluta, þó svo ekkert hafi komið fram sem bendi til að svo sé.       

Heimssýn hvetur til skynsamlegrar umræðu um raunverulega kosti og galla EES-samningsins og þá valkosti sem við hann kunna að vera.  Myndböndin sem hér um ræðir komast hvergi nærri því að vera framlag í slíka umræðu.  Þau eru einhliða áróður, þar sem EES-samningurinn er kynntur með stolnum fjöðrum.  Þau eru móðgun við upplýsta umræðu, íslensku þjóðina, og Stjórnarráðinu til lítils sóma.

 

sgn-ees-heimssyn


Niðurstaðan verður alltaf sú sama: Ísland tapar

Bakþankar Fréttablaðsins kyrjuðu gamalkunnan söng um að fullveldissinnar væru fullir ranghugmynda.  Að venju voru engin rök sem hönd á festir.  Af því tilefni rifjar formaður Heimssýnar upp að það er er sama hvort lýðræði er mikið eða lítið, hagsmunir Íslendinga munu alltaf verða fyrir borð bornir innan erlends stórveldis eða ríkjasambands.

 

https://www.frettabladid.is/skodun/ef-vel-er-leita-mun-sjalfsagt-vera/


Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 8
  • Sl. sólarhring: 117
  • Sl. viku: 663
  • Frá upphafi: 1133183

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 600
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband