Leita í fréttum mbl.is

UMSÓKNIN HEFUR VERIĐ AFTURKÖLLUĐ SEGIR GUNNAR BRAGI

Íslendingar hafa afturkallađ umsóknina um inngöngu í ESB međ sérstöku bréfi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráđherra til forystu ESB í dag.

Frá ţessu var sagt í fréttum RUV rétt í ţessu.

Sjá nánar á vef utanríkisráđuneytisins.

 

RUV segir svo frá:

Ríkisstjórnin hefur samţykkt ađ hún hafi ekki í hyggju ađ taka upp ađildarviđrćđur viđ Evrópusambandiđ á nýjan leik. Ríkisstjórnin lítur svo á ađ Ísland sé ekki lengur í hópi umsóknarríkja og hefur fariđ ţess á leit viđ ESB ađ sambandiđ taki hér eftir miđ af ţví.
 
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráđherra afhenti nú rétt klukkan sex ađ íslenskum tíma formanni ESB, sem er utanríkisráđherra Lettlands, bréf ţess efnis. Ţetta kom fram í kvöldfréttum útvarps.
 
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttamađur, rćddi viđ Gunnar Braga nú skömmu fyrir klukkan sex. „Viđ teljum ađ ţessu máli sé lokiđ og ef menn vilja sćkja um ađ nýju ţá verđi ađ leita til ţjóđarinnar,“ segir utanríkisráđherra.
 
Gunnar Bragi segir ađ ţeir hafi veriđ í samskiptum viđ ESB undanfarnar vikur. Fundurinn í dag hafi veriđ góđur, báđir ađilar hafi skilning á ţessari stöđu og ţetta sé leiđ sem sé eđlileg. „Ţeir ţekkja ferliđ sem hefur veriđ í gangi á Íslandi - ţetta er í rauninni bara „common sense“ - ef mađur leyfir sér ađ sletta.“
 
Gunnar Bragi segir ađ bréfiđ útskýri stöđuna. „Ţađ sjá ţađ allir ađ máliđ er komiđ á endastöđ.“ Hann segir viđrćđurnar hafa veriđ búnar, ekkert hafi gerst í langan tíma. „Viđ erum bara ađ loka ţessu ferli,“ segir ráđherra.

Evrusvćđiđ er skrímsli segir framúrskarandi hagfrćđingur

piketty_capitalHinn heimskunni franski hagfrćđingur, Thomas Piketty, sem skrifađi eina víđlesnustu hagfrćđibók síđustu áratuga, Auđmagn á 21. öldinni, segir í viđtali viđ ţýska tímaritiđ Spiegel ađ ESB hafi skapađ skrímsli međ ţví ađ koma evrukerfinu á fót. Ţađ gangi ekki ađ 19 lönd međ mismunandi skattakerfi og ólíka ríkisfjármálastefnu reki sameiginlegan gjaldmiđil. Evran sé ein af ástćđunum fyrir erfiđleikum Grikklands.

Sjá hér nánari upplýsingar um Piketty.

Sjá hér vefsíđu Der Spiegel.

 


Stórtíđinda ađ vćnta frá Gunnari Braga?

Ţađ verđur fróđlegt ađ heyra hvađ Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráđherra hefur sagt í dag á fundi í Slóvakíu međ utanríkisráđherrum Evrópulanda.

Mun hann tilkynna um einhliđa afturköllun umsóknar um inngöngu í ESB?

Evrópuvaktin vekur athygli á ţessu. 


Eru menn eitthvađ ađ hangsa?

jon_bjarnason_1198010Nú fer ađ líđa sá frestur sem ríkisstjórnin hefur til ađ leggja fyrir yfirstandandi Alţingi tillögu til ţingsályktunar um ađ draga til baka umsókn um inngöngu í ESB. Jón Bjarnason, formađur Heimssýnar, bendir í bloggi sínu á ađ 26. mars er síđasti dagurinn til ađ leggja mál fyrir ţingiđ sem eiga ađ afgreiđast á ţessu voru.

Formenn beggja ríkisstjórnarflokkanna hafa lýst ţví yfir ađ tillaga komi fyrir ţingiđ um formlega afturköllun umsóknarinnar um inngöngu í Evrópusambandiđ, segir Jón. Bćđi Sjálfstćđisflokkur og Framsóknarflokkur eru međ skýrar landsfundarsamţykktir ađ baki sér um afturköllun umsóknarinnar.

Ţá segir Jón:

Ísland er formlegt umsóknarríki međan umsóknin stendur inni og alţingi hefur ekki afturkallađ hana. Hún stendur sem stefna ţings og ríkisstjórnar á opinberum vettvangi ţangađ til ađ hún hefur veriđ afturkölluđ af ţeim sömu stjórnsýsluađilum og samţykktu ađ senda hana inn.

26. mars nálgast. Fyrir ţann tíma hafa bćđi formenn ríkisstjórnarflokkanna og utanríkisráđherra lofađ ađ tillagan um afturköllun komi fyrir ţingiđ.

Brostinn er verulegur flótti í liđ hörđustu ESB sinnanna. Fyrir stjórnarflokkana er ađ fylgja eftir samţykktum sínum.

 


Linnulausar erfiđleikafréttir af ESB og evrunni

Fréttir af ýmsum erfiđleikamálum ESB og evrunnar berast nú í stríđum straumi. Hér eru ađeins nokkur dćmi:

- Grikkir eru í stöđugu strögli út af samvinnu viđ ESB um efnahagsađgerđir.

- Ráđherra í Grikklandi hótar ađ selflytja alla flóttamenn sem koma til Grikklands beint til Ţýskalands ef Ţjóđverjar halda áfram ađ standa í vegi fyrir Grikkjum.

- Grikkir hóta ađ láta almenning í landinu taka ákvörđun í ţjóđaratkvćđagreiđslu um til hvađa efnahagsađgerđa verđi gripiđ. Grískur almenningur myndi láta sjónarmiđ ESB-forystunnar ađ miklu leyti lönd og leiđ.

- Juncker vill stofna ESB-her. Lengi vel sögđu friđarsinnar í ESB ađ ţađ kćmi aldrei til greina.

- Bćndum í Finnlandi fćkkar vegna inngöngu Finna í ESB og framleiđsla leggst af ađ einhverju leyti.

- Á Íslandi segir Guđfađir ESB-umsóknarinnar ađ ESB-máliđ á Íslandi sé dautt.

- Einn helsti talsmađur ESB-ađildar úr háskólasamfélaginu segir ađ ESB-máliđ ţvćlist fyrir velferđarvinnu vinstri flokkanna.

- Árni Páll segir ESB vera efnahagslega í tómu tjóni.

 

- Er ekki nóg komiđ? Tími til ađ afturkalla umsóknina formlega?


mbl.is Vill sameiginlegan her innan ESB
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sigrún Magnúsdóttir ryđur nýja EES-braut

SigrunMagnusdottirSegja má ađ Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráđherra hafi rutt nýja braut ţegar kemur ađ vinnslu EES-reglna hér á landi međ ummćlum sínum um ţýđingu reglna yfir á íslensku. Nú eru flestir orđnir sammála um ađ mun meira svigrúm sé viđ innleiđingu reglnanna en áđur var taliđ.

Hallur Magnússon er einn ţeirra. Stjórnvöld ţurfa greinilega ađ endurskođa innleiđingarferliđ, allt frá túlkun til ţýđingar og framkvćmdar.


Árni efast enn og aftur um ESB

Ýmsir ţeir sem fremst hafa fariđ fyrir ţeim sem hafa stutt inngöngu Íslands í ESB efast nú um ađ stefna ţeirra sé rétt. Árni Páll Árnason, formađur Samfylkingarinnar, segir á fésbókinni sinni í gćr sem Evrópuvaktin vitnar í: ,,Ef menn velta ekki fyrir sér stöđunni í ljósi hrikalegs vanda margra ríkja á evrusvćđinu, ...., Icesavemálsins ....og minna svigrúms evruríkja til ađ reka útgjaldasama ríkisfjármálastefnu á erfiđleikatímum - ja ţá held ég alla vega ađ ţeir séu ekki alveg í jarđsambandi."

Árni er ekki sá eini sem efast, ţví Jón Baldvin hefur haft uppi svipuđ orđ sem og Stefán Ólafsson. Svo segir Össur Skarphéđinsson frá ţví ađ hann hafi ákveđiđ ađ segja brandara á Iđnţingi í stađ ţess ađ tala um ESB. Og honum líđi bara snöggtum betur!


Árni Páll ítrekar í viđtali efasemdir um ESB

Árni Páll Árnason, formađur Samfylkingarinnar, ítrekar efasemdir sínar um Evrópusambandiđ og evruna og er tilbúinn til ađ skođa ađra kosti til ađ auka hagsćld og lífsgćđi Íslendinga.

Ţetta kom fram í máli Árna Páls í viđtali viđ Pál Magnússon á sjónvarpsstöđinni Hringbraut í gćr, en greint er frá efni viđtalsins á vef stöđvarinnar.

Sjá einnig á Eyjunni.

 


mbl.is Árni Páll efast um ESB og evruna
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Mars 2015
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 51
  • Sl. sólarhring: 154
  • Sl. viku: 1532
  • Frá upphafi: 1232142

Annađ

  • Innlit í dag: 50
  • Innlit sl. viku: 1366
  • Gestir í dag: 50
  • IP-tölur í dag: 50

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband