Leita í fréttum mbl.is

Dagur öryggis

Dagur B. Eggertsson leitar í örvæntingu að ástæðu fyrir því að ganga í Evrópusambandið og hann kemst að því í nýlegri Moggagrein að Íslendingar verði fyrst öruggir þegar þeir gerast þegnar í sambandinu.

Af lagni tekst honum að skauta framhjá þeirri grundvallarstaðreynd að Íslandi er á áhrifasvæði Bandaríkjanna og Breta.  Þau veldi munu aldrei líða að ríki þeim fjandsamlegt fengi fótfestu á Íslandi.

Ekki segir hann heldur neitt um að stríðsæsingur valdamanna í Evrópusambandinu er meiri en hann hefur verið í mannsaldur.  Sambandið ætlar að vígvæðast fyrir himinháar upphæðir, enda er það í blóðugu stríði í A-Evrópu.  Allt bendir til þess að Íslendingar hafi minni en engan áhuga á því að borga þann reikning, enda væri jafngott, ef ekki betra, að sturta þeim peningum í sjóinn.


Sigurbjörn sprengir

Sigbjörn Svavarsson skrifar grein í Vísi í dag um EES-samninginn.  Hann er í stuttu máli veginn, metinn og léttvægur fundinn.  Sú niðurstaða, sem líklega er nokkuð rétt, er í raun sprenghlægileg í ljósi þess að hópur manna trúir því að Íslendingar dragi andann í gegnum þennan samning og landauðn væri, nyti hans ekki við. 

Það er kominn timi til að kanna hvað þessi samningur kostar Íslendinga.  Það er nefnileg ekki ókeypis að framfylgja öllum fyrirmælum Evrópusambandsins sem berast í stríðum straum út til Íslands frá Brussel.

https://www.visir.is/g/20252720910d/hver-er-vidskiptalegur-avinningur-af-ees-samningnum-


Meginmálið 1. maí

Heimssýn færir alþýðu Íslands bestu kveðjur og minnir á að til skemmri og lengri tíma er stærsta hagsmunamál launþega og allra annarra Íslendinga að geta valið sér stjórnendur sem stjórna í umboði fólksins í landinu og engra annarra.


« Fyrri síða

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 186
  • Sl. sólarhring: 321
  • Sl. viku: 1180
  • Frá upphafi: 1221392

Annað

  • Innlit í dag: 168
  • Innlit sl. viku: 1039
  • Gestir í dag: 164
  • IP-tölur í dag: 157

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband