Leita í fréttum mbl.is

Um hvað var samið?

Heimssýn sendir bréf:

Til forsætisráðuneytisins

Upplýsingar í fjölmiðlum og á blaðamannafundi Katrínar Jakobsdóttur og Úrsúlu von der Leyen 16. maí sl. má túlka á þann veg að frestun svokallaðs flugskatts sé sameiginleg niðurstaða fulltrúa Íslands og Evrópusambandsins, semsagt hluti af samkomulagi, frekar en einhliða ákvörðun Evrópusambandsins að fresta gjaldtökunni.

Heimssýn óskar góðfúslega að fá upplýsingar um öll efnisatriði fyrrgreinds samkomulags og afrit samnings, ef um slíkt er að ræða.

Með fyrirfram þökk

Haraldur Ólafsson

Formaður Heimssýnar

 

 

 


Og hvað svo?

Jæja, það náðust samningar um að fresta flugskattinum til ársloka 2026.  Og hvað þá?  Hvað mun Evrópusambandinu þóknast að leggja háan skatt á flug út til Íslands frá 1. janúar 2027?  Hann gæti þurft að verða afar hár til að sannfæra menn um að ferðast öðruvísi, eins og hugmyndin er á meginlandi Evrópu þar sem menn velja á milli lestar, rútu og flugs. 

 

https://www.visir.is/g/20232416041d/islandi-fai-afram-friar-flugheimildir-til-2026

 

Heimssýn er líka á Fasbók - gerist áskrifendur: 

https://www.facebook.com/groups/heimssyn


Evrópusamband í stríðsham

Menn kunna að hafa ýmsar skoðanir á hernaði, vígbúnaði og stíðsrekstri, en það er á hinn bóginn erfitt að hafa skoðun á þvi hvert hugur stjórnenda Evrópusambandsins stefnir í þeim málum.  Sambandið vill meiri vígbúnað og leggur þrýsting á aðildarríkin í þá átt.  Annað má skera niður.  

 

Í hjálagðri grein eftir Thomas Fazi segir m.a.:

"Just last week, the European Commission announced its billion-euro plan to increase Europe’s capacity for producing ammunition to send to Ukraine, for which member states will have to contribute up to a billion euros — yet another step in Europe’s “switch to war economy mode”, as commissioner Thierry Breton put it. In other words, European countries will soon be required to cut back on social welfare and crucial investment in non-defence-related areas in order to finance the EU’s new defence economy — we might call this military austerity — in the context of the bloc’s increasingly vassal-like subordination to US foreign policy."

 

https://unherd.com/2023/05/the-rise-of-europes-military-austerity/

 

Heimssýn er líka á Fasbók - gerist áskrifendur: 

https://www.facebook.com/groups/heimssyn

 

 

 


Að koma samskiptum við þær þjóðir sem eftir eru í Evrópusambandinu í góðan farveg

Heimssýn hefur sent Alþingi eftirfarandi umsögn: 

Heiðraða Alþingi

Löggjafarvald á Íslandi er samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins í höndum Alþingis og forseta sem eru kjörnir af fólkinu í landinu.  Engu að síður hefur sá háttur verið á um nokkurt skeið að lög sem samin hafa verið af erlendu ríkjasambandi hafa verið gerð að lögum á Íslandi, að heita má umræðulaust.  Er þá iðulega horft framhjá því hvort umrædd lög henti á Íslandi eða hvaða kostnað þau hafi í för með sér.  Þrátt fyrir að íslenska ríkið hafi samkvæmt samningi fulla heimild til að hafna því að setja lög með þessum hætti virðist svo vera að aðilar innan stjórnkerfis landsins og sumir stjórnmálamenn telji að slík höfnun kalli á svo harðar aðgerðir af hálfu hins erlenda ríkjasambands að heimildin til að hafna löggjöf sé ekki til staðar í raun.  Þetta er einkennileg staða og vandséð er að þetta fyrirkomulag standist stjórnarskrá.  Vinnubrögðin sem hér er lýst eru hættuleg hagsmunum Íslendinga og ganga gegn hugmyndum þorra fólks um lýðræði.

Frá því fyrrgreint fyrirkomulag tók gildi hefur hið erlenda ríkjasamband teygt arma sína inn á sífellt fleiri svið samfélagsins með ýmsum hætti.  Má þar nefna löggjöf um orkumál, dóm um innflutning á ófrosnu kjöti og hægfara eyðing á hinu tveggja stoða kerfi EFTA og Evrópusambandsins.  Svo mætti áfram telja.  Allt það veldur því að núverandi fyrirkomulag fjarlægist enn meira ramma stjórnarskrárinnar.

Nú liggur fyrir frumvarp sem hnykkir á forgangi laga sem eiga uppruna sinn í lögum frá Evrópusambandinu og fjallar einnig um stjórnvaldstilskipanir af sama tagi.  Hið síðarnefnda er undarlegt og til þess fallið að auka flækjustig stjórnkerfisins.  Hér er á ferðinni skref í átt að tilfærslu valds frá lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum á Íslandi til Evrópusamandsins sem erfitt er við að una.  

Heimssýn telur að best sé að leggja fyrrgreinda bókun 35 til hliðar og hefjast þegar í stað handa við að koma samskiptum Íslands við þær þjóðir sem eftir eru í Evrópusambandinu í þann farveg að hagsmunir Íslendinga séu sem best tryggðir, án þess að fullveldi landsins sé skert eða fargað.


Kópavogsfundur hinn síðari

Umsagnir um hina svokölluðu bókun 35 streyma nú til Alþingis og eru birtar á Alþingisvefnum.  Þar kennir ýmissa grasa.  Skúli heitir lögmaður og er Sveinsson.  Hann er skýr og kjarnyrtur.  Skúli segir m.a.: 

Hið raunverulega lagasetningarvald hefur því fallið í hendur ókjörinna aðila sem þurfa ekki að standa og falla með verkum sínum gagnvart fólkinu enda er starfsemi framkvæmdastjórnarinnar hulin leyndarhjúp og er að meginstefnu til andlitslaus. Lagafrumvörpin sem frá framkvæmdastjórninni koma eru svo þess eðlis að þau eru gríðarlega flókin og svo mjög að það er ekki nema á færi helstu sérfræðinga að skilja þau að fullu. Lagamál Evrópusambandsins er jafnframt orðin að einhverskonar latínu nútímas sem almenningur á erfitt með að skilja. Jafnframt eru lögin þeim annmörkum háð að þau eru mjög matskennd þar sem hugtök eins og „viðeigandi" eru notuð, sem aftur leiðir til þess að eftirlitsstofnunum er falið að útfæra hvaða skilning á að leggja í reglurnar. Lögin uppfylla því ekki það grunnskilyrði að vera aðgengileg né auðskiljanleg fyrir borgarana, heldur eru þau matskennd og háð frekari túlkun og útfærslu embættismanna.

Samlíkingin við Kópavogsfundinn forðum verður sífellt skýrari.

https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalin/erindi/153/890/?ltg=153&mnr=890

 

 

 


Ófullburða og vanhugsað

Arnar Þór Jónsson hefur sent frá sér skýran og hvassan bálk um það sem nefnt hefur verið bókun 35 og er frumvarp til laga um forgang laga og stjórnvaldstilskipana sem eiga rætur í Evrópusambandinu. 

Arnar Þór er þeirrar náttúru að segja hlutina umbúðalaust.  Hann hefur nefnilega áttað sig á því að umræða verður ávallt í skötulíki ef öllu er pakkað svo vel inn að engin leið sé að sjá innihald.  

Arnar Þór segir, réttilega, að frumvarpið sé ófullburða, vanhugsað og ef þingmenn mundu samþykkja það mætti jafna því við ólögmæta yfirtöku ríkisvalds. Það eru stór orð, en sönn.

 

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2290139/

 


Platið mikla

Fyrir tæpum þremur áratugum afþökkuðu Norðmenn innlimun í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í aðdraganda hennar hótuðu aðildarsinnar fátækt, himinháum vöxtum, ófrelsi og útskúfun úr samfélagi þjóðanna ef Norðmenn samþykktu ekki að ganga bandalaginu á hönd.

Norðmenn afþökkuðu samt, allar dómsdagsspárnar reyndust bull og vitleysa og spámennirnir hafa farið með veggjum síðan. Þennan sama söng kyrja samt nokkrir íslenskir stjórnmálamenn í sífellu, í von um að fréttir af platinu mikla í Noregi berist ekki til Íslands.

Hjörtur J. Guðmundsson fer skilmerkilega yfir stöðuna í Noregi.

https://www.fullveldi.is/?p=28325

 

Heimssýn er líka á Fasbók - gerist áskrifendur: 

https://www.facebook.com/groups/heimssyn


Væru 200 milljarðar ekki betri tala?

Fréttir hafa borist af því að Evrópusambandið hyggist skattleggja flug til Íslands.  Lausleg athugun bendir til þess að upphæðin sé um 20 milljarðar.  Engum datt í hug fyrir aldarfjórðungi, þegar EES komst í gagnið, að sá samningur yrði slík mjólkurkýr fyrir Evrópusambandið.  Sjálfsagt hefur einhverjum þar á bæ dottið í hug að innheimta 200 milljarða, en ekki 20, en hófsemdin haft sigur, í bili a.m.k.    


« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2023
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 457
  • Frá upphafi: 1121177

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 410
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband