Leita í fréttum mbl.is

Grikkir enn í standandi vandræðum

Fréttir frá Grikklandi bera enn með sér að þeir séu í standandi vandræðum. Það er líka óróleiki á Ítalíu og í Portúgal.  

Viðskiptavefur dagblaðsins Berlingske segir að tillögur Grikkja verði að liggja fyrir á föstudaginn því fjármálaráðherrar evrulandanna þurfi að fara yfir þær og ræða á fundi á mánudaginn kemur.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Grikkir verða að hafa hraðar hendur til að forða þjóðargjaldþroti en nú þarf gríski ríkissjóðurinn að fá neyðarlán upp á 8,1 milljarða evra til að geta meðal annars endurfjármagnað lán upp á 2,2 milljarða sem er á gjalddaga í ágúst.

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn gæti neyðst til að hætta lánveitingum til Grikkja ef Grikkjum tekst ekki að sýna fram á fjármögnun reksturs ríkissjóðs næstu 12 mánuði en lánareglur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins kveða á um að slík áætlun verði að liggja fyrir.

Ofangreint kemur fram á fréttavefnum Eyjan.is 


Nú sambandið er sett á ís af Sigmundi og Bjarna

ísÍs er vinsæll þessa sumardaga. Frægur er ísbíltúr forsætisráðherra fyrir kosningar. ESB-umsóknin er kominn í ís. Fljótlega eftir stjórnarskiptin var tilkynnt um 17 ný umferðarmerki, en þar á meðal er merki sem vísar á staði þar sem ís er framleiddur og seldur.

Í raun hafði fyrri ríkisstjórn sett umsóknina í kælingu og ekkert tekið á erfiðustu málunum, enda leist fólki líklega ekkert á þróun ESB í átt til stórríkis, þróun sem verður æ skýrari með degi hverjum.

Þá er spurning hvort ekki sé við hæfi þessi fyrripartur, sem einhver lesandi gæti kannski verið svo góður að botna:

Nú sambandið er sett á ís,
af Sigmundi og Bjarna.
...........
...........

Í gær var fyrriparti kastað fram um atvinnuleysið í ESB og komu tveir lesendur með seinnipart:

Atvinnu í e ess bé,
enga er að fá.
Samt mun ómælt styrktarfé
streyma þaðan frá.


Atvinnu í e ess bé,
enga er að fá.
Ungir eiga ekkert fé
og aldnir fara frá.


Getur einhver botnað fyrripart um atvinnu í e ess bé?

Það eru engar nýjar fréttir að atvinnuleysið sé að aukast í ESB. Um 25 milljónir manna eru án atvinnu, eða ríflega 12% af vinnuaflinu. Verst er ástandið meðal ungs fólks.

Það er því spurning hvort þessi fyrripartur eigi ekki við - og spurning hvort einhver geti botnað?

Atvinnu í e ess bé,
enga er að fá.

............

...............


mbl.is 24,4 milljónir án vinnu innan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júlí 2013
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 161
  • Sl. viku: 742
  • Frá upphafi: 1232513

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 637
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband