Leita í fréttum mbl.is

Ragnheiður Ríkharðsdóttir túlkar alls ekki stefnu ríkisstjórnarinnar í ESB-málinu

Ragnheiður Ríkharðsdóttir túlkar ekki stefnu ríkisstjórnarinnar í ESB-málum. Birgir Ármannsson segir alveg skýrt hver stefna stjórnarinnar er og þeir sem segi annað séu einfaldlega að lýsa eigin skoðunum.

Visir.is ræðir við Ragnheiði, sem lengst af hefur haft aðra skoðun í þeim málaflokki en þorri Sjálfstæðismanna. Skoðanir ennar í  ESB-málum hafa lengst af legið nær stefnu Samfylkingarinnar, enda er skiljanlegt þegar pólitískar rætur Ragnheiðar liggja meðal annars í Bandalagi jafnaðarmanna á sínum tíma.

Birgir Ármannsson er jafnan mjög málefnalegur og skýr í sinni framsetningu. Hann segir í viðtali við mbl.is í dag:

,,Hann bætir við að í þessu felist að viðræðunum við Evrópusambandið hafi verið hætt en ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald málsins hafi ekki verið tekin. Hvorki hvort af slíkri atkvæðagreiðslu verði á þessu kjörtímabili né hvenær. Þeir sem setji fram annan skilning á málinu séu einfaldlega að lýsa eigin skoðunum en hvorki stefnu ríkisstjórnarinnar né flokkanna sem að henni standi." (Undirstr. Heimssýn).

Birgir segir einnig:

„Mér finnst rétt að því sé haldið til haga í þessari umræðu að báðir ríkisstjórnarflokkarnir tóku þannig til orða í landsfundarályktunum sínum að aðildarviðræðunum skyldi hætt og að þeim yrði ekki haldið áfram nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Það var mjög svipað orðalag í báðum ályktununum hvað þetta varðaði. Það endurspeglaðist í ríkisstjórnarsáttmálanum frá í maí og eftir þeirri stefnu hefur verið unnið.“


Birgir Ármannsson útskýrir stöðuna í ESB málum enn frekar

Birgir Ármannsson alþingismaður útskýrir hér stöðuna gagnvart ESB. Viðræðum er hætt. Báðir stjórnarflokkar eru á móti aðild. Kosning um málið er ekki á dagskrá.

Það er skiljanlegt að Samfylkingin og ýmsir þeir sem vilja að Ísland gerist aðili að ESB séu óhressir með þróun mála núna. Samfylkingin missti af tækifærinu til að koma Íslandi í ESB vegna þess að hún hafði hvorki stuðning til þess innan stjórnar né þings,  hvað þá meðal þjóðarinnar. Þess vegna rann umsóknin út í sandinn.

Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins greinir hér, eins og hans er von og vísa, ákaflega skýrt frá málinu í hnotskurn: 

Í þessu viðtali við mbl.is segir Birgir:

,,Mér finnst rétt að því sé haldið til haga í þessari umræðu að báðir ríkisstjórnarflokkarnir tóku þannig til orða í landsfundarályktunum sínum að aðildarviðræðunum skyldi hætt og að þeim yrði ekki haldið áfram nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Það var mjög svipað orðalag í báðum ályktununum hvað þetta varðaði. Það endurspeglaðist í ríkisstjórnarsáttmálanum frá í maí og eftir þeirri stefnu hefur verið unnið.“

Nánar segir í þessari frétt mbl.is:

,,Þetta segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, í samtali við mbl.is. Hann bætir við að í þessu felist að viðræðunum við Evrópusambandið hafi verið hætt en ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald málsins hafi ekki verið tekin. Hvorki hvort af slíkri atkvæðagreiðslu verði á þessu kjörtímabili né hvenær. Þeir sem setji fram annan skilning á málinu séu einfaldlega að lýsa eigin skoðunum en hvorki stefnu ríkisstjórnarinnar né flokkanna sem að henni standi.

Til Alþingis þegar skýrslan liggur fyrir

„Það liggur fyrir að viðræðunum hefur verið hætt með þeim hætti að bæði pólitískum og tæknilegum viðræðum við Evrópusambandið hefur verið hætt. Það liggur líka fyrir að utanríkisráðherra hefur það verkefni að hafa forgöngu um gerð skýrslu um stöðu viðræðnanna og stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Meðal annars hvernig sambandið hefur verið að þróast. Það hefur komið skýrt fram að þessi mál munu auðvitað koma til umræðu og umfjöllunar á Alþingi þegar sú skýrsla liggur fyrir,“ segir hann ennfremur.

Birgir segir það sem skipti meginmáli á þessum tímapunkti sé að undirstrika að ákvörðun um það hvort þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin, hvenær og um hvað verði spurt sé viðfangsefni sem krefjist nýrrar og sjálfstæðrar ákvörðunar sem ekki hafi verið tekin. „Það er auðvitað augljóst og sést á ummælum í fjölmiðlum að mönnum liggur mismikið á að taka þá ákvörðun.“


mbl.is Þjóðaratkvæði sjálfstæð ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar Bragi útskýrir stöðuna svo aðrir skilji

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur að undanförnu útskýrt stöðuna í samskiptum við Evrópusambandið svo aðrir ættu að geta skilið. Hann er jú æðstur í því ráðuneyti sem sér um alþjóðasamskipti fyrir Íslands hönd: Það eru engar viðræður í gangi.

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna knúði í gegn umsókn að ESB þótt Vinstri grænir væru í raun á móti umsókn. Umsóknin var því markleysa. Það var bara einn flokkur sem vildi sækja um - og svo var þjóðin heldur ekki spurð.

Það er því einfalt mál að hætta þessu - og þar hefur utanríkisráðherra tekið af skarið - enda þarf hann ekki annað en að fylgja sáttmála ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Aðildarviðræður hafa verið stöðvaðar - og það eru engin áform um að halda þeim áfram. Þess vegna þarf enga þjóðaratkvæðagreiðslu.

Hversu langan tíma þurfa aðildarsinnar að ESB til að skilja einfalt skrifað mál eins og það sem er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugsssonar? Almennum bloggurum er kannski vorkunn þegar sérfræðingar af ýmsu tagi flaska á lestrinum. En það verður alltént að gera þá kröfu til þeirra fjölmiðla sem vilja láta taka sig alvarlega að þeir hafi lesið stjórnarsáttmálann.

Ákvæðið um viðræðurnar er svohljóðandi:

Gert verður hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og úttekt gerð á stöðu viðræðnanna og þróun mála innan sambandsins. Úttektin verður lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar og kynnt fyrir þjóðinni. Ekki verður haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.

Sem sagt:

Nr. 1: Hlé

Nr. 2: Úttekt

Nr. 3. Úttekt lögð fyrir Alþingi og þjóðina

Nr. 4. Engar viðræður nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu

Allir vita að ríkisstjórnarflokkarnir eru á móti aðild - og þeir eru á móti viðræðum. Meirihluti Alþingis er einnig á móti viðræðum. Þess vegna er engin ástæða til að halda viðræðum áfram - og þar af leiðandi engin þörf á þjóðaratkvæðagreiðslu. Vilja aðildarsinnar í öllum skúmaskotum halda áfram samkvæmt þeirri undarlegu aðferð sem Samfylkingin knúði í gegn árið 2009?


mbl.is Ekki litið á Ísland sem ríki í umsóknarferli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danir hafa lítinn áhuga á evrunni og eru hálfvolgir í ESB

Það er alveg ljóst að Danir vilja ekki taka upp evru og þeir eru efins um ýmislegt í starfi ESB.

Þetta útskýrir alveg málið:

Danskir kjósendur höfnuðu Maastricht-sáttmálanum í þjóðaratkvæði árið 1992 og var í kjölfarið veittar fjórar undanþágur frá honum.

Ekki er vilji fyrir því að kjósa um aðild að evrunni ,segir í fréttinni en skoðanakannanir hafa sýnt afgerandi meirihluta gegn upptöku hennar. Könnun fyrr á þessu ári sýndi þannig 62% andvíg því að skipta dönsku krónunni út fyrir evruna. Þá er stuðningur takmarkaður við þátttöku í samstarfi á vettvangi Evrópusambandsins í löggæslu- og dómsmálum eða 39% samkvæmt síðustu könnun.

Fram kemur í fréttinni að mikil áhætta fælist í því fyrir dönsku ríkisstjórnina að tengja þjóðaratkvæði um að falla frá undanþágunum tveimur við kosningarnar til Evrópuþingsins þar sem það kynni að þýða aukna þátttöku kjósenda sem hafa efasemdir um Evrópusambandið.


mbl.is Vill þjóðaratkvæði á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Ágúst 2013
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 835
  • Frá upphafi: 1232357

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 748
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband