Færsluflokkur: Evrópumál
Mánudagur, 4. nóvember 2024
Er stefnan eintóm blekking?
Sósíalistaflokkur Íslands hefur birt stefnu sína. Hún er í mörgum köflum og í hverjum kafla eru fjölmargir liðir. Sumir þættir í stefnunni stangast á við stefnu Evrópusambandsins og aðrir eru þess eðlis að þeim verður ekki komið í framkvæmd, nema Evrópusambandið vilji það, ef Ísland gengur í Evrópusambandið.
Engu að siður er ekki stafkrókur um samband Íslands við Evrópusambandið í annars langri stefnu sem meðal annars fjallar um utanríkismál, lýðræði og auðlindir.
Að minnsta kosti tveir frambjóðendur sósíalista hafa séð sig knúna til að skrifa í blöðin til að biðja um að Ísland verði innlimað í Evrópusambandið. Ef þeim verður að ósk sinni þarf ekki fara í grafgötur um hverju þeir munu svara þegar spurt verður hvers vegna stefnunni sé ekki fylgt: "Evrópusambandið bannar það, við getum ekkert gert".
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 3. nóvember 2024
Um hvað snýst málið?
Það er háttur sumra að hrópa "Ég vil líka" í hvert sinn þegar þeir sjá eitthvað sem þeim líkar vel í Evrópusambandinu. Einn daginn er það ódýr brauðbiti í Grikklandi og annan daginn ódýr vínsopi í Portúgal. Viljinn stendur vitaskuld til brauðsins og vínsins, ekki til þess að vinna fyrir laun bakarans og víngerðarmannsins í þessum löndum. Þó er þarna órjúfanlegt samhengi á milli.
Aðild að Evrópusambandi snýst um hvernig eigi að velja þá sem ráða. Á að gera það með kosningum öðru hverju, eða á að fela valdið í hendur nafnlausra manna í útlöndum sem eiga nákvæmlega ekkert undir vilja kjósenda á Íslandi og þurfa aldrei að skila því aftur.
Hjörtur ræðir ýmis grundvallaratriði í nýrri grein á Vísi. Hann segir m.a. réttilega:
Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði vægi landsins þegar ákvarðanir væru teknar í ráðherraráði sambandsins, sem gjarnan er talið vera valdamesta stofnun þess, allajafna einungis um 0,08%
https://www.fullveldi.is/?p=10867
Laugardagur, 2. nóvember 2024
Á Seltjarnarnesi
verður fundað kl. 20 á mánudagskvöld. Félagið heitir Frelsi og fullveldi og ekki ómerkari menn en sr. Geir í Reykholti og sr. Halldór í Holti tala fyrstir.
Þar verður nú varla töluð vitleysan.
https://www.facebook.com/frelsiogfullveldi
Laugardagur, 2. nóvember 2024
Að fá einhverja aðra til að stjórna
"Ég held að það væri bara gott að fá einhverja aðra til að stjórna, þótt þeir séu líka kapítalistar, sko" segir Ása Lind Finnbogadóttir, kennari og frambjóðandi Sósíalistaflokksins á 17. mínútu hjálagðs þáttar á Samstöðinni.
Ása Lind er greinilega búin að gefast upp á hefðbundnu lýðræði og gerist talsmaður þess sem margir kalla fasisma, og felst í því að framselja stjórnvaldið til embættismanna í útlöndum sem vísir eru til að vilja aldrei skila þvi aftur.
Líklega er samherjum Ásu Lindar í flokknum ekki skemmt, en andstæðingar sósíalista hlæja upphátt.
https://www.youtube.com/watch?v=gddPk2OdvvI
Föstudagur, 1. nóvember 2024
Vindhögg
Einn ákafasti talsmaður fullveldis Íslands síðustu ár er Arnar Þór Jónsson. Arnar Þór er rökfastur og enginn froðusnakkur. Sumir hafa horn í síðu Arnars Þórs, en það er áberandi að efnisleg gagnrýni á málflutning hans hefur jafnan verið hverfandi lítil.
Einn af talsmönnum framsals fullveldis var fenginn í viðtal í Vísi um daginn. Um málflutning Arnars Þórs hafði hann það helst að segja að Arnar Þór legði aðra merkingu í orðið "djúpríki", en viðmælandinn sjálfur. Ekki er að orðlengja að viðmælandinn, sem auk þess að vera á öndverðum meiði við Arnar Þór í fullveldismálum vinnur við félagsvísindi í háskóla, telur sjálfan sig hafa kennivald um rétta og ranga merkingu orða.
Hann telur að Arnar Þór hafi misskilið eitthvað sem hann sjálfur hafi skilið.
Arnar Þór hefur ekkert misskilið og lesendur hlægja upphátt þegar menn úti í bæ gefa sér kennivald að tilefnislausu.
https://www.visir.is/g/20242643012d/formadur-lydraedisflokksins-sagdur-misbeita-samsaeriskenningu
Þriðjudagur, 29. október 2024
Bjarni bilar ekki
Það eru hræringar í stjórnmálunum. Af því tilefni er rétt að rifja upp að Bjarni Jónsson stóð sem klettur til að verjast ágjöf Evrópusambandsins þá tíð er hann var þingmaður VG. Vont er að missa slíka menn úr valdastöðu.
Annars er eftirtektarvert að Bjarni Jónsson er einn þeirra sem áttar sig á því að náttúruvernd verður best sinnt með því að Íslendingar verði fullvalda.
Fimmtudagur, 24. október 2024
Er ekki bara best að banna meira?
Ekki hefur farið framhjá neinum að Evrópusambandið hefur fært sig upp á skaftið þegar kemur að stjórn á opinberri umræðu. Þeim sem reka samfélagsmiðla er hótað í bak og fyrir ef þeir gera ekki eins og sambandið segir og sumir fjölmiðlar eru beinlínis bannaðir með manni og mús.
Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að eini flokkurinn sem leggur áherslu á að að Ísland verði innlimað í Evrópusambandið kvarti yfir undanlátssemi gagnvart fólki með óheppilegar skoðanir.
https://www.fullveldi.is/?p=64042
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 21. október 2024
Sósíalistar og Evrópusambandið
Dulítil umræða hefur orðið um Evrópusambandið og tengsl Íslands við það á Fasbókarsvæði sósíalista.
Það sem upp úr stendur þar og sósíalistar ættu að íhuga er
í fyrsta lagi að það er mjög undarleg leið til þess að færa Ísland í átt að sósíalisma að afhenda landið evrópsku stórkapítali.
Í öðru lagi bendir Þórður Birgisson réttilega á að maður á aldrei að ganga í klúbb sem ekki er hægt að ganga úr aftur, vandræðalaust.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 20. október 2024
Obb, obb, obb, Áslaug Arna
Haft er eftir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, ráðherra Sjálfstæðisflokks, að hún sé til viðræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður um inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
Ef óvinsæl ríkisstjórn sem segist ekki vilja inn í Evrópusamband heldur þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja inngönguferli er viðbúið að allir hrekkjóttir menn, og andstæðingar stjórnarinnar, kjósi með, til að fá að sjá svipinn á Evrópusambandinu þegar sendiboðinn færir því fréttirnar um að ríkisstjórn Íslands vilji sækja um aðild, en vilji ekki ganga inn. Í annað sinn.
Ríkisstjórn getur rætt við hvern sem er án þess að fá til þess sérstakt umboð frá þjóðinni. Hinar svokölluðu aðildarviðræður eru á hinn bóginn ekki bara hefðbundnar viðræður heldur inngönguferli sem miðar að fullri aðild og felur í sér að löggjöf og stjórnsýslu er kollvarpað með miklum tilkostnaði og fyrirhöfn. Enginn sækir um aðild að Evrópusambandinu nema ljóst sé að þar liggi að baki einlægur vilji stjórnvalda og ekki síst stór og varanlegur meirihluti þjóðarinnar. Annað er út í bláinn.
Það er erfitt að verjast þeirri hugsun að það sé einbeittur ásetningur sumra valdamanna í Sjálfstæðisflokknum að bíta það sem eftir er af fylgi af sér.
Evrópumál | Breytt 21.10.2024 kl. 07:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 19. október 2024
Feitur reikningur
Í torfkofagrein Hjartar sem fjallað var um á blogginu í gær er farið nokkrum orðum um kostnaðinn við EES og hugsanlegan hagnað af því fyrirkomulagi á samskiptum við Evrópusambandið.
Kostnaður Íslendinga af EES er margþættur.
Í fyrsta lagi er hinn beini kostnaður í formi greiðslna. Hann er um 3 milljarðar á ári. Þær greiðslur eru kyndugar og segja má að í þeim felist mótsögn. Tollfrelsi er ekki góð lýsing á viðskiptafyrirkomulagi þar sem annar aðilinn þarf að borga hinum 3 milljarða á ári í áskriftargjald, jafnvel þótt tollurinn sé fastagjald en ekki tengdur magni.
Í öðru lagi er beinn kostnaður í formi gjalda á borð við losunarheimildir sem leggjast tiltölulega þungt á samgöngur við Ísland. Undir þeim hatti er fyrirhuguð innheimta á vegabréfsáritun fyrir þá sem búa utan Schengenlands. Mikið af því fé rennur í sjóði Evrópusambandsins.
Í þriðja lagi er kostnaður stofnana og fyrirtækja við að gera það sem reglur sambandsins segja að þurfi að gera. Reglurnar koma á færibandi. Þeim fjölgar stjórnlaust og berast óháð því hvort þeirra sé þörf eða ekki.
Í fjórða lagi eru hindranir á viðskiptum og viðskiptasamningum við lönd utan Evrópu vegna tæknilegra kvaða sem Evrópusambandið setur. Þær kvaðir eru iðulega til að vernda iðnað á meginlandi Evrópu fyrir samkeppni.
Það er erfitt að setja tölur á síðustu þrjá liðina, en nokkuð ljóst er að um er að ræða tugi milljarða á ári.
Á móti kemur hugsanlegur hagnaður af EES. Eins og kemur fram í torfkofagrein Hjartar er hann frekar óljós. Það er vel hugsanlegt að hann sé lítill sem enginn. Já, lítill sem enginn. Ekki varð tap af því að Bretar hættu í EES og ekki leiða viðskipti við Breta til kostnaðar af því tagi sem hér er upp talinn.
Færi ekki vel á því að ný ríkisstjórn sem væntanlega verður mynduð í vetur tæki að sér að endurskoða fyrirkomulagið á samskiptum Íslands við það sem eftir er af Evrópusambandinu, t.d. með víðtæka fríverslun í huga?
Nýjustu færslur
- Aðeins meira um veikleika Evrópusambandsins
- Veikleikar Evrópusambandsins
- Kári sveiflar sverði
- Svaraði Markús ekki?
- Einföld lausn
- Gleðilega þjóðhátíð
- Nagli Hjartar og nokkrar einfaldar staðreyndir
- Horft í gegnum þokuna í bókunarmálinu
- Landráð?
- Öskrandi stríðsvagn fyrir Íslendinga
- Hann þrengir að öndunarveginum
- Það er ekki smæðin
- Bréfið
- Einföld útskýring Jóns Steinars - og upprifjun Jóns Bjarnason...
- Fátt um svör
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 51
- Sl. sólarhring: 142
- Sl. viku: 1829
- Frá upphafi: 1231997
Annað
- Innlit í dag: 48
- Innlit sl. viku: 1631
- Gestir í dag: 48
- IP-tölur í dag: 47
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar