Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Evrópumál

Raunvextir húsnćđislána í Bandaríkjunum á svipuđu róli og á Íslandi

Fram hefur komiđ ađ Bandaríkjmenn hafa kosiđ sér forseta og ţingmenn. Einhverjum ţykir ţađ ástćđa til ađ biđja um ađ stjórnvald á Íslandi fćrist óafturkrćft til Brussel.  Erfitt er ađ skilja ţađ samhengi, enda líklega ekki ćtlast til ţess ađ ţađ sé reynt.

Ţađ er á hinn bóginn tilvaliđ ađ kanna vaxtamál í BNA.  Sumir telja ađ verđ á lánsfjármagni á Íslandi sé hátt vegna ţess ađ fáir nota íslenska krónu.  Mjög margir nota bandarískan dal. Lítum á kjörin í ţeirri sveit:

Verđbólga í BNA er um 2,4%.  Hún er dálítiđ misjöfn eftir ríkjum, en viđ fáumst ekki um ţađ. 

Vextir húsnćđislána í ţremur flokkum, eftir binditíma eru frá 5,9% upp í 6,9%.  Ekki er getiđ um veđhlutfall í heimildinni sem ađ baki liggur sem er hér:

https://money.usnews.com/loans/rates/mortgages/mortgage-rates

Miđađ viđ ţessar tölur eru međalraunvextir á húsnćđislánum í BNA um ţessar mundir 3,4%-4,4%. 

Til samanburđar eru vextir á verđtryggđum húsnćđislánum á Íslandi hér: 

https://aurbjorg.is/samanburdur/husnaedislan

Niđurstađan er í stuttu máli ađ raunvextir á húsnćđislánum í Bandaríkjunum eru á svipuđu róli og á Íslandi. 

 

Ţessi niđurstađa fellur illa ađ kenningunni um ađ lítiđ myntsvćđi leiđi sjálfkrafa til hárra vaxta, enda líklega aldrei ćtlast til ţess ađ neinn grćfist fyrir um sannleiksgildi hennar. 

 

 


Raunvextir í Bretlandi á svipuđu róli og á Íslandi

Vaxtaspjall Heimssýnar var ekki fyrr komiđ í loftiđ en mbl.is birti vaxta- og verđbólgufréttir frá Bretlandi.  Ţar er verđbólgan nú 1,7%. 

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2024/11/07/laekka_styrivexti_i_annad_sinn_a_arinu/

 

Nýleg grein um húsnćđisvexti í Bretlandssveit er hér:

https://www.rightmove.co.uk/news/articles/property-news/current-uk-mortgage-rates/#:~:text=The%20average%20rate%20for%20a,both%20unchanged%20from%20last%20week.

Ţar segir ađ međaltal vaxta af íbúđalánum í Bretlandi sé frá 4 upp í 5,6%.  Veđhlutfall og binditími vaxta eru ţar breytistćrđir.  Ţađ gefur raunvexti í Bretlandi frá 2,2 upp í 3,8%. 

 

Aurbjörg heitir vefur sem sýnir vaxtakjör íbúđalána á Íslandi.  Hann er hér:

https://aurbjorg.is/samanburdur/husnaedislan

Lćgstu vextir á verđtryggđum lánum (sem segja má ađ séu raunvextir) eru ţar 3,04% og margir sjóđir bjóđa lán međ 3-4% vöxtum.

 

Niđurstađan er skýr:  Raunvextir á húsnćđislánum í Bretlandi eru á svipuđu róli og á Íslandi

  

 

 


Vaxtavitleysa

Ţađ er alkunna ađ raunvextir eru betri mćlikvarđi en nafnvextir á verđ á lánsfjármagni. 

Í daglegu tali má segja ađ raunvextir séu vextir umfram verđbólgu. Ekki er alveg vandalaust ađ reikna raunvexti, ţví ţađ má mćla verđbólgu međ ýmsum hćtti. Ólíkar ađferđir leiđa ţó oftast til svipađrar niđurstöđu. 

Raunvextir eru oft á svipuđu róli á Íslandi og víđa í Evrópu, en stundum lítiđ eitt hćrri á Íslandi. Stutt ferđ um vefinn sýnir ađ raunvextir á húsnćđislánum í Eistlandi og í Króatíu eru 2-3 %.  Íbúđlalánasjóđur býđur lán međ 4% raunvöxtum.  Raunvextir eru međ öđrum orđum 1-2 prósentustigum hćrri í fyrrnefndum 2 Evrópulöndum en hjá Íbúđalánasjóđi á Íslandi.  Ţađ er vissulega nokkur munur en vísbendingar eru um ađ hann muni minnka fljótlega. 

Ţessi 1-2 prósentustiga munur er ekki í neinu samrćmi viđ umrćđu sem byggir á nafnvöxtum og stundum líka á frjálslegri međferđ talna.  Sú umrćđa miđar ađ ţví ađ sannfćra einhverja um ađ ţeir fái hestburđ af ódýrum peningum, bara ef ţeir fá nýjan gjaldmiđil. 

Ţađ er í stuttu máli tóm vitleysa.   


Er stefnan eintóm blekking?

Sósíalistaflokkur Íslands hefur birt stefnu sína.  Hún er í mörgum köflum og í hverjum kafla eru fjölmargir liđir.  Sumir ţćttir í stefnunni stangast á viđ stefnu Evrópusambandsins og ađrir eru ţess eđlis ađ ţeim verđur ekki komiđ í framkvćmd, nema Evrópusambandiđ vilji ţađ, ef Ísland gengur í Evrópusambandiđ. 

Engu ađ siđur er ekki stafkrókur um samband Íslands viđ Evrópusambandiđ í annars langri stefnu sem međal annars fjallar um utanríkismál, lýđrćđi og auđlindir.

Ađ minnsta kosti tveir frambjóđendur sósíalista hafa séđ sig knúna til ađ skrifa í blöđin til ađ biđja um ađ Ísland verđi innlimađ í Evrópusambandiđ.  Ef ţeim verđur ađ ósk sinni ţarf ekki fara í grafgötur um hverju ţeir munu svara ţegar spurt verđur hvers vegna stefnunni sé ekki fylgt:  "Evrópusambandiđ bannar ţađ, viđ getum ekkert gert".  

 


Um hvađ snýst máliđ?

Ţađ er háttur sumra ađ hrópa "Ég vil líka" í hvert sinn ţegar ţeir sjá eitthvađ sem ţeim líkar vel í Evrópusambandinu.  Einn daginn er ţađ ódýr brauđbiti í Grikklandi og annan daginn ódýr vínsopi í Portúgal.  Viljinn stendur vitaskuld til brauđsins og vínsins, ekki til ţess ađ vinna fyrir laun bakarans og víngerđarmannsins í ţessum löndum. Ţó er ţarna órjúfanlegt samhengi á milli.  

Ađild ađ Evrópusambandi snýst um hvernig eigi ađ velja ţá sem ráđa.  Á ađ gera ţađ međ kosningum öđru hverju, eđa á ađ fela valdiđ í hendur nafnlausra manna í útlöndum sem eiga nákvćmlega ekkert undir vilja kjósenda á Íslandi og ţurfa aldrei ađ skila ţví aftur.  

Hjörtur rćđir ýmis grundvallaratriđi í nýrri grein á Vísi.  Hann segir m.a. réttilega:

Kćmi til ţess ađ Ísland gengi í Evrópusambandiđ yrđi vćgi landsins ţegar ákvarđanir vćru teknar í ráđherraráđi sambandsins, sem gjarnan er taliđ vera valdamesta stofnun ţess, allajafna einungis um 0,08%

 

https://www.fullveldi.is/?p=10867


Á Seltjarnarnesi

verđur fundađ kl. 20 á mánudagskvöld.  Félagiđ heitir Frelsi og fullveldi og ekki ómerkari menn en sr. Geir í Reykholti og sr. Halldór í Holti tala fyrstir.  

Ţar verđur nú varla töluđ vitleysan.

 

https://www.facebook.com/frelsiogfullveldi


Ađ fá einhverja ađra til ađ stjórna

"Ég held ađ ţađ vćri bara gott ađ fá einhverja ađra til ađ stjórna, ţótt ţeir séu líka kapítalistar, sko" segir Ása Lind Finnbogadóttir, kennari og frambjóđandi Sósíalistaflokksins á 17. mínútu hjálagđs ţáttar á Samstöđinni.  

Ása Lind er greinilega búin ađ gefast upp á hefđbundnu lýđrćđi og gerist talsmađur ţess sem margir kalla fasisma, og felst í ţví ađ framselja stjórnvaldiđ til embćttismanna í útlöndum sem vísir eru til ađ vilja aldrei skila ţvi aftur. 

Líklega er samherjum Ásu Lindar í flokknum ekki skemmt, en andstćđingar sósíalista hlćja upphátt. 

https://www.youtube.com/watch?v=gddPk2OdvvI


Vindhögg

Einn ákafasti talsmađur fullveldis Íslands síđustu ár er Arnar Ţór Jónsson.  Arnar Ţór er rökfastur og enginn frođusnakkur.  Sumir hafa horn í síđu Arnars Ţórs, en ţađ er áberandi ađ efnisleg gagnrýni á málflutning hans hefur jafnan veriđ hverfandi lítil. 

Einn af talsmönnum framsals fullveldis var fenginn í viđtal í Vísi um daginn. Um málflutning Arnars Ţórs hafđi hann ţađ helst ađ segja ađ Arnar Ţór legđi ađra merkingu í orđiđ "djúpríki", en viđmćlandinn sjálfur.  Ekki er ađ orđlengja ađ viđmćlandinn, sem auk ţess ađ vera á öndverđum meiđi viđ Arnar Ţór í fullveldismálum vinnur viđ félagsvísindi í háskóla, telur sjálfan sig hafa kennivald um rétta og ranga merkingu orđa. 

Hann telur ađ Arnar Ţór hafi misskiliđ eitthvađ sem hann sjálfur hafi skiliđ. 

Arnar Ţór hefur ekkert misskiliđ og lesendur hlćgja upphátt ţegar menn úti í bć gefa sér kennivald ađ tilefnislausu. 

https://www.visir.is/g/20242643012d/formadur-lydraedisflokksins-sagdur-misbeita-samsaeriskenningu

 

 


Bjarni bilar ekki

Ţađ eru hrćringar í stjórnmálunum.  Af ţví tilefni er rétt ađ rifja upp ađ Bjarni Jónsson stóđ sem klettur til ađ verjast ágjöf Evrópusambandsins ţá tíđ er hann var ţingmađur VG.  Vont er ađ missa slíka menn úr valdastöđu.  

Annars er eftirtektarvert ađ Bjarni Jónsson er einn ţeirra sem áttar sig á ţví ađ náttúruvernd verđur best sinnt međ ţví ađ Íslendingar verđi fullvalda. 

 

 

 


Er ekki bara best ađ banna meira?

Ekki hefur fariđ framhjá neinum ađ Evrópusambandiđ hefur fćrt sig upp á skaftiđ ţegar kemur ađ stjórn á opinberri umrćđu.  Ţeim sem reka samfélagsmiđla er hótađ í bak og fyrir ef ţeir gera ekki eins og sambandiđ segir og sumir fjölmiđlar eru beinlínis bannađir međ manni og mús. 

Ţađ ćtti ţví ekki ađ koma neinum á óvart ađ eini flokkurinn sem leggur áherslu á ađ ađ Ísland verđi innlimađ í Evrópusambandiđ kvarti yfir undanlátssemi gagnvart fólki međ óheppilegar skođanir. 

https://www.fullveldi.is/?p=64042


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Sept. 2025
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.9.): 423
  • Sl. sólarhring: 581
  • Sl. viku: 1710
  • Frá upphafi: 1257474

Annađ

  • Innlit í dag: 396
  • Innlit sl. viku: 1538
  • Gestir í dag: 389
  • IP-tölur í dag: 381

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband