Leita í fréttum mbl.is

Ragnar Arnalds spyr um siðferðisþrek þingflokks VG

Ætlar forysta og þingflokkur Vinstri grænna að láta það yfir sig ganga að Jón Bjarnason sé flæmdur úr embætti vegna afstöðu sinnar til Evrópusambandsins? Þannig spyr Ragnar Arnalds á Vinstrivaktinni í dag.

Skammt er síðan forystulið ESB lét sig ekki muna um að koma háttsettum fyrrum embættismönnum úr starfsliði sínu í Brussel í stóla forsætisráðherra í tveimur aðildarríkjum, þ.e. á Grikklandi og Ítalíu. Þessu yfirþjóðlega liði finnst því sjálfsagt ekki til of mikils mælst að hér norður á Íslandi sé svo sem eins og einum landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra kippt úr umferð, svo að hann sé ekki að þvælast lengur fyrir áformum ESB.

 

Þingflokkur Vinstri grænna ræður ráðherrum flokksins.


mbl.is „Ekki sami maður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

18% atvinnuleysi í Grikklandi

Neyðarástand er í Grikklandi þar sem atvinnulífið er botnfrosið vegna evrunnar sem tekur ekki mið af eymdarástandinu í jaðarríkjum heldur er verðlögð samkvæmt þörfum Frakklands og Þýskalands. Atvinnuleysi er 18 prósent og horfur versandi.

Eftir eitt ár á atvinnuleysisbótum missa Grikkir réttinn til bóta. Samkvæmt Die Welteru 500 þúsund Grikkir í fjölskyldum þar sem hvorugt foreldra er með vinnu. Áætlanir eru um að fá peninga frá Evrópusambandinu til að búa til störf fyrir 150 þúsund manns.

Samdráttur upp 5,5% varð í gríska efnahagskerfinu á þessu ári og áfram verður samdráttur á næsta ári. Innviðið grísks samfélags eru veikir og skattheimtan í skötulíki.

Skuldakreppan á evrusvæðinu mun áfram geisa á komandi ári.


Bloggfærslur 30. desember 2011

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 222
  • Sl. sólarhring: 358
  • Sl. viku: 1566
  • Frá upphafi: 1234262

Annað

  • Innlit í dag: 193
  • Innlit sl. viku: 1306
  • Gestir í dag: 180
  • IP-tölur í dag: 176

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband