Leita í fréttum mbl.is

Uffe setur ađildarsinnum á Íslandi verkefni

Ađildarsinnar á Íslandi leggja höfuđáherslu á peningalegan hagnađ af ađild ađ Evrópusambandinu. Ýmist er bent á styrki sem fást úr sjóđum Evrópusambandsins eđa hagnađinn sem fćst viđ upptöku evru. Peningarök ađildarsinna eru veik vegna ţess ađ viđurkennt er ađ Ísland mun greiđa meira í ađildargjöld til Evrópusambandsins en fást til baka í formi styrkja.

Evrópusinninn og Íslandsvinurinn Uffe Ellemann Jenssen fyrrum utanríkisráđherra Danmerkur var gestur í Silfri Egils. Hann sagđi Evrópusambandiđ snúast um pólitík en ekki efnahagsmál.

Uffe sagđi jafnframt ađ aukin miđstýring vćri á döfunni í Evrópusambandinu. Verkefni ađildarsinna á Íslandi er ađ sannfćra almenning ađ ţjóđin eigi ađ gefa eftir fullveldi sitt og forrćđi til Brussel á ţeim forsendum ađ almenn pólitísk ţróun í Evrópusambandinu krefjist ţess. 


Gamli sáttmáli og ESB-viđrćđur

Samninganefnd Íslands ćtlar ekki ađ halda fram tilmćlum utanríkismálanefndar alţingis í ađildarviđrćđum viđ Evrópusambandiđ um ađ viđ höldum forrćđi okkar í sjávarútvegsmálum. Í greinargerđ samninganefndarinnar vegna fundar um sjávarútvegsmál segir ,,ađ íslensk lög og reglur um sjávarútveg stangast í veigamiklum atriđum á viđ" sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Heildarafli á Íslandsmiđum yrđi ákveđinn í Brussel, samningsumbođ viđ önnur ríki um deilistofna fćri til ESB og engar hömlur yrđu á erlendar fjárfestingar í útgerđ og vinnslu.

Umbođiđ sem utanríkisráđuneytiđ fékk frá alţingi var skilyrt. Samninganefnd Íslands ćtlar ekki ađ fylgja skilyrđum alţingis ţar sem viđrćđurnar myndu viđ ţađ steyta á skeri. Orđrétt segir í greinargerđinni

Tilmćli meirihluta utanríkismálanefndar Alţingis lúta ađ grundvallaratriđum og er ţví ekki taliđ rétt ađ gera fyrirvara viđ einstakar gerđir löggjafar ESB eđa hluta ţeirra ađ svo stöddu.

Klćkir af ţessum toga eru ţekktir í sögunni. Íslendingar gerđu á 13. öld sáttmála viđ Noregskonung um ađ gangast konungi á hönd en ađ uppfylltum skilyrđum, til dćmis ađ halda íslenskum lögum. Nokkrum árum síđar kom hingađ sendimađur, Lođinn Leppur, og vildi ađ Íslendingar játuđust lögum konungs. Ţegar landinn ţumbađist viđ sagđi Lođinn Leppur ađ búkarlar ćttu ekki ađ gera sig digra, ţeir áttu ,,fyrst ađ já bókinni og biđja síđan miskunnar um ţá hluti sem nauđsyn ţćtti til standa, konunginn og hans ráđ," eins og segir í sögu Árna biskups Ţorlákssonar.

Össur og menn hans í utanríkisráđuneytinu vilja ađ viđ samţykkjum fyrst forrćđi Evrópusambandsins í okkar málum en förum síđan á hnjánum til Brussel og biđjum um undanţágu. Samningar á hnjánum gáfu ekki góđa raun á 13. öld og eru ekki vćnlegir til árangurs á ţeirri 21.

(Tekiđ héđan.)

 

 


Bloggfćrslur 6. mars 2011

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júlí 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.7.): 157
  • Sl. sólarhring: 209
  • Sl. viku: 1792
  • Frá upphafi: 1234724

Annađ

  • Innlit í dag: 127
  • Innlit sl. viku: 1505
  • Gestir í dag: 121
  • IP-tölur í dag: 119

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband