Leita í fréttum mbl.is

Ađildarsinnar: ESB-ađild breytir sáralitlu

Í ađdraganda umsóknar Íslands um ađild ađ Evrópusambandinu, sumariđ 2009, töluđu ađildarsinnar fjálglega um stórkostlegan ábata sem mćtti hafa af ađild. Bara viđ umsóknina myndi gengi krónunnar styrkjast. Viđ inngöngu myndu lífskjör batna hér um tugi prósenta, s.s. vegna lćgri vaxta og ódýrari matvćla.

Eftir ţví sem hörmungar evrusvćđisins aukast verđur erfiđara fyrir íslenska ađildarsinna ađ selja alţjóđ sama áróđurinn. Nýjasta tilbrigđiđ í málflutningi ađildarsinna er ađ ESB-ađild breytir sáralitlu. Friđrik Jónsson er óţreytandi málflutningsmađur ađildar. Hann skrifar

Árangur ríkja innan ESB, sem samstarf sjálfstćđra ríkja, virđist fyrst og fremst byggja á getu og atorku ríkjanna sjálfra til ađ standa sig. Ađildin ađ ESB ţjónar hins vegar eins og smurning og viđbótaraflgjafi fyrir ţau ríki.

En um leiđ og hann sleppir röksemdinni ađ ađild fćri ţjóđríkjum hvorki velsćld né volćđi, heldur sé ,,smurning" og ,,viđbótaraflgjafi" biđur Friđrik lesendur ađ líta til Eystrasaltsríkjanna og hversu velmengunin sé mikil ţar - ţökk sé Evrópusambandsađild. Egill Helgason lćtur ţessa ódýru brellu blekkja sig og endurbirtir pistil Friđiks, en sleppir hreinskilninni um ađ ađild breyti litlu.

Ţeir sem skođa Evrópusambandiđ og evruna af alvöru, til dćmis hagfrćđingurinn Pau de Grauwe og Martin Wolf blađamađurá Financial Times, benda á ađ Evrópusambandiđ sé eiginlega hvorki né samband. Ţađ sé međ stórríkjametnađ en enga getu til ađ fylgja eftir yfirlýstum metnađi. Fjármálakreppa evru-svćđisins verđur ekki leyst međ ţví ađ benda á Eystrasaltslöndin sem fyrirmynd. Kreppan er í sjálfu skipulagi og hönnun Evrópusambandsins.

Innbyggt ójafnvćgi í Evrópusambandinu kemur fram á Írlandi og Suđur-Evrópu í dag en gćti brotist fram viđ Eystrasalt eđa Austur-Evrópu í náinni framtíđ.

Ađildarsinnar eins og Friđrik og Egill gera sjálfa sig ótrúverđuga međ mótsagnakenndum málflutningi og valkvćđum rökum. En ţeim er vorkunn - flestar fréttir af ESB og evru ţessi misserin eru vondar. Hvers vegna ekki ađ skálda í eyđurnar til ađ samfylkingarliđiđ fái sinn skammt af blekkingu?


Íslenskur gamanţáttur í grísk-evrópskum harmleik

Evran er ástćđan fyrir gjaldţroti Grikkland. Í skjóli evrunnar lifđu Grikkir í áratug um efni fram í trausti ţess ađ ríku löndin í norđri myndu fjármagna halla ríkissjóđs. Norđur-Evrópa neitar ađ halda Grikkjum uppi enda kćmu óđara önnur ríki í Suđur-Evrópu og bćđu um sömu niđurgreiđslu á lífskjörum.

Grikkland ţarf ađ lćkka innlendan kostnađ um 40-60 prósent til ađ verđa samkeppnisfćrt og fá hagvöxt. Međ evru er útilokađ fyrir Grikki ađ fella gjaldmiđilinn.

Evran gerir Grikkland fjárhagslega gjaldţrota og Grikkland Evrópusambandiđ pólitískt gjaldţrota.

Mitt í grísk-evrópska harmleiknum glittir í gamanţátt sem hlegiđ er ađ í öllum höfuđborgum Evrópu: Ísland sćkist eftir ađild ađ Evrópusambandinu.

Brandarinn er á kostnađ Íslendinga og í bođi Samfylkingar.


mbl.is Spáir grísku ţjóđargjaldţroti
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 14. júní 2011

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júlí 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.7.): 9
  • Sl. sólarhring: 236
  • Sl. viku: 1644
  • Frá upphafi: 1234576

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1384
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband