Leita í fréttum mbl.is

Stađfestan í afstöđunni til Evrópusambandsins

Heimssýn sendi í gćr út fréttabréf međ niđurstöđum könnunar Capacent-Gallup um afstöđu ţjóđarinnar til ađildar ađ Evrópusambandinu. Fréttin er eftirfarandi:

Í könnun sem Capacent-Gallup gerđi fyrir Heimssýn sögđust 57,3 prósent vera andvíg ađild Íslands ađ Evrópusambandinu en 42,7 prósent fylgjandi, séu ađeins tekin svör ţeirra sem tóku afstöđu međ eđa á móti.
Könnunin byggir á 589 svörum viđ spurningunni ertu hlynnt(ur) eđa andvíg(ur) ađild Íslands ađ Evrópusambandinu (ESB)?
Heildarskipting á svörum er eftirfarandi:
Alfariđ, mjög eđa frekar andvíg ađild: 50,1 prósent
Hvorki hlynnt né andvíg ađild: 12,6 prósent
Alfariđ, mjög eđa frekar hlynnt ađild: 37,3 prósent
Könnunin mćldi viđhorf til ađildar á tímabilinu mars til júní.

Ađildarsinnar telja sig á grundvelli könnunarinnar vera í stórsókn: segir Eyjan, fullyrđir Össur, kćtist Já Ísland og Evrópusamtökin eru viđ ađ missa sig.

Ađildarsinnar eru sveltir af góđum fréttum fyrir sinn málstađ og ţess vegna búa ţeir til veruleika ađ lifa í. Ţeir finna prósentutölur í öđrum könnunum, og leita helst ađ lćgstu tölu fylgjenda til ađ sýna sjálfa sig í sem bestu ljósi. Ađferđafrćđilega halda slík vinnubrögđ ekki vatni, en hvađ um ţađ, ţađ má alltaf setja spunavélina af stađ.

Hér ađ neđan er tafla úr sömu könnun. Taflan sýnir stađfestuna í afstöđu fólks til Evrópusambandsađildar. Vel innan viđ ţriđjungur ţeirra sem segjast hlynntir ađild fylla flokk ákveđnustu stuđningsmanna. Aftur er helmingur andstćđinga ađildar alfariđ andvígur.

Stćrsti hluti ađildarsinna samkvćmt könnuninni er hálfvolgur í trúnni, velur ađ auđkenna sína afstöđu međ ţví ađ segjast ,,frekar hlynnt(ur)".

Okkur á Heimssýnarblogginu ţótti viđ hćfi ađ birta ţessar upplýsingar ađ kveldi ţjóđhátíđardagsins. 

Ertu hlynnt(ur) eđa andvíg(ur) ađild Íslands ađ Evrópusambandinu (ESB)?

Alfariđ hlynnt(ur)

10,3%

Mjög hlynnt(ur)

10,8%

Frekar hlynnt(ur)

16,3%

Hvorki hlynnt(ur) né andvíg(ur)

12,6%

Frekar andvíg(ur)

15,4%

Mjög andvíg(ur)

10,0%

Alfariđ andvíg(ur)

24,7%


Ţjóđhátíđ í skugga umsóknar

Umsókn um ađild Íslands ađ Evrópusambandinu svertir minningu Jóns Sigurđssonar sem á 200 ára afmćli í dag. Jón helgađi líf sitt sjálfstćđi Íslands. Hann lagđi grunninn ađ pólitísku sjálfstćđi Íslands sem fékkst í áföngum frá 1874 međ stjórnarskrá til 1944 međ lýđveldisstofnun. Baráttan fyrir efnahagslegu sjálfstćđi var háđ samhliđa og lauk ekki fyrr en 1975 međ útfćrslu landhelginnar í 200 mílur.

Umsóknin um ađild Íslands ađ Evrópusambandinu er umsókn um ađ Ísland afsali sér fullveldinu gegn 0,8 prósent áhrifum í Evrópusambandinu og ţau áhrif munu lćkka niđur í 0,08 prósent ţegar atkvćđavćgi í ráđherraráđi breytist frá og međ 2014.

Umsóknin fćrir Evrópusambandinu á silfurfati yfirráđ yfir fiskveiđilandhelginni. Beri umsóknin ţann eitrađa ávöxt ađ Ísland verđi ađildarríki mun strandríkiđ Ísland leggja sína hagsmuni í hendur meginlandsríkjasambands. Samningaviđrćđur Íslands viđ önnur ríki á Norđur-Atlantshafi vćru á forrćđi Evrópusambandsins.

Umsókn Íslands um ađild ađ Evrópusambandinu á ađ draga strax tilbaka.


Bloggfćrslur 17. júní 2011

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júlí 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.7.): 20
  • Sl. sólarhring: 244
  • Sl. viku: 1655
  • Frá upphafi: 1234587

Annađ

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 1388
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband