Leita í fréttum mbl.is

ESB þarf Marshall-aðstoð

Grikkland er gjaldþrota og Portúgal á leiðinni í þrot. Til að bjarga Evrópusambandinu þarf að efna til víðtækrar efnahagsaðstoðar við þau ríki sem eru á heljarþröm fjárhagslega. Samhliða efnahagsaðstoð þarf að stórauka samrunaþróun Evrópusambandsins með beinni kosningu á æðstu embættismönnum.

Á þessa leið skrifar Alfred Gusenbauer fyrrum kanslari Austurríkis í þýska dagblaðið Die Welt. Kanslarinn fyrrverandi notar orðið Marshall-aðstoð en þar er heitið á bandarískri aðstoð sem kom Vestur-Evrópu á fæturna eftir seinna stríð.

Ríkjasamband sem þarf á Marshall-aðstoð að halda er komið að fótum fram. Og hvaða erindi á Ísland í slíkan félagsskap? Til að veita Evrópusambandinu þróunaraðstoð?


mbl.is Lántökukostnaður Portúgals eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB vill banna fjármálakreppur

Skuldakreppa evrulands er orðin svo leið valdhöfum í Brussel að þeir hyggjast banna fjármálakreppur sem þvælast fyrir samrunaþróun álfunnar. Í verkfærakistu embættismanna ESB er m.a. að finna reglugerðir sem banna bognar gúrkur

Þegar hægt er að banna náttúrulögmál, segja sérfræðingarnir í Brussel, hvers vegna ekki að útiloka efnahagslögmál frá Evrópusambandinu.

Þegar búið er að banna fjármálakreppur í Evrópusambandinu er næsta mál að banna öldrun álfunni. Lýðfræðitölur sýna æ færri barneignir Evrópubúa og því verður að mæta með reglugerð um eilífa æsku.


mbl.is Geti bannað mat á lánshæfi evruríkja í vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. mars 2012

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.7.): 68
  • Sl. sólarhring: 201
  • Sl. viku: 1267
  • Frá upphafi: 1233778

Annað

  • Innlit í dag: 45
  • Innlit sl. viku: 1079
  • Gestir í dag: 45
  • IP-tölur í dag: 45

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband