Leita í fréttum mbl.is

Guðmundur og Samfylkingin einangruð í ESB-málinu

asmundurkastlÞað kom berlega í ljós í Kastljósþætti kvöldsins að Guðmundur Steingrímsson og Samfylkingin eru algjörlega einangruð í ESB-málinu.

Ásmundur Einar Daðason þingmaður og formaður Heimssýnar greindi frá því að það sem menn kölluðu viðræður við ESB væru í raun engar viðræður. Það hefði breyst eftir að Noregur hafnaði aðildarsamningnum í seinna skiptið. Nú væru þessar viðræður aðlögunarviðræður sem fælust í því að ESB hjálpaði umsóknarríkjunum að taka upp regluverk og viðmið Evrópusambandsins. Þetta væru ekki raunverulegar aðildarviðræður og í raun og veru væri ekki um neitt að semja.

Guðmundur fullyrti, þvert á yfirlýsingar forystumanna ESB og utanríkisráðherra Íslands og fleiri, að það væri augljóst að sjávarútvegsstefna ESB ætti ekki við Ísland. Sjávarútvegsstefnan var eitt af veigameiri atriðum sem urðu til þess að Norðmenn felldu samninginn síðast þrátt fyrir tímabundnar undanþágur.

Sjávarútvegsstefna ESB er og hefur verið sameiginleg. Hún felur það í sér að formleg yfirráð yfir fiskimiðunum verða flutt til Brussel. Ef Guðmundur trúir því ekki væri gott að heyra hann segja það. Það að íslenskar útgerðir fengju til að byrja með úthlutaðan kvóta á grundvelli sögulegrar reynslu breytir ekki þeirri grundvallarstaðreynd að formleg yfirráð Íslendinga yfir fiskveiðiauðlindinni væru komin úr höndum okkar um leið og við skrifuðum undir aðild að ESB.

Guðmundur kvartaði yfir átökum í stjórnmálum. Hans draumsýn er þá væntanlega sú að hann einn ásamt Samfylkingunni fái að ráða þessu máli.

Það vill bara svo til að Guðmundur og Samfylkingin eru einangraður minnihluti í málinu.

Samtal Ásmundar Einars Daðasonar og Guðmundar Steingrímssonar byrjar þegar 6 mínútur eru liðnar af Kastljósþættinum.


ESB kastar orkumilljörðum út um gluggann

orkusounVefritið EUobserver greinir frá því að það sé enginn ábati af mörgum orkusparandi aðgerðum Evrópusambandsins næstu 150 árin. Það sem verra er: Þá verða allar byggingaumbætur sem ráðist var í með orkusparnað að leiðarljósi orðnar ónýtar.

Þetta kemur fram í endurskoðunarskýrslu sem birt var í upphafi vikunnar (report by the European Court of Auditors (ECA)).  Í skýrslunni kemur fram að þeir fjármunir sem varið hefur verið í orkusparandi aðgerðir í opinberum byggingum munu ekki skila sér næstu 50 árin. Í sumum tilfellum verði enginn ábati af átakinu næstu 150 árin. Í verkefnum á Ítalíu reiknaðist þessi árafjöldi vera á milli 288 og 444 ár!

Mest af fénu - um 150 milljarðar króna - fóru til Ítalíu, Tékklands og Litháen.

Það var að mestu notað í andlitslyftingar gamalla húsa.

Svona lagað kætir náttúrulega ýmsa heimamenn á viðkomandi svæðum og ekki er verra ef þeir hafa fengið að skála í léttvíni við fjárveitingavaldsmenn ESB af tilefninu.

Það er út af fyrir sig jákvætt að þessi endurskoðunarskrifstofa hafi komist að niðurstöðu í málinu. Það er meira en sagt verður um þá sem eiga að endurskoða bókhald ESB-stjórnkerfisins. Það hefur reynst þrautin þyngri.

En Björt framtíð mun kannski bæta bókhaldskunnáttu ESB og auka skynsanlega nýtingu fjármuna. Hver veit?


mbl.is „Er þetta flókið?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ritstjóri DV biður um frið frá ESB

no_euHann er fróðlegur leiðarinn sem Reynir Traustason skrifar í DV í dag. Þar rekur hann réttilega að umsókn Íslands að ESB sé fallin á tíma. Hann segir að samningur hefði átt að vera á borðinu. Umsóknarferlið hafi tekið allt of mikinn tíma og orku frá þjóðinni. Hann vill samning sem fyrst og láta kjósa um málið - og niðurstaðan skipti engu máli. Bara að klára málið. Hann vill vera laus við það.

Ritstjórinn vill geta rætt um eitthvað annað.

Ritstjórinn virðist sem sagt ekki hafa neina skoðun á því hvort Ísland eigi að vera utan ESB eða ekki. Hann er því væntanlega í hópi þeirra sem telja sig illa upplýsta um Evrópumál, samanber meðfylgjandi frétt.

Við hin sem höfum fylgst með og teljum okkur ágætlega upplýst um ESB, samningaferlið og aðlögunarferlið teljum okkur mörg hver hafa nægar upplýsingar til að taka afstöðu nú þegar. Það er ekki byggt á neinum þjóðernisrembingi. Þá hefðum við ekkert þurft að kynna okkur málið.

Krafan um stöðvun aðlögunarviðræðnanna byggir á því ríkisstjórnin hefur ekkert lýðræðislegt umboð til slíkra viðræðna. Það aðlögunarferli sem ríkisstjórnin hefur lagt í eru ekki neinar venjulegar viðræður. Þær viðræður byggja á þeirri valdbeitingu að annar aðilinn uppfylli öll skilyrði samnings sem er holdtekja hins aðilans áður en hann skrifar undir.

Slíku ofbeldi verður að linna. Annað eru svik við lýðræðið.


mbl.is 56% telja sig illa upplýst um Evrópumál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er nú bara til heimabrúks í Samfylkingunni

Samfylkingarforystan er búin að átta sig á því að hún er ein um það að vilja skilyrðislaust inn í Evrópusambandið.

Forysta VG knúði hana til að setja aðildarviðræður til hliðar og það hefur haft sín áhrif erlendis eins og fréttir bera með sér.

Forysta annarra flokka á þingi er ekki á því að ganga í Evrópusambandið.

Samfylkingarforystan verður að halda andlitinu gagnvart hörðustu aðildarsinnunum í flokknum.


mbl.is Framhald viðræðna skilyrði samstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. janúar 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.7.): 15
  • Sl. sólarhring: 192
  • Sl. viku: 765
  • Frá upphafi: 1232711

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 662
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband