Leita í fréttum mbl.is

Hver er Ormur ráđgjafi í ráđuneytinu?

ormurRáđuneytin eru stundum eins og afmarkađ ríki í ríkinu. Sérstaklega á ţađ viđ um utanríkisráđuneytiđ. Ţar hefur veriđ rekin ESB-ađildarstefna í áratugi međ litlum hléum. Ráđandi embćttismannahópur fer sínu fram hćgt og bítandi á bak viđ tjöldin.

Embćttismenn utanríkisráđuneytisins vilja flestir fá ađ vera viđ háborđ ESB-embćttismannanna og sitja ţar ađ sömu veigum og ţeir. Ráđherrar koma og fara líkt og Jim Hacker. Humphrey Appleby situr áfram, jánkar ráđherranum en ekki mikiđ meira, ţví hann veit ađ ráđherrann staldrar stutt viđ.

ESB-ráđgjöfunum leiđ vel á tímum Jóns Baldvins, Halldórs og Össurar. Á öđrum tímum hafa ţeir ţurft ađ draga sig örlítiđ inn í skelina. Lýđrćđiđ nćr ekki lengra en ţađ.

Núverandi  ríkisstjórn hefur skýra stefnu um ađ hćtta viđrćđunum viđ ESB og ađ Ísland haldi sig utan sambandsins. Ţrátt fyrir ţađ er ţví haldiđ fram ađ ESB-utanríkisţjónustan malli hljóđlega áfram í skúmaskotum ráđuneytisins og sendiráđum.

Núverandi utanríkisráđherra hefur veriđ skeleggur framkvćmdamađur ţeirrar  stefnu ađ ESB-viđrćđunum verđi hćtt og ađ Ísland verđi utan ESB. En hefur hann ráđuneytiđ međ sér? Hver er hinn langi Ormur ráđgjafi sem stýrir upplýsingamiđlun innan ráđuneytisins til ráđherrans og reynir ađ setja mark sitt á framkvćmdina.

Humprey Appleby er víđa ađ finna.


Smámynt hent í Íslandsvininn Paul Thompson

Íslandsvinurinn Paul Thompson, Daninn sem var fulltrúi AGS ţegar Íslendingar tóku upp samstarf viđ sjóđinn, fékk heldur óblíđar móttökur í Aţenu í gćr. Lögreglunni tókst ađ forđa honum inn í bíl ţegar reiđur mótmćlandi henti í hann skćđadrífu smámyntar - sjálfsagt einhverjum evrum.

Evrópuvaktin skýrir frá ţessu. Hún segir svo frá:

Aţena: „Hypjiđ ykkur! Og takiđ björgunarađgerđir međ“-hrópuđu mótmćlendur ađ fulltrúum ESB/AGS/SE

Veitzt ađ Poul Thomsen og hent í hann smámynt-Allsherjarverkfall í dag

 

6. nóvember 2013 klukkan 10:19

Til harđra átaka kom í Aţenu í gćr fyrir framan fjármálaráđuneytiđ, ţegar mótmćlendur gerđu ađsúg ađ fulltrúum Evrópusambandsins og Alţjóđa gjaldeyrissjóđsins, sem ţar voru á ferđ. Mótmćlendur komu í veg fyrir ađ ţeir gćtu yfirgefiđ ráđuneytiđ. Daninn Poul Thomsen, sem Íslendingar ţekkja frá heimsóknum hans hingađ varđ ađ forđa sér ţegar mađur henti í hann smámynt. Lögreglan hjálpađi Thomsen ađ komast inn í bíl en mađurinn var handtekinn.

Reiđir mótmćlendur hrópuđu ađ gestunum: Hypjiđ ykkur og takiđ björgunarađgerđir ykkar međ. Óeirđalögregla var kölluđ á stađinn til ađ halda aftur af mannfjöldanum. Síđar í gćr var fulltrúunum komiđ út úr byggingunni baka til ţar sem mótmćlendur stóđu vörđ fyrir utan ađalinngang.

Margir mótmćlenda sögđu viđ blađamenn ađ ţeir hefđu orđiđ fyrir barđinu á uppsögnum opinberra starfsmanna sem ţríeykiđ ESB/AGS/SE hefđi krafizt.

Í frétt Guardian um máliđ segir ađ Grikkir hafi tapađ um 40% af ráđstöfunartekjum sínum frá ţví ađ kreppan skall á.

Í dag, miđvikudag eru skólar í Grikklandi lokađir og truflun hefur orđiđ á flugumferđ vegna allsherjarverkfalls, sem stendur í 24 tíma og er kallađ til í ţví skyni ađ mótmćla ţví ađhaldi sem erlendir lánardrottnar Grikkja hafa krafizt.

Í yfirlýsingu frá hafnarverkamönnum segir: „Líf verkamanna, lífeyrisţega og atvinnulausra er martröđ.“

Búizt er viđ ţúsundum manna á Syntagma-torgi síđar í dag, ţar sem verđur mótmćlafundur ađ ţví er fram kemur á gríska vefmiđlinum ekathimerini.


Bloggfćrslur 6. nóvember 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 21
  • Sl. sólarhring: 47
  • Sl. viku: 905
  • Frá upphafi: 1232340

Annađ

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 806
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband