Fimmtudagur, 7. nóvember 2013
Frosthrím hægir á efnahagslífi evrulandanna
Hagstjórnendur á evrusvæðinu hafa verulegar áhyggjur af of lítilli verðbólgu þessa dagana. Þess vegna lækkaði Seðlabanki Evrópu stýrivexti sína í dag í 0,25 prósent. Þótt það komi ekki fram í fréttinni þá er hin hliðin á málinu sú að það er of mikill hægagangur í atvinnulífi í álfunni og allt of mikið atvinnuleysi þar af leiðandi.
Of lítil verðbólga er á vissan hátt afleiðing af hagstjórn Seðlabanka Evrópu, sem hefur litið á það sem sitt meginhlutverk að halda verðbólgunni í skefjum. Þeir hagstjórnartilburðir, ásamt þeirri klípu sem milliríkjaviðskipti evrulandanna eru í vegna evrusamstarfsins, ásamt skuldabasli á jaðarsvæðunum, eru helstu ástæður þess að vélar atvinnulífs á svæðinu snúast of hægt. Seðlabanki Evrópu er að reyna að þíða frostið af tannhjólum atvinnulífsins þótt hann segi það varla upphátt.
Fróðlegt verður að fylgjast með því hvernig til tekst næstu misserin.
![]() |
Stýrivextir Evrópska seðlabankans í 0,25% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 7. nóvember 2013
Benedikt og Frjáls verslun í ESB-leiðangri?
Frjáls verslun virðist nú hafa verið tekin undir ESB-leiðangur eins af aðaleigendum blaðsins. Þessa dagana er blaðið að ræða við fólk úr atvinnulífinu fyrir jólavertíðina. Meðal helstu áhugamála blaðsins virðist vera þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald ESB-viðræðna.
Lítill hluti forsvarsmanna í viðskiptalífinu hér á landi virðist ekki sætta sig við það að ríkisstjórn landsins hefur ákveðið að hætta ESB-viðræðum, enda hafa stjórnarflokkarnir það á stefnuskrá sinni að halda Íslandi utan ESB.
Þessi litli hópur hefur verið duglegur við að koma sjónarmiðum sínum á framfæri á ráðstefnum tiltekinna fyrirtækja og í fjölmiðlagluggum á borð við í Vikulokin, Spegilinn og Á Sprengisandi.
Nýjasta útspilið er jólablað Frjálsrar verslunar. Þar verða, samkvæmt heimildum, viðtöl við helstu forsvarsmenn í íslensku atvinnulífi. Og hvað lætur Benedikt Jóhannesson blaðamanninn spyrja um? Jú, um afstöðu til mögulegrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna og um afstöðu til krónunnnar. En vonandi hafa þó forsvarsmenn íslenskra fyrirtækja tækifæri til þess að koma fleiri og brýnni málum á framfæri við lesendur blaðsins. Sjáum til.
Fimmtudagur, 7. nóvember 2013
Þjóðverjar eiga mesta sök á vandræðum evrusvæðisins
Nú eru æ fleiri að beina sjónum sínum að því að grunnvandi evrusvæðisins stafi frá aðhaldssamri efnahagsstefnu Þjóðverja sem eru enn í hræðslukasti vegna óðaverðbólgu millistríðsáranna. Fyrir vikið eiga Þjóðverjar heimsmet í viðskiptaafgangi og safna miklum eignum á kostnað granna sinna sem verða undir í samkeppninni á útflutningsmarkaði og safna gífurlegum skuldum. Þjóðverjar mega hins vegar ekki heyra minnst á neinar lagfæringar á stöðunni.
Þetta kemur fram í tveimur greinum í Morgunblaðinu í dag. Í annarri þeirra fer blaðamaðurinn Hörður Ægisson yfir helstu sögulegu og hagfræðilegu rökin í málinu. Hann segir meðal annars:
Öllu flóknara getur reynst að átta sig á því að hinar raunverulegu orsakir vandans er að finna í sjálfu myntbandalaginu sem framkallaði gríðarlega skekkju á greiðslujöfnuði milli aðildarríkja evrunnar - og þar ber lánveitandinn (Þýskaland) ekki síður sök en skuldunautarnir (jaðarríki evrunnar). Ekki verður séð að helstu stefnusmiðir evrusvæðisins, fyrst og fremst í Berlín, hafi á þessu mikinn skilning. Þess í stað hefur nánast allur kostnaður af því að leiðrétta hið djúpstæða ójafnvægi á evrópska myntbandalaginu verið borinn á herðum jaðarríkjanna með umfangsmiklum aðhaldsaðgerðum. Afleiðingarnar hafa verið fyrirsjáanlegar.
Karl Blöndal blaðamaður Morgunblaðsins skrifar einnig fréttaskýringu um hliðstætt efni í Morgunblaðinu í dag. Þar kemur fram að vaxandi vilji sé fyrir því að Þjóðverjar beisli útflutning sinn. Þýskir útflytjendur bergðist hins vegar hart við öllu slíku.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 7. nóvember 2013
Nýjustu færslur
- Misvægi og misskipting í Evrópusambandinu
- Lítil vinna fyrir ungdóminn á evrusvæðinu
- Aðeins meira um veikleika Evrópusambandsins
- Veikleikar Evrópusambandsins
- Kári sveiflar sverði
- Svaraði Markús ekki?
- Einföld lausn
- Gleðilega þjóðhátíð
- Nagli Hjartar og nokkrar einfaldar staðreyndir
- Horft í gegnum þokuna í bókunarmálinu
- Landráð?
- Öskrandi stríðsvagn fyrir Íslendinga
- Hann þrengir að öndunarveginum
- Það er ekki smæðin
- Bréfið
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 21
- Sl. sólarhring: 48
- Sl. viku: 905
- Frá upphafi: 1232340
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 806
- Gestir í dag: 18
- IP-tölur í dag: 18
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar