Leita í fréttum mbl.is

78 prósent Svía andvíg evrunni

78% Svía vilja ekki taka upp evruna í Svíţjóđ í stađ sćnsku krónunnar samkvćmt niđurstöđum nýrrar skođanakönnunar. Tćplega 13% eru hins vegar hlynnt ţví ađ landiđ verđi hluti evrusvćđisins.

Einnig var spurt um afstöđu til veru Svíţjóđar í Evrópusambandinu. 45% eru hlynnt verunni í sambandinu samkvćmt könnuninni en 22,7% eru andvíg. Hins vegar sögđust 33,3% ekki vera viss um afstöđu sína í ţeim efnum.

Frá ţessu er sagt á fréttavefnum Thelocal.se en skođanakönnunin var gerđ af sćnsku hagstofunni.

Mbl.is greinir frá ţessu. 


mbl.is 78% Svía andvíg evrunni
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Erfiđleikum evrusvćđisins er ekki lokiđ

Of snemmt er ađ lýsa yfir sigri vegna efnahagserfiđleika evrusvćđisins ađ sögn Christine Largarde, framkvćmdastjóra Alţjóđagjaldeyrissjóđsins (AGS). Evrópski seđlabankinn ţyrfti ađ grípa skjótra ađgerđa til ţess ađ létta á skuldavanda minni fyrirtćkja í ţví skyni ađ draga úr hćttunni á verđhjöđnun. Ţá gćtu ríki Evrópusambandsins ţurft ađ hverfa frá ađhaldsađgerđum og grípa ţess í stađ til örvandi ađgerđa til ađ stuđla ađ hagvexti og afstýra varanlegum efnahagslegum skađa.

Svo segir í frétt mbl.is.

Ţar segir einnig:

Ţetta kom međal annars fram í máli Lagarde á ráđstefnu í Brussel í gćr samkvćmt fréttavef breska dagblađsins Daily Telegraph. Ţrátt fyrir fyrirsagnir fjölmiđla vćru skýr merki um ađ ekki vćri allt međ felldu á evrusvćđinu. Hćtta vćri á ađ vítahringur skapađist međ víxlverkun minnkandi eftirspurnar og stađnađra fjárfestinga. Fjöldaatvinnuleysi á stórum hluta evrusvćđisins stuđlađi ađ ţví ađ menntađ fólk fćri annađ í leit ađ vinnu og ţađ drćgi aftur úr framleiđni á svćđinu til lengri tíma litiđ.

„Geta erfiđleikarnir raunverulega veriđ ađ baki ţegar 12% vinnuaflsins er án vinnu? Ţegar atvinnuleysi á međal ungmenna er mjög hátt, rúmlega 50% í Grikklandi og á Spáni?“ spurđi hún. Benti hún ennfremur á ađ ekki hefđi náđst jafnvćgi í hagvexti á evrusvćđinu og fyrir vikiđ vćri óvíst hvort hann yrđi varanlegur. Hagvöxtur vćri góđur í Ţýskalandi en lítill eđa minnkandi annars stađar á evrusvćđinu. Ţá vćri eftirspurn eftir vörum og ţjónustu ađallega frá ríkjum utan svćđisins en ekki innanfrá.

„Eina varanlega lausnin er ađ stuđla ađ auknum hagvexti. Ekki ađeins vegna aukins útflutnings heldur einnig vegna öflugs bata ţegar kemur ađ innlendri eftirspurn,“ sagđi hún ennfremur.


mbl.is Erfiđleikum evrusvćđisins ekki lokiđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 11. desember 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 9
  • Sl. sólarhring: 84
  • Sl. viku: 893
  • Frá upphafi: 1232328

Annađ

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 794
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband