Leita í fréttum mbl.is

Katrín vill gera samning viđ ESB til ađ fella hann

Ţađ var fróđlegt samtal sem Bjarni Benediktsson formađur Sjálfstćđisflokksins og Katrín Jakobsdóttir formađur Vinstri hreyfingarinnar grćns frambođs áttu um Evrópumálin og fleira í ţćttinum Á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

KatrinjakKatrín Jakobsdóttir ítrekađi ţá afstöđu sína og Vinstri grćnna ađ ţađ ţjónađi ekki hagsmunum Íslendinga ađ ganga í Evrópusambandiđ. Katrín sagđi ađ Vinstri grćn vildu gefa samningaviđrćđum eitt ár til viđbótar en láta ţjóđina ţá kjósa um máliđ. Og miđađ viđ ţađ sem Katrín segir ţá munu vinstri grćn ţá mćla gegn mögulegum samningi og vćntanlega vilja stöđva máliđ eftir ár ef ekki hefur náđst samningur. Sjálf hefđi Katrín reyndar helst kosiđ ađ fá ţjóđina til ađ kjósa strax um ţađ hvort halda ćtti umrćđunum áfram eđa ekki. Ţađ er greinilegt ađ Katrín telur ţróunina í ESB međ aukinni miđstýringu međal annars hafi gert ESB enn verri kost fyrir okkur Íslendinga en áđur var. Katrín telur auk ţess ađ ţađ sé nokkurn veginn gefiđ hvađ kemur út úr vćntanlegum samningi og ađ breytileiki samninga sem einstök ríki hafi gert sé ekki ţađ mikill ađ hann skipti máli. Umrćđa um undanţágur og sérlausnir er ţví á villigötum ađ mati Katrínar. Jafnframt var forvitnilegt ađ sjá ađ Katrín telur ađ ţađ sé ekki alltaf lýđrćđisástin sem vaki fyrir stjórnmálaforingjum ţegar ferli ađildarumsókna er ákveđiđ. Hún sagđi í ţví samhengi ađ sagt hafi veriđ ađ Svíar hefđu valiđ ţann eina dag ársins fyrir kosningar um ađild ţegar meirihluti var fyrir ađild.

BjarniBjarni Benediktsson sagđi umrćđuna um ESB vera á miklum villigötum. Ţađ vćri ekki hćgt ađ líta á ađildarviđrćđur eins og eitthvert smáverk sem menn vćru hugsanlega ađ spá í ađ kaupa. Til ţess ađ eitthvert vit vćri í svona viđrćđum ţyrfti ađ fylgja ţeim skýr pólitískur vilji af hálfu stjórnvalda og góđs meirihluta stjórnmálaflokka og ţjóđarinnar. ESB vćri ekki bara ađ semja viđ ţjóđir um ađildarsamning upp á grín, ţví allar ađildarţjóđir ESB ţurfi ađ koma ađ borđinu. Ljóst er ađ annar stjórnarflokkurinn vill ekki ganga í ESB og ljóst er ađ ríkisstjórnin hefur lýst ţví yfir ađ hlé hafi nú veriđ gert á viđrćđunum. Ţetta sé náttúrulega klúđur. Stefna Sjálfstćđisflokksins sé mjög skýr um ađ stöđva viđrćđurnar og ekki hefja ţćr ađ nýju nema fyrir ţví liggi skýr meirihlutavilji hjá ţjóđinni. Sjálfstćđisflokkurinn telur auk ţess eins og VG ađ ţađ ţjóni ekki hagsmunum Íslendinga ađ ganga í ESB.


mbl.is Landsfundurinn sterkasta vopniđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Vinsćldir Grillos endurspegla vantrú Evrópumanna á ESB

GrilloStjórnmálarýnendur í Evrópu telja ađ árangur grínarans Beppe Grillo á Ítalíu endurspegli ekki ađeins neikvćđa afstöđu Ítala til ađgerđa ítalskra stjórnmálamanna, en ađgerđir ţeirra eru sem kunnugt er međ velţóknun og vilja stjórnenda ESB.

Í ţessari grein í EUobserver er ţví m.a. haldiđ fram ađ stuđningurinn viđ Grillo grínara endurspegli ástand sem sé ađ myndast um alla Evrópu. Ć fleirum hugnast ekki hvernig stjórnendur ESB reyna a taka á ţeim vanda sem viđ blasir í efnahagsmálum.


Bloggfćrslur 10. mars 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 128
  • Sl. sólarhring: 201
  • Sl. viku: 868
  • Frá upphafi: 1232639

Annađ

  • Innlit í dag: 115
  • Innlit sl. viku: 750
  • Gestir í dag: 108
  • IP-tölur í dag: 103

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband