Leita í fréttum mbl.is

Yfirmaður AGS segir að loka verði evrubönkum

Christine Lagarde, yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hvetur yfirvöld í Evrópu til þess að flýta endurbótum á bankakerfinu, og þar með að loka bönkum reynist það nauðsynlegt.

Þetta kemur fram í EUbusiness

Þrátt fyrir allar aðgerðir sem gripið hefur verið til í ESB hefur greinilega ekki verið nóg að gert að mati yfirmanns AGS.


Djísis kræst - hvar endar þetta?

Ekki skánar þetta í ESB. Nú er það Slóvenía og Spánn sem fá alvarlegt tiltal frá framkvæmdastjórn ESB.

Tiltalið frá framkvæmdastjórninni er orðið þekkt: Of miklar og illviðráðanlegar opinberar skuldir, of hæg efnahagsstarfsemi, hæpinn bankarekstur, of lítil tekjumyndun í hagkerfinu, of mikið atvinnuleysi.

Erfiðleikar Slóveníu og Spánar eru ógn við fjármálastöðugleika, eftir því sem fram kemur í EUbusiness.

Þetta er allt orðið kunnuglegt.


mbl.is Varar við efnahag Spánar og Slóveníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískt landslag færist frá ESB, evru og Schengen

Þessi frétt frá Noregi er aðeins enn ein vísbending um að hið pólitíska landslag í álfunni er að hreyfast í átt frá ESB, evru og Schengen.

Æ fleiri efast um ágæti evrunnar og efnahagssamstarfs ESB, en vegna þess hefur efnahagskreppan á svæðinu dregist á langinn.

Það er enginn áhugi fyrir ESB-aðild í Noregi, enginn áhugi fyrir evru í Svíþjóð og lítill áhugi í öðrum löndum, eins og Póllandi, sem þó eiga samkvæmt samningum við ESB að taka evru upp.

Norski miðflokkurinn vill nú að Normenn fari út af Shengen og sú umræða hefur einnig heyrst að Norðmenn eigi að losa sig við EES-samninginn og gera í staðinn tvíhliða samninga við ESB.

Hér á landi hjálpaði varaformaður Samfylkingarinnar í sjónvarpsumræðunum í gær landsmönnum að átta sig á því að Evrópustefna flokksins er að miklu leyti byggð á sandi.


mbl.is Miðflokkurinn vill Noreg úr Schengen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frakkar orðnir þreyttir á efnahagsleiðsögn Þjóðverja

Frakkar eru uggandi yfir sínum hag. Þeir eru vart búnir að jafna sig á því að ráðherra þeirra þurfti að hætta með skottið á milli lappanna, er upp komst að hann treysti fjármunum sínum betur á frankareikningum í Sviss en á evrureikningum í Frakklandi, þegar í ljós kemur að efnahagsmálin eru enn í frosti í Frans ....

Þessu er meðal annars lýst hér á vef Financial Times í dag.

Þrátt fyrir að Frakkar hafi að sumu leyti staðist þjóða best skilyrði evrusamstarfsins um verðbólguþróun hafa þeir átt í ströggli með framleiðslugeirann og hagvöxtur verið lítill eða enginn með þeim afleiðingum að atvinnuleysi bara eykst.

Eftirspurn og neysla duga ekki til að efla franskan hag, og útflutningur tekur vart við sér í samanburði við samkeppnislönd. Kaupmáttur dregst saman, ekki síst vegna skattahækkana sem eru komnar til vegna þeirra hugmynda sem liggja til grundvallar efnahagsstjórn í ESB og flestum ríkjum sambandsins. Það eru ekki hvað síst Þjóðverjar sem taldir eru keyra áfram þessar hugmyndir um sparnað og skatta. Fyrir vikið ná hjól atvinnulífs ekki að snúast á nægum hraða í Evrópu.

Ýmsir spá því að þess sé ekki langt að bíða að upp úr sjóði á milli Þjóðverja og Frakka sem eru orðnir langþreyttir á því að lúta forsögn Angelu Merkel og annarra Þjóðverja í efnahagsmálum.


Bloggfærslur 10. apríl 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 40
  • Sl. sólarhring: 197
  • Sl. viku: 780
  • Frá upphafi: 1232551

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 670
  • Gestir í dag: 35
  • IP-tölur í dag: 35

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband