Leita í fréttum mbl.is

Vandinn á Kýpur mun meiri en áđur var taliđ

Ţađ eru greinilega ekki öll kurl komin til grafar á evrusvćđinu. Samkvćmt međfylgjandi frétt Morgunblađsins ţurfa kýpversk stjórnvöld ađ leggja til um ţrjátíu prósentum meira en áđur var taliđ. Ástandiđ er ţví mun alvarlegra en áđur var taliđ.

Um leiđ og vandinn dýpkar á Kýpur breiđist hann út á evrusvćđinu. Lagarde forstjóri AGS og Olli Rehn efnahagsmálastjóri ESB beina alvarlegum tilmćlum til Spánar og Slóveníu um ađ ţau taki til í opinberum fjármálum og bankamálum.

Fréttir frá Frakklandi eru einnig fremur daprar. Lítill sem enginn hagvöxtur, vaxandi atvinnuleysi og ríkisfjármálavandi.

Á sama tíma vill Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ ađ Íslendingar taki upp evru sem gćti haft í för međ sér sams konar atvinnuleysi og á Spáni og Grikklandi. Á sama tíma lítur öll Evrópa til ţess hvernig Ísland hefur leyst sín mál eftir kreppuna - og í sjálfri framvinduskýrslu ESB um Ísland kemur fram ađ ţađ hafi veriđ Íslendingum til góđa ađ hafa eigin gjaldmiđil eftir bankakreppuna.


mbl.is 5,5 milljarđa evra munur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Framvinduskýrsla ESB um Ísland viđurkennir ágćti sjálfstćđs gjaldmiđils

Framvinduskýrsla ESB um ađildarviđrćđur viđurkennir međ opnum hćtti ađ ţađ hafi komiđ Íslendingum til góđa í yfirstandandi kreppu ađ vera međ eigin gjaldmiđil.

Í skýrslunni segir í lauslegri ţýđingu ađ á heildina litiđ sé Ísland enn ađ hafa hag af styrkri verđ-samkeppnisstöđu gagnvart viđskiptakeppinautum sínum og ađ ţađ séu afleiđingar af gengisbreytingum krónunnar í yfirstandandi kreppu.

Á ensku hljóđar ţetta svo: „Overall, Iceland still benefits from strong price competitiveness vis-á-vis its main trading partners as a result of the marked depreciation of the króna during the crisis."

Ţađ er ljóst ađ mörg ríki á suđurjađri evrusvćđisins öfunda okkur af ţessari stöđu.


Hvernig Íslandi verđur komiđ inn í ESB ţótt Íslendingar vilji vera fyrir utan

Umsóknin ađ ESB og ađlögunarferliđ gerir ţađ ađ verkum ađ ţađ er hćgt ađ koma Íslandi inn í Evrópusambandiđ ţótt Íslendingar vilji alla jafna vera fyrir utan ţađ. Ţađ ţarf bara ađ bíđa nógu lengi og finna ţann eina tímapunkt sem mögulegt getur veriđ ađ ná fram meirihlutavilja - svona líkt og sćnska ríkisstjórnin gerđi til ađ koma Svíum inn í ESB.

Atli Harđarson, heimspekingur og skólameistari, skrifar athyglisverđa grein sem birt er í Morgunblađinu í dag. Greinin ber heitiđ Hvernig er hćgt ađ komast í Evrópusambandiđ ţótt flestir vilji vera fyrir utan ţađ?

Ţar segir Atli í upphafi:

„Í augum ţeirra sem standa ađ umsókn Íslands um inngöngu Evrópusambandiđ kann andstađa viđ ađild ađ sýnast vandamál. Almennt er gert ráđ fyrir ađ á einhverju stigi verđi ţjóđaratkvćđagreiđsla og ţađ kann ađ virđast erfitt ađ koma málinu í gegn ef flestir eru á móti. Ţetta vandamál er ţó alls ekki eins stórt og virđast kann. Ef réttum ađferđum er beitt er hćgt ađ komast inn ţótt fylgi viđ ţađ sé nćr öllum stundum vel innan viđ helming.
En hverjar eru ţessar réttu ađferđir?“

Stuttu síđar segir Atli:

„Ţetta síđara, ađ umsóknin geti stađiđ opin í ótiltekinn tíma, virđist nćstum í höfn. Samt ţarf áfram ađ passa ađ enginn geti knúiđ á um ađ máliđ verđi klárađ og ţannig eyđilagt allt saman. Ţađ er ágćtt ađ láta viđ og viđ í veđri vaka ađ ţađ sé veriđ ađ opna einhverja kafla eđa kíkja í einhverja pakka eđa semja um eitthvađ – en umfram allt ekki gera neitt sem getur orđiđ til ţess ađ ţađ verđi rokiđ í ţjóđaratkvćđagreiđslu um ađild á kolvitlausum tíma. Máliđ er ađ láta fullgilda umsókn standa opna. Svo er bara ađ bíđa.“

Og undir lokin segir hann:

„Á nćstu áratugum koma vísast kollsteypur, alls konar hryđjuverk, ógnir og skelfingar, kannski stríđ úti í heimi, nýjar kreppur – eitthvađ sem hristir vel upp í fólki svo almenningsálit sveiflast til í nokkrar vikur, jafnvel mánuđi. Ef umsóknin stendur munu á endanum atburđir verđa sem valda ţví ađ fylgi viđ ađild sveiflast ađeins yfir 50% í dálitla stund og ţá skiptir öllu ađ hćgt sé ađ vinna hratt. Ţegar ţar ađ kemur má sem best láta svo heita ađ búiđ sé ađ opna alla kaflana og kíkja í alla pakkana en ţađ skiptir ekki öllu máli. Bara ađ kýla á fjandans ţjóđaratkvćđagreiđsluna og málinu er reddađ.“

Ţessi grein Atla er skyldulesning fyrir alla áhugamenn um Evrópusambandiđ - og líka hina sem hafa ekki áhuga á ţví!


Bloggfćrslur 11. apríl 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 50
  • Sl. sólarhring: 205
  • Sl. viku: 790
  • Frá upphafi: 1232561

Annađ

  • Innlit í dag: 45
  • Innlit sl. viku: 680
  • Gestir í dag: 45
  • IP-tölur í dag: 43

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband