Leita í fréttum mbl.is

Mistök hjá Kýpur að taka upp evru segir fyrrum utanríkisráðherra

gangafraokkurÞað voru mistök hjá Kýpur að taka upp evru árið 2008 sagði fyrrum utanríkisráðherra Kýpur í viðtali við Egil Helgason í Silfri Ríkissjónvarpsins í dag. Hún sagði jafnframt viðbrögð þríeykisins svokallaða, ESB, AGS og Seðlabanka Evrópu væri að ganga frá Kýpverjum dauðum.

Ráðherrann fyrrverandi, Erato Kozakou-Marcoullis, sagði Kýpverja marga vera undrandi yfir þeirri hörku sem ESB sýndi gagnvart þeim í yfirstandandi kreppu. Hún sagði að sú aðferð sem þríeykið svokallaða hefði ætlað að fara gagnvart sparifjáreigendum - aðferð sem kölluð var að snoðklippa sparifjáreigendur - hefði vakið upp hörð viðbrögð, ekki aðeins á Kýpur, heldur einnig á Möltu, í Luxemborg og í alþjóðlegum fjölmiðlum víðar í Evrópu og Bandaríkjunum.

Kýpverjar búa nú við miklar þrengingar, sagði ráðherrann fyrrverandi, og á henni og Agli Helgasyni var að heyra að betra hefði verið fyrir Kýpverja að halda sig við sitt gamla pund.

- Þið Íslendingar eruð á mörgu leyti fyrirmynd annarra, sagði ráðherrann, og var þar greinilega með það í huga hvernig Íslendingar hefðu tekist á við kreppuna. Þið eruð ákveðin og sjálfstæð sagði ráðherrann. Við erum hins vegar háð ESB, bætti hún við - And they are killing us!

 glataheillikynslod

 

tilraunfyriresb


Þráinn Eggertsson prófessor í hagfræði: Varúðarorð um evruna

Í Frjálsri verslun sem kom út um áramótin er viðtal við Þráin Eggertsson, prófessor í hagfræði. Þar fjallar hann meðal annars um evruna. Viðtalið er endurbirt í vefritinu Heimur.is.

Þar segir Þráinn meðal annars (fyrirsagnir Heimssýnar):

Ferlið á myntsvæðinu er hræðilegt

- Við munum búa við krónuna næstu árin, vænti ég. Það hefur ýmsa alkunna kosti að taka upp heimsmynt svo sem evruna, en einnig fylgja því vandamál og hættur. Ef íslenska hagkerfið er ekki í takt við leiðandi hagkerfi í slíku myntsamstarfi getur skapast sambærilegur vandi og nú ríður yfir Grikkland. Ég óttast sérstaklega slæmar afleiðingar af verðbólguvæntingum og óstýrilæti Íslendinga, ef við tökum upp alþjóðlega mynt. Í Þýskalandi, til dæmis, er verð á vöru og þjónustu stöðugt eða það hækkar eftir langt hlé um 1-3 prósent. Á Íslandi, svo sem á þessu ári, hækka einkaaðilar taxta sína hiklaust um 20-25 prósent og sama gildir um opinbera þjónustu. Almenn laun fylgja á eftir. Ef við notum erlenda mynt og slíkar hækkanir eiga sér stað mundi fljótlega kom að því að útflutningur okkar væri ekki lengur samkeppnishæfur og kreppa riði yfir. Til að setja hagkerfið aftur í gang væri nauðsynlegt að lækka verðlagið í landinu. Jafnvel þótt almennt samkomulag væri um lækkun verðlags vill enginn verða fyrstur til að lækka sín laun og taxta. Atvinnuleysi mundi þá breiðast út og ef til vill missti fjórðungur eða þriðjungur launþega vinnuna – eins og við höfum séð gerast í Grikklandi og á Spáni. Að liðnum nokkrum misserum mundu atvinnulausir bugast og launin lækka uns jafnvægi væri náð. Og menn mundu sennilega læra sína lexíu og hugsa upp frá því eins og Þjóðverjar um verðlagsmál. En þetta ferli er hræðilegt og oft gróðrarstía fyrir pólitískar öfgahreyfingar. -

Í lokin segir Þráinn þetta:

ESB flytur ekki út stjórnvisku og aga 

- Við þurfum einnig að endurskoða stöðu Íslands í umheiminum. Mig dreymir um að Ísland verði eins konar nýtt Hong Kong með öfluga samvinnu í efnahagsmálum við Norðurlöndin og Grænland, við Evrópusambandið og Bandaríkin og við rísandi ríki í þriðja heiminum. Það þarf stjórnvisku og aga ef slíkt dæmi á að ganga upp og hvort tveggja er af skornum skammti hérlendis. Sumir af félögum mínum hafa haldið því fram að skortur á stjórnvisku og aga séu sterk rök fyrir því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Reynsla jaðarþjóðanna í sambandinu undanfarið bendir þó til þess að Brussel flytji ekki út stjórnvisku og aga í miklu magni. -


Mjög gott fyrir Ísland að vera utan evrunnar segir hollenskur hagfræðingur

Það er mjög gott fyrir Ísland að vera fyrir utan evrusvæðið, vera með eigin gjaldmiðil og seðlabanka, sagði hollenskur hagfræðingur, Dirk Bezemer í samtali við Egil Helgason í Silfri sjónvarpsins rétt í þessu.

Það er spurning hvort forystumenn Samfylkingar og Bjartrar framtíðar hafi verið að fylgjast með?

Hollenski fræðimaðurinn lagði mikið upp úr því að Ísland væri sjálfstætt og fullvalda ríki - og gæti leyst efnahagsvanda út frá sínum forsendum og með hagsmuni Íslendinga að leiðarljósi.

Samfylkingin og Björt framtíð vilja taka þetta vald frá Íslendingum og fela að skriffinnum í Brussel.

 


Egill Helgason: Þau ætluðu að vera í Brussel en enduðu í Kína

Það var broddur í þessum lokaorðum Egils Helgasonar um ESB- og evru-vegferð Samfylkingarinnar í Silfri Egils nú rétt í þessu. Hann sagði um stöðu Samfylkingarinnar nú að forystan hefði ætlað vera í Brussel um þetta leyti, en hún hefði endað í Kína!

Það er þá kannski ástæða til að skoða og ræða nánar um Kína og eyða minna púðri í ESB og evru??

 


Hvað er evrukreppan og hversu lengi mun hún vara?

Fjölmiðlar eru uppfullir af fréttum um evrukreppuna þessa dagana. En hvað er evrukreppan? Síðustu daga hefur mest verið rætt um vandræði banka á Kýpur, en bankar í fleiri löndum eru í sviðsljósinu. Þá hafa ríkissjóðir margra evrulanda og skuldavandræði þeirra einnig verið mikið til umræðu.

Ennfremur hefur mikið verið rætt um almenna efnahagskreppu á evrusvæðinu, því framleiðsla hefur dregist saman eða staðið í stað í mörgum evrulöndum í nokkurn tíma. Afleiðing af þessu er mikið og vaxandi atvinnuleysi.

Í Financial Times í gær kemur fram að á evrusvæðinu er búist við samdrætti á fyrsta fjórðungi þessa árs og að þá hefði samdráttur á svæðinu verið samfellt í sex ársfjórðunga eða eitt og hálft ár.

Það er því eðlilegt að íbúar á evrusvæðinu velti fyrir sér hversu lengi þessi kreppa muni vara.

Hér til hliðar er til gamans varpað fram þeirri spurningu hversu lengi lesendur haldi að núverandi evrukreppa vari, þ.e. hvort henni ljúki í ár, á næsta ári, 2016, 2020, aldrei eða þegar evran hefur verið lögð af.


Bloggfærslur 14. apríl 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 11
  • Sl. sólarhring: 168
  • Sl. viku: 751
  • Frá upphafi: 1232522

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 645
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband