Leita í fréttum mbl.is

Hruni evrunnar afstýrt með tveimur atkvæðum

kypmotmÞessi frétt endurspeglar hina gífurlega viðkvæmu stöðu sem ESB og evrusvæðið eru í. Það munaði aðeins tveimur atkvæðum á kýpverska þinginu að Kýpverjar hefðu sagt skilið við evruna. Slíkt hefði haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir evrusamstarfið.

RUV greinir frá því að þingið á Kýpur hafi fyrir stundu naumlega samþykkt samkomulag ríkisstjórnar landsins við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um 10 milljarða evra neyðaraðstoð.

Tuttugu og níu þingmenn greiddu atkvæði með samkomulaginu, 27 greiddu atkvæði gegn því. Georgiades, fjármálaráðherra Kýpur, sagði samkvæmt RUV að ef þingið samþykkti samkomulagið ekki yrði algjört efnahagshrun í landinu Kýpur yrði að segja skilið við evruna.


Atvinnuleysið á evrusvæðinu heldur bara á fram að vaxa

atvleysiTugþúsundir bætast við á atvinnuleysisskrár í evrulöndunum í hverjum mánuði. Fjórðungur þeirra sem eru undir 25 ára aldri eru án atvinnu á svæðinu og tveir af hverjum þremur á Spáni og í Grikklandi.

Letta, nýr forsætisráðherra á Ítalíu, segir að aðhaldsaðgerðir ESB séu að ganga af Ítölum dauðum.

Er það þetta sem Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og fylgdarsveinar hans vilja?


mbl.is Enn eitt atvinnuleysismetið á evrusvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta maí-kaffi Heimssýnar eftir kröfugöngu og útifund í Reykjavík

Heimssýn óskar öllum launþegum til hamingju með baráttudaginn fyrsta maí og hvetur félaga í Reykjavík til að mæta í kröfugöngu á Hlemm kl. 12:45, en þar verða afhent spjöld og fleira í tilefni dagsins. 

Að kröfugöngu verkalýðsfélaganna og útifundi loknum býður Heimssýn öllum sem vilja í kaffi á meðan húsrúm leyfir og kaffi er til.

Á þessum hátíðisdegi er rétt að muna eftir því hversu miklu það skiptir fyrir launþega að atvinnuástand sé gott. Því miður hefur atvinnuleysi stóraukist í löndum ESB að undanförnu og er nú svo komið að það er að meðaltali um 12 prósent, en farið að nálgast 30% á Spáni og Grikklandi, en þar er um helmingur ungs fólks án atvinnu.

Höldum því á lofti að það er íslenskum verkalýð ekki til heilla að ganga í ESB.

Reykvíkingar og nærsveitamenn! Mætum í kröfugönguna og hlýðum á ræður verkalýðsforingjanna minnug þess hve miklu láni við höfum átt að fagna udanfarin ár í því að hafa verið fyrir utan ESB- og evrusvæðið.

Gleðjumst því á morgun og gæðum okkur á kaffinu hjá Heimssýn í Hafnarstræti 18 í miðbæ Reykjavíkur að útifundi loknum.


Bloggfærslur 30. apríl 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 40
  • Sl. sólarhring: 197
  • Sl. viku: 780
  • Frá upphafi: 1232551

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 670
  • Gestir í dag: 35
  • IP-tölur í dag: 35

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband