Mánudagur, 8. apríl 2013
Harðstjórn þurfti til að koma evrunni á koppinn
Það er merkileg játning hjá Helmut Kohl fyrrverandi kanslara Þýskalands að hann hafi beitt harðræði til að tryggja að flokkur hans samþykkti upptöku evru. Það er ekki síður athyglisvert að hann telur að Þjóðverjar hefðu aldrei samþykkt evruna í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þetta kemur þeim sem hafa fylgst með gangi mála þó ekki sérlega á óvart.
Þetta er hins vegar merkileg staðfesting frá helsta innanbúðarmanni við innleiðingu evrunnar um að allt þetta ferli byggðist á þeim ólýðræðislega grunni sem æ síðan hefur verið eitt af einkennum Efnahags- og myntbandalags Evrópu þar sem Seðlabanki Evrópu og starfsemi hans er eitt helsta táknið fyrir að það er afl hins sterka en ekki lýðræðið sem stýrir för.
Í EUobserver kemur fram að vinnubrögðin við að koma evrunni á koppinn, þar sem megináherslan var á pólitíska sameiningu Þýskalands og sameiginlegan markað í Evrópu án þess að efnahagsleg skilyrði fyrir upptöku evrunnar hafi verið til staðar sé ein meginástæðan fyrir erfiðleikum evrunnar í dag.
![]() |
Keyrði evruna í gegn eins og einræðisherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 8. apríl 2013
Evruríkin geta ekki fótað sig án aðstoðar
Það er merkilegt að forsætisráðherra Spánar skuli telja að evruríkin geti ekki fótað sig án aðstoðar, eins og fram kemur í meðfylgjandi frétt á vef Viðskiptablaðsins.
Það er ekki síður merkilegt að ráðherrann skuli telja að Seðlabanki Evrópu eigi að fara út í aðgerðir til stuðnings ríkisrekstri evrulandanna þvert á upprunalega stefnu og samþykktir fyrir evrópska seðlabankann.
Það er því fokið í flest skjól hjá evruríkjunum þegar þau hafa sett stefnu Seðlabanka Evrópu gjörsamlega á hvolf - en í raun er bankinn þegar byrjaður að beita ráðum af þessu tagi.
Mánudagur, 8. apríl 2013
Hvaða flandur er þetta á Samfylkingarforystunni í útlöndum?
Það er merkilegt þetta flandur á Samfylkingarforystunni í útlöndum nú rétt fyrir kosningar. Það mætti ætla að flokkurinn sé búinn að gefast upp á því að sannfæra kjósendur hér á landi um ágæti Evrópustefnunnar.
Kannski er þetta besta leiðin fyrir Samfylkinguna til að komast í fjölmiðla. Svo þarf sjálfsagt að hugsa um þá kjósendur sem búa erlendis.
Sérstaka athygli vekur að Árni Páll hafi kynnt formanni danskra krata hugmyndir Samfylkingarinnar um að hraða ferlinu um umsókn Íslands um aðild að ESB. Árni talaði um nákvæmlega það sama um mitt ár 2009 - og þá átti aðeins að taka 12 mánuði að koma Íslandi inn í ESB!
![]() |
Árni Páll fundaði með Thorning-Schmidt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 8. apríl 2013
Össur reynir að koma ESB-málum á kortið kortéri fyrir kosningar
Af þessari frétt Morgunblaðsins má sjá að Össur er að reyna að koma ESB-málunum aftur á kortið kortéri fyrir kosningar.
Það er verst fyrir hann og Samfylkinguna að kjósendur hafa lítinn áhuga á þessu ESB-brölti. Aðeins um fimmtungur kjósenda telur Evrópumálin vera eitt af þremur mikilvægustu málunum.
Jóhanna Sigurðardóttir telur það meira að segja miklu mikilvægara að ræða við Kínverja, enda hefur hún alltaf verið hálfvolg í þessum Evrópumálum.
![]() |
Füle: ESB tekur tillit til séríslenskra aðstæðna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 8. apríl 2013
Af hverju er ráðherrann að ítreka að Kýpur muni ekki yfirgefa evrusamstarfið?
Það er merkilegt að fjármálaráðherra Kýpur skuli þurfa að ítreka æ ofan í æ að landið sé ekki á leiðinni að yfirgefa evrusamstarfið. Ástæðan er sú að sú krafa og þau sjónarmið eru lífseig að best væri fyrir landið að hætta að nota evruna og taka upp eigin mynt.
Kýpverjar eru margir hverjir öskuillir yfir því hvernig ESB og Seðlabanki Evrópu tóku á þeirra málum. Ráðherrann þarf greinilega að hafa sig allan við til að verjast þeim sem vilja segja skilið við evruna.
![]() |
Myndi færa Kýpur aftur um aldir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 8. apríl 2013
Vantreysta þeir evrureikningunum?
Meðfylgjandi frétt Morgunblaðsins bendir til þess að annað hvort þyki Frökkum eðlilegt að fela evrurnar sínar á frankareikningum í Sviss, eða að þeir trúi flestu illu upp á stjórnmálamenn.
Hvort tveggja er náttúrulega slæmt. Hins vegar er viðbúið að aðgerðir ESB gegn sparifjáreigendum á Kýpur vekji upp spurningar og vangaveltur meðal fólks í öðrum evrulöndum um mögulega meðferð opinberra aðila á sparifénu.
![]() |
Neitar ásökunum um leynireikninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 8. apríl 2013
Kröfur ESB gegn Portúgal utan laga og réttar
Nú er komið í ljós að kröfur ESB gegn Portúgölum standast ekki lög eins og fram kemur í meðfylgjandi frétt Morgunblaðsins. Dómstóll hafnaði því að bætur avinnulausra, sjúkra og aldraðra yrðu skertar frekar.
Forsætisráðherra Portúgals, Pedro Passos Coelho, segir að staða Portúgals sé mun viðkvæmari nú en nokkru sinni áður. Erfitt verði að mæta kröfum ESB nú.
![]() |
Boða stóraukinn niðurskurð í Portúgal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 8. apríl 2013
Kýpur orðið að Kúbu Evrópu
Lýsing Gylfa Magnússonar dósents og fyrrverandi ráðherra á ástandinu á Kýpur í vefritinu EUobserver leiðir hugann að ummælum hans um Kúbu norðursins. Gylfi lýsir fálmkenndum viðbrögðum ESB við ástandinu á Kýpur og segir gjaldeyrishöftin þar mun skaðlegri en þau sem sett voru hér á landi.
Í vefritinu er einnig talað við Þorfinn Ómarsson, sem segir sjálfstæðan gjaldmiðil hafa hjálpað okkur á sársaukaminni hátt út úr bankakreppunni en ef við hefðum verið með evru.
(Reyndar vekur fullyrðing vefritsins um að gengið hafi lækkað um 100% upp ýmsar spurningar - en svona hugsanavilla hefur reyndar sést áður á virðulegum stöðum ....)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 8. apríl 2013
Nýjustu færslur
- Stóru breytingarnar
- Misvægi og misskipting í Evrópusambandinu
- Lítil vinna fyrir ungdóminn á evrusvæðinu
- Aðeins meira um veikleika Evrópusambandsins
- Veikleikar Evrópusambandsins
- Kári sveiflar sverði
- Svaraði Markús ekki?
- Einföld lausn
- Gleðilega þjóðhátíð
- Nagli Hjartar og nokkrar einfaldar staðreyndir
- Horft í gegnum þokuna í bókunarmálinu
- Landráð?
- Öskrandi stríðsvagn fyrir Íslendinga
- Hann þrengir að öndunarveginum
- Það er ekki smæðin
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 14
- Sl. sólarhring: 171
- Sl. viku: 754
- Frá upphafi: 1232525
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 648
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar