Leita í fréttum mbl.is

Hvorki Sjálfstæðisflokkur né Framsókn vilja kosningu um viðræður

Æðstu stofnanir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, og ríkisstjórnin, telja enga ástæðu til að láta kjósa um áframhald viðræðna við ESB nema því aðeins að til þess bær stjórnvöld vilji halda viðræðunum áfram.

Þessi afstaða er alveg skýr í samþykktum æðstu stofnana flokkanna og í stjórnarsáttmálanum.

Létu flokkarnir fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna væri það ekkert annað en stór svik við kjósendur, engu minni en svik Vinstri grænna við kjósendur sína vorið og sumarið 2009.

Þetta ætti hverjum einstaklingi að vera ljóst. Það er alveg ljóst að Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn vilja vera utan ESB og því hætta viðræðum um aðild. Þeir vilja ekki hefja viðræður að nýju. Komi hins vegar til þess, þvert gegn öllum vísbendingum, að ætlunin sé að hefja viðræður að nýju þá verði það ekki gert öðruvísi en svo að afstaða verði tekin til slíkra viðræðna í atkvæðagreiðslu.

Í sáttmála ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks segir um umsóknina um aðild að ESB: Gert verður hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og úttekt gerð á stöðu viðræðnanna og þróun mála innan sambandsins. Úttektin verður lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar og kynnt fyrir þjóðinni. Ekki verður haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.

Það er fróðlegt að bera sáttmálatextann við samþykktir æðstu stofnana flokkanna sem að ríkisstjórninni standa.

Landsfundarsamþykkt Sjálfstæðisflokksins hljóðar svo: „Landsfundur telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið með því að standa fyrir utan Evrópusambandið. Áréttað er að aðildarviðræðum við ESB verði hætt og þær ekki teknar upp aftur nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.“

Flokksþingssamþykkt Framsóknarflokksins hljóðar svo: „Framsóknarflokkurinn telur hag lands og þjóðar best borgið utan Evrópusambandsins. Ekki verði haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.“


mbl.is Skýrsla um ESB kynnt í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnvöldum í Evrópu mistekst að auka atvinnu

Eins og þessi frétt ber með sér hefur stjórnvöldum í Evrópu mistekist að bæta atvinnuástandið. Sparnaður hefur verið mikill í opinberum rekstri víðast hvar og Seðlabanki Evrópu gerir lítið annað en að halda í horfinu, því þrátt fyrir lága vexti og víðtæk lán til fjármálafyritækja hefur ekki tekist að fá hjól atvinnulífsins til að snúast hraðar.

Eins og fréttin ber með sér er staðan þó ólík eftir löndum. Atvinnuleysi er tiltölulega „lítið“ í Þýskalandi, eða 5%, en það er næstum 30% í Grikklandi og á Spáni, en í þessum löndum eru 55-60% ungmenna án atvinnu.

Atvinnuleysið er að meðaltali 12,3% á evrusvæðinu.


mbl.is Svartnættið blasir við ungu fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. júlí 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 7
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 837
  • Frá upphafi: 1232359

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 749
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband