Leita í fréttum mbl.is

Gunnar Bragi Sveinsson eykur samvinnuna viđ Norđmenn á grunni EES-samningsins

Fram kemur í ţessari frétt Morgunblađsins ađ stjórnvöld á Íslandi og í Noregi stefna ađ ţví ađ auka samstarfiđ til ađ gćta hagsmuna sinna innan EES-samstarfsins. Eins og áđur hefur komiđ fram hefur EES-samningurinn breyst talsvert frá ţví hann var undirritađur og nćr nú til víđari sviđa en áđur. Ţannig vekur hann ć oftar upp spurningar, bćđi hér á landi og í Noregi, hvort hann standist stjórnarskrá landanna.
 
Frétt um máliđ á mbl.is er svohljóđandi: 
 

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráđherra fundađi í dag međ Ingvild Nćss Stub, ađstođarevrópumálaráđherra Noregs. Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráđuneytinu rćtt hafi veriđ um EES-samninginn á fundinum, framkvćmd hans og hagsmunagćslu innan EES-samstarfsins.

„Ţau fóru yfir breytta stefnu Noregs í málefnum EES og ţćr ađgerđir sem ný norsk ríkisstjórn hefur gripiđ til í ţví skyni ađ efla ţátttöku og hagsmunagćslu Noregs á vettvangi EES. Utanríkisráđherra gerđi grein fyrir breyttum áherslum nýrrar ríkistjórnar Íslands í Evrópumálum og lagđi áherslu á mikilvćgi EES-samningsins, sem er grunnurinn ađ samstarfi Íslands viđ Evrópusambandiđ,“ segir ennfremur.

Ţá hafi ráđherrarnir veriđ sammála um mikilvćgi ţess ađ auka enn frekar samstarf Íslands og Noregs á vettvangi EES međ ţađ fyrir augum ađ efla hagsmunagćslu ríkjanna innan EES-samstarfsins. 

mbl.is Vilja efla samstarfiđ á vettvangi EES
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Fundur um Bretland og EES á vegum Evrópu­vaktarinnar í hádegi á fimmtudag í Háskóla Íslands

Evrópuvaktin, RNH (Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt) og Alţjóđamálastofnun Háskóla Íslands bođa til hádegisfundar fimmtudaginn 30. janúar klukkan 12.00 til 13.00 í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, međ dr. Richard North sem hefur sérhćft sig í rannsóknum á Evrópusambandinu og sérstaklega stöđu Breta innan ţess.

Frá ţessu er greint á vef Evrópuvaktarinnar. 

Ţar segir ennfremur:

 

Miklar umrćđur eru nú í Bretlandi um framtíđarsamband landsins og ESB. David Cameron forsćtisráđherra hefur lofađ ţjóđaratkvćđagreiđslu um ađild Breta ađ ESB á árinu 2017 fái hann brautargengi í ţingkosningum 2015. Mörg viđhorf eru reifuđ og dr. Richard North hefur fćrt rök fyrir ţví sem hann kallar Norway Option – norska kostinn. Ţar lítur hann á samband Noregs viđ ESB á grundvelli EES-samningsins. Skođanir hans á ţví efni eiga ekki síđur erindi til Íslendinga en Breta eđa Norđmanna.

Dr. Richard North stundar rannsóknir og greiningu á stjórnmálum og ţróun ţeirra. Hann er rithöfundur og bloggari. Hann hefur starfađ á öllum stigum stjórnsýslu en hóf störf ađ umhverfis-heilbrigđismálum á sveitarstjórnarstigi. Hann sinnti hagsmunagćslu fyrir smáframleiđendur í viđskiptalífinu, var í fjögur ár rannsóknastjóri fyrir stjórnmálaflokk á ESB-ţinginu. Í tíu ár hefur hann starfađ sem sjálfstćđur ráđgjafi fyrir breska ţingmenn og ráđherra í ríkisstjórn Bretlands.

Richard hefur skrifađ nokkrar bćkur međ blađamanninum Christopher Booker og má ţar nefna Mad Officials og Great Deception - the definitive history of the European Union auk ţess Scared to Death ţar sem lýst er fyrirbćrinu hrćđsla. Ţá hefur hann sjálfur skrifađ nokkrar bćkur ţar á međal Ministry of Defeat um misheppnađar ađgerđir Breta í suđurhluta Íraks og Many Not the Few, um hina hliđina á orrustunni um Bretland í síđari heimsstyrjöldinni. Nýjasta ritverk hans ber heitiđ The Norway Option sem er gefiđ út af Bruges Group og snýst um tengsl Noregs viđ ESB.

Richard stóđ međ öđrum ađ ţví ađ koma á fót lýđrćđishreyfingunni The Harrogate Agenda og hann bloggar á síđunni EUreferendum.com ţar sem hann greinir og segir álit sitt á ţróun ESB-málefna. Hann er einn ţeirra sem keppa til úrslita í ritgerđa- og tillögusamkeppni á vegum IEA, Institute of Economic Affairs í London, um svonefnd Brexit-verđlaun, ţađ er stöđu Bretlands eftir úrsögn úr ESB, keppninni er ekki lokiđ. 

 


Leiđtogar á Spáni og Ítalíu óttast vaxandi ESB-andstöđu

Mariano Rajoy, forsćtisráđherra Spánar, og Enrico Letta, forsćtisráđherra Ítalíu, óttast vaxandi áhrif ţeirra sem eru gagnrýnir á og hafa efasemdir um ýmislegt í gerđum ESB.

Ráđherrarnir létu fara frá sér ummćli í ţessa veru í byrjun vikunnar eins og fram kemur á EUObserver.com

Ţar kemur jafnframt fram ađ Letta segir ţađ vera skammsýni ef leiđtogar ESB taki ekki mark á rísandi bylgju evruandstćđinga í ţeim kosningum sem framundan eru til ţings sambandsins. Rajoy óttast ađ ESB-ţingiđ geti orđiđ illa starfhćft eftir kosningarnar í vor vegna ESB-andstöđunnar. 


Bloggfćrslur 28. janúar 2014

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 88
  • Sl. viku: 888
  • Frá upphafi: 1232323

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 791
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband