Leita í fréttum mbl.is

Íslendingar vilja ekki framselja vald til ESB

Þessi könnun sýnir í raun að Íslendingar vilja ekki framselja vald til ESB. Tæp 70% vilja ekki framselja hluta íslensks ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana.
 
Mbl.is segir svo frá: 
 

Tæp 69% aðspurðra eru frekar eða mjög andvíg því að stjórnarskrá Íslands verði breytt þannig að Alþingi verði heimilað að framselja hluta íslensks ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana.

Þetta er niðurstaða könnunar sem MMR hefur gert fyrir vefsíðuna Andríki. Aðeins rúm 14% eru frekar eða mjög hlynnt slíkri stjórnarskrárbreytingu, samkvæmt könnuninni, en 16,7% eru hvorki hlynnt né andvíg.

Meirihluti er gegn slíku valdaframsali, sama hvort litið er til kyns, aldurs, búsetu, menntunar, starfs eða tekna. 

mbl.is Á móti framsali valda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukinn meirihluti gegn aðild að ESB

Nýjasta könnun MMR sýnir að þeim fer fjölgandi sem eru andvígir aðild að ESB. Nú eru 52,4% andvíg inngöngu en 29,6% hlynnt henni.
 
Mbl.is segir frá þessu. Þar segir: 
 
 

MMR kannaði nýlega afstöðu almennings til þess að Ísland gangi í Evrópusambandið. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 29,6% hlynnt því að Ísland gangi í Evrópusambandið nú, borið saman við 32,3% í janúar. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 52,4% vera andvíg því að Ísland gangi í Evrópusambandið nú, borið saman við 50,0% í janúar.

Spurt var: Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að Ísland gangi í Evrópusambandið (ESB)?

Svarmöguleikar voru: Mjög andvíg(ur), frekar andvíg(ur), hvorki andvíg(ur) né hlynnt(ur), frekar hlynnt(ur), mjög hlynnt(ur), veit ekki og vil ekki svara.

mbl.is Tæplega þriðjungur vill í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. febrúar 2014

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 84
  • Sl. sólarhring: 92
  • Sl. viku: 1372
  • Frá upphafi: 1232312

Annað

  • Innlit í dag: 79
  • Innlit sl. viku: 1237
  • Gestir í dag: 75
  • IP-tölur í dag: 71

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband