Leita í fréttum mbl.is

Katrín nær vopnum sínum í VG

Katrinjak

Katrín Jakobsdóttir er að styrkja sig í sessi í VG. Nú fær hún samþykkta tillögu í flokknum sem hún náði ekki í gegn fyrir ári síðan. Nú fékk hún þingflokkinn til að samþykkja að gera eigi hlé á viðræðum og efna til kosninga um framhaldið. Í fjarveru varaformannsins í þingflokknum náði Katrín nú að koma þessu í gegn.

Vandamálið er bara, eins og bent hefur verið á, að það er í raun búið að gera hlé á viðræðum og tilkynna ESB það. Þess vegna er fyrri hluti tillögunnar óþarfur. 

Þessi tillaga er því ekkert annað en tilraun hjá formanni VG til að vinna sér svæði í umræðunni og afmarka sig örlítið frá Samfylkingunni.

Eina leiðin fyrir Vinstri græn til að skilja sig frá Samfylkingunni er að styða tillögu utanríkisráðherra í málinu. 


mbl.is Stefnt verði að þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Formannsslagur Samfylkingar í þingsölum

katjul

Þegar skyggnst er á bak við tjöldin í þingsölum Alþingis þessa dagana þykjast glöggir rýnendur sjá að vonbiðlar um formannsembætti í Samfylkingunni nýti tækifærið sem best þeir geta til þess að vekja athygli á sér til að styrkja stöðu sína um leiðtogahlutverk í flokknum. 

Samfylkingin fór mjög illa út úr síðustu kosningum, enda eini flokkurinn sem hefur það skýrt á stefnuskrá sinni að gengið skuli í Evrópusambandið. Flokkurinn galt afhroð í síðustu þingkosningum.

Þess vegna er sótt talsvert að Árna Páli Árnasyni formanni Samfylkingar. Þar fer fremst í flokki Katrín Júlíusdóttir varaformaður - og þykir hún hafa styrkt verulega stöðu sína í slagnum sem framtíðarleiðtogi í umræðunni um Evrópumálin. Reyndar þykir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir fylgja Katrínu fast á eftir í baráttunni við Árna Pál Árnason.

Svona er bara pólitíkin. Þetta er bara örlítil fréttaskýring um það. 

 

 

 

 

 

 


Engar þjóðaratkvæðagreiðslur í ESB

Gunnlaugur Jónsson framkvæmdastjóri bendir á að þegar komið væri inn í Evrópusambandið yrði erfitt að koma fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum af ýmsu tagi, hvort sem væri um ESB sjálft eða almennt um mikilvæg mál á Íslandi. Auk þess þyrftu menn að að leggja á sig talsvert ferðalag til að mótmæla, því ekki væri nóg að fara á Austurvöll.
 
Það eru forréttindi að þurfa ekki annað en að labba út á Austurvell til að ná eyrum þingmanna. Veggir þings og stofnana ESB eru það þykkir og fjarlægir að rödd íslenskra mótmælenda myndi líklega aldrei heyrast þar.
 
Sjá grein Gunnlaugs hér.  


Lilja Rafney Magnúsdóttir gagnrýnin á ESB

LiljaRafney

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, var nokkuð gagnrýnin á ýmislegt hjá Evrópusambandinu í umræðu á Alþingi rétt í þessu um skýrslu Hagfræðistofnunar um þróunina í ESB. Þannig minntist Lilja Rafney á óheppilega kynjaskiptingu í stjórnarstofnunum sambandsins, mikinn ójöfnuð og misskiptingu. Enn fremur sagði hún mikinn óróleika vegna evrunnar.

Orð Lilju Rafneyju Magnúsdóttir undirstrika óánægjuna með ESB og þróunina þar hjá hópi Vinstri grænna. 


Félög sjálfstæðismanna styðja afturköllun umsóknar að ESB

Ýmis félög sjálfstæðismanna hafa að undanförnu lýst yfir stuðningi við ályktun ríkisstjórnar um afturköllun umsóknar að ESB. Nú síðast eru það samtök eldri sjálfstæðismanna sem álykta um ESB í þessa veru eins og meðfylgjandi frétt ber með sér.
mbl.is Samtök eldri sjálfstæðismanna álykta um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni segir ESB-umsóknina hafa verið leikrit Samfylkingarinnar

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á fundi með sjálfstæðismönnum í hádeginu að nauðsynlegt væri að fara að ljúka því leikriti sem Samfylkingin hefði sett af stað með því að fá Vinstri græna til að sækja um aðild að ESB.

Bjarni sagði að það væru að verða komin 5 ár frá því að þessi vegferð hófst, en eins og kunnugt er setti fyrrverandi ríkisstjórn umsóknina á ís fyrir um ári síðan. Hann sagði að hægagangurinn í viðræðunum endurspeglaði það að í raun væri enginn vilji hjá þjóðinni til að ganga þarna inn. Eins og kunnugt er var heldur ekki vilji til þess hjá öðrum stjórnarflokknum. 

Bjarni Benediktsson sagðist geraráð fyrir að hluti Vinstri grænna muni styðja ályktun um að draga umsókn til baka    


mbl.is „Vilji þjóðarinnar skýr“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskir atvinnurekendur á móti inngöngu í ESB

Meirihluti þeirra atvinnurekenda sem taka afstöðu til málsins hér á landi voru andvígir inngöngu Íslands í ESB samkvæmt niðurstöðu nýlegrar könnunar. Þannig voru um 60% á móti inngöngu.
 
Þetta kemur fram á mbl.is.
 
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á fundi með sjálfstæðismönnum í hádeginu að ESB-málið snerist fyrst og fremst um vilja til aðildar.

mbl.is Meirihluti á móti inngöngu í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. febrúar 2014

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 84
  • Sl. sólarhring: 92
  • Sl. viku: 1372
  • Frá upphafi: 1232312

Annað

  • Innlit í dag: 79
  • Innlit sl. viku: 1237
  • Gestir í dag: 75
  • IP-tölur í dag: 71

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband