Leita í fréttum mbl.is

Hvenćr breytist blíđmćlgi ESB aftur í hótanir í makrílmálinu?

Ţađ hefur vakiđ athygli hversu fögrum orđum forystumađur í sjávarútvegsmálum og einn ráđamađur hér á landi fóru um nýlega og breytta afstöđu ESB-forystunnar í makrílmálum. Ţađ er stutt síđan ESB hótađi okkur Íslendingum hörđum refsiađgerđum vegna deilunnar.

Nú kemur skyndilega ný ásjóna ESB í ljós. Eftir allar hótanirnar. Ţetta vekur upp spurningar. Hvađ býr undir hjá ESB? Er ekki ástćđa til ađ vera á varđbergi gagnvart ţessu valdaapparati sem hefur hótađ okkur öllu illu undanfarin ár vegna ţess ađ viđ höfum stađiđ á rétti okkar? 

Er ekki líka ástćđa til ađ vera á varđbergi gagnvart ţessu ríkjasambandi sem virđist ekki hafa neinar áreiđanlegar tölur um makrílveiđar í sambandinu. 


Íslendingar og Norđmenn vilja ekki ganga í ESB

Áhuginn á inngöngu í ESB er ekki mikill á Íslandi og enn minni í Noregi. Alls eru 71% Norđmanna sem vilja ekki ganga í sambandiđ. Andstađan viđ ađild ađ ESB er mikil og stöđug í Noregi.
 
Ţetta kemur fram í mbl.is. Ţar segir ennfremur:  
 
 

Mikill meirihluti Norđmanna er andsnúinn ţví ađ ganga í Evrópusambandiđ samkvćmt niđurstöđum nýrrar skođanakönnunar fyrir norsku dagblöđin Nationen og Klassekampen sem birtar eru í dag. 71% Norđmanna vilja ekki ganga í sambandiđ samkvćmt könnuninni en 19% eru ţví hlynnt.

Ekki hafa orđiđ miklar breytingar á afstöđu Norđmanna frá ţví ađ hliđstćđ skođanakönnun var gerđ í nóvember síđastliđnum samkvćmt frétt Nationen en ţá voru 69,3% andsvíg ađild ađ ESB og 19,1% henni hlynnt.

Haft er eftir Heming Olausen, formanni samtakanna Nei til EU sem berjast gegn ađild ađ ESB ađ ţađ sé ánćgjulegt ađ andstađan sé stöđug í kringum 70% og ađ ríkisstjórnarskiptin í Noregi síđastliđiđ haust hafi ekki breytt afstöđu Norđmanna til málsins. Jan Erik Grindheim, formađur norsku Evrópusamtakanna, segir mikla andstöđu ekki koma á óvart í ljósi efnahagserfiđleikanna innan ESB. Hann vonist til ţess ađ stađan breytist. 

mbl.is 71% Norđmanna vilja ekki í ESB
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Gríđarleg spilling í Evrópusambandinu

Gríđarleg spilling ţrífst í ríkjum Evrópusambandsins. Kostnađurinn af hennar völdum nemur jafnvirđi hátt í 19 ţúsund milljarđa króna á ári. Ţetta kemur fram í skýrslu sem framkvćmdastjórn ESB kynnti í dag.

Ofangreint kemur fram í frétt Ríkisútvarpsins í dag. Sjá einnig frétt á BBC og skýrslu framkvćmdastjórnar ESB um máliđ.
 
Fréttamađur Ríkisútvarpsins segir hefur ţetta um máliđ ađ segja: 
 
Cecilia Malmström, innanríkismálastjóri Evrópusambandsins, kynnti hina nýju spillingarskýrslu undir hádegi. Segja má ađ hún hafđi hleypt henni úr hlađi međ grein sem birtist í Gautaborgarpóstinum í dag. Ţar segir hún ađ umfangiđ sé slíkt ađ ţađ grafi undan lýđrćđi og stórskađi hiđ löglega efnahagskerfi í löndunum. Malmström tekur fram ađ vissulega sé vandamáliđ mis-stórt í löndunum 28. Svíar geti til dćmis vel viđ unađ miđađ viđ margar ađrar ţjóđir.

Samkvćmt skýrslunni hefur spillingin í för međ sér gríđarlegan kostnađ fyrir ESB-ríkin, - um 120 milljarđa evra, jafnvirđi hátt í nítján ţúsund milljarđa króna, á ári. Fram kemur ađ ţađ séu mun frekar ríkisstjórnir ađildalandanna sem reyni ađ taka á spillingunni en stofnanir Evrópusambandsins. Vissulega sé starfrćkt sveit sem leiti uppi fjármálaspillingu í tengslum viđ fjárhagsáćtlun ESB, en hún hafi úr litlum fjárframlögum ađ spila og geti ţví beitt sér ađ takmörkuđu leyti.

Í skýrslunni er greint frá tveimur skođanakönnunum sem sýna ađ ţrír fjórđuhlutar ađspurđra töldu ađ spilling vćri víđtćk ESB-ríkjunum. Forsvarsmenn fjögurra af hverjum tíu fyrirtćkjum sem leitađ var til sögđu ađ spilling stćđi ţví fyrir ţrifum ađ stunda viđskipti í Evrópulöndum. 
 
 
Bloggari Heimssýnar hefur engu viđ ţetta ađ bćta. 

64,8 prósent ţeirra sem taka afstöđu eru á móti ađild ađ ESB

Hvađ á ţetta brölt allt saman ađ ţýđa? Ađ kíkja í pakkann? Ekki bara einu sinni, heldur oftar? Landsmenn eru á móti ađild ađ ESB. Um 65 prósent ţeirra sem taka afstöđu eru á móti ađild ađ ESB eins og fram kemur í Fréttablađinu í dag. Viđ vitum ađ svokallađar ađildarviđrćđur eru ekkert annađ en ađild í hćgfara skrefum. Hversu lengi geta ađildarsinnar ţyrlađ upp ryki í ţessum málum? 

Eins og Svandís Svavarsdóttir sagđi í Bylgjuţćtti í morgun ţá hafa Íslendingar almennt lítinn áhuga á ESB. 


Hversu lengi ćtla Vinstri grćn ađ berjast gegn eigin stefnumáli?

Katrinjak

Flestir ţingmenn Vinstri grćnna hafa ţá sérstöđu í hinum pólitíska heimi ađ berjast hatrammlega gegn einu grundvallar stefnumáli sínu. Ađ jafnađi vinna flokkar ađ ţví ađ ná fram stefnumáli sínu. Stöku sinnum kemur ţađ fyrir ađ flokkur hefur mál í stefnu sinni án ţess ađ vinna ađ ţví. En ađ flokkur vinni beinlínis gegn stefnumáli sínu, og ţađ af talsverđu afli, ár eftir ár, er algjört einsdćmi.

Vinstri grćn eru nefnilega algjörlega á á móti ţví ađ ganga í Evrópusambandiđ. Samt létu ráđandi öfl innan flokksins Samfylkinguna fá sig í ţá vegferđ ađ sćkja um ađild ađ ESB. Allir, sem eitthvađ hafa kynnt sér málin, vita ađ svokallađar ađildarviđrćđur eru ekkert annađ en hćgfara ađlögun umsóknarríkis ađ ESB.

Hversu lengi ćtla Vinstri grćn ađ láta ţetta viđgangast? Fyrir ári samţykktu ţau ađ gefa viđrćđum séns í ár til viđbótar. Sá séns rennur út í ţessum mánuđi. Ćtla vinstri grćn líka ađ svíkja ţá samţykkt sína? Af hverju minna engir ađrir fjölmiđlar en Heimssýnarbloggiđ á ţessa stađreynd? 


Svandís Svavarsdóttir segir ESB ekki vera neitt meginmál fyrir almenning á Íslandi

svandis

Ţađ var athyglisvert ađ heyra Svandísi Svavarsdóttur, ţingmann

brynjarn

 Vinstri grćnna, segja frá ţeirri skođun sinni í umrćđuţćtti á Bylgjunni í morgun ađ ESB vćri ekki neitt meginmál fyrir almenning á Íslandi. Ţar međ er hún ađ segja ađ nýleg skođanakönnun um vilja fólks til ţjóđaratkvćđagreiđslu um áframhald viđrćđna viđ ESB risti ekki djúpt.

Bryjnar Níelsson, ţingmađur Sjálfstćđisflokksins, tók undir međ Svandísi. Hann sagđi auk ţess ađ ef ţađ ćtti ađ kjósa um eitthvađ ţá vćri ţađ um ađild ađ ESB. Viđ vissum hvađa pakka viđ fengjum, ţ.e. ESB međ öllum sínum kostum og göllum. Spurningin vćri bara um til hve langs tíma viđ fengjum einhverjar undanţágur.


Bloggfćrslur 3. febrúar 2014

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 84
  • Sl. sólarhring: 92
  • Sl. viku: 1372
  • Frá upphafi: 1232312

Annađ

  • Innlit í dag: 79
  • Innlit sl. viku: 1237
  • Gestir í dag: 75
  • IP-tölur í dag: 71

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband