Leita í fréttum mbl.is

Opinn stjórnarfundur Heimssýnar

Á morgun, miđvikudaginn 4. febrúar, verđur haldinn opinn stjórnarfundur Heimssýnar um stöđuna í Evrópusambandsmálunum hér heima og erlendis, ekki hvađ síst í ljósi nýafstađinna kosninga í Grikklandi.

Sérstakur gestur fundarins er Hörđur Kristjánsson, ritstjóri Bćndablađsins.

Fundurinn verđur haldinn á Hótel Sögu og hefst klukkan 20 (í matsal BÍ á ţriđju hćđ).

Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum Heimssýnar.


Eru mađkar í mysu ESB-umsóknarfyrirtćkjanna?

arniPUmmćli Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar, og Sigmundar Davíđs Gunnlaugssonar, forsćtisráđherra í fyrirspurnartíma á Alţingi í gćr vekja upp spurningar um hegđun ţeirra fyrirtćkja og samtaka ţeirra sem ákafast berjast gegn ţví ađ umsókn um ađild Íslands ađ ESB verđi dregin til baka. Koma ţau hreint fram?

Árni Páll tengdi mál Prómens beint viđ stöđu ađildarumsóknar ađ ESB. Af svari forsćtisráđherra viđ fyrirspurn Árna Páls mátti varla skilja annađ en ađ fyrirtćkiđ vćri ađ reyna ađ fá einhvers konar sérstaka fyrirgreiđslu frá Seđlabankanum, í formi ódýrs gjaldeyris, til ţess ađ fjárfesta erlendis! Slíkt er vćntanlega algjörlega á skjön viđ tilgang gjaldeyrisreglna sem í gildi eru og eiga ađ tryggja hag almennings í landinu eins og ráđherrar hafa talađ um ađ undanförnu. Bćđi forsćtisráđherra og fjármála- og efnahagsráđherra segja ađ umrćtt fyrirtćki verđi ađ gera betur hreint fyrir sínum dyrum, fjármála- og efnahagsráđherra hafđi t.d. orđ á ţví í hádegisfréttum.

Ţetta mál vekur upp margar spurningar. Félag atvinnurekenda hefur rekiđ upp ramakvein vegna ţess ađ umrćtt fyrirtćki fékk ekki meinta umbeđna fyrirgreiđslu. Samtök iđnađarins taka undir ţann söng. Og Árni Páll segir í rćđu á Alţingi merkilegt ađ ţarna séu fyrirtćkin sem harđast hafi barist gegn ţví ađ umsókn um ađild ađ ESB verđi dregin til baka.
Er ţarna mađkur í mysu ESB-fyrirtćkjanna? Eru ţau ađ koma hreint fram, samanber ummćli ráđherranna?

Orđrétt sagđi Árni Páll

Nú hafa borist fréttir af ţví ađ Promens, ţađ metnađarfulla fyrirtćki, sé komiđ úr íslenskri eigu og ađ höfuđstöđvar ţess muni flytja úr landi vegna ţess ađ ţví hafi veriđ orđiđ ókleift ađ starfa innan gjaldeyrishafta. Í athugun fréttastofu Ríkisútvarpsins í gćr kemur fram ađ svipađ er upp á teningnum hjá fleiri fyrirtćkjum. Ţannig segja forsvarsmenn CCP, Creditinfo og Marel ađ í öllum ţessum fyrirtćkjum hafi komiđ til athugunar ađ flytja höfuđstöđvar úr landi og sumir telja meiri líkur en minni á ađ af ţví verđi. Ţađ er vert ađ minna á ţađ líka ađ í fyrra kom fram hjá forsvarsmönnum Össurar ađ ţađ fyrirtćki teldi styttast í veru höfuđstöđva hér á landi vegna gjaldeyrishaftanna og ţađ er engin tilviljun heldur ađ öll hafa ţessi fyrirtćki og forsvarsmenn ţeirra veriđ međal ţeirra sem hvađ harđast hafa talađ gegn hugmyndum ríkisstjórnarinnar um ađ draga til baka ađildarumsókn ađ Evrópusambandinu. Međal annars sagđi stjórnarformađur Össurar í fyrra ađ tillaga ríkisstjórnarinnar sem ţá kom fram um ađ draga til baka ađildarumsóknina vćri síđasti naglinn í líkkistuna í veru fyrirtćkisins hér á landi.

 

Hegđun Promens, eins og skilja má hana af ummćlum ráđamanna, og rök forsvarsmanna samtaka umrćddra fyrirtćkja fyrir ađild ađ ESB hljóta ađ vekja upp spurningar um mađka í mysunni. Eđa hvađ?


Andstćđingar ESB í stöđugum og góđum meirihluta

Stöđugur og góđur meirihluti er gegn inngöngu Íslands í ESB. Ţađ kemur fram í nýbirtri könnun sem Capacent Gallup gerđi fyrir Já-Ísland. Bylgjan sagđi frá ţví í hádeginu ađ 53,2 prósent landsmanna séu andvíg ţví ađ Ísland ćski inngöngu í ESB en 46,2 prósent séu ţví fylgjandi. Ţá kemur fram ađ rétt rúmlega helmingur ţjóđarinnar sé ţví andvígur ađ draga umsóknina um ađild ađ ESB til baka.

Sjá nánar á visir.is.


Bloggfćrslur 3. febrúar 2015

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 41
  • Sl. sólarhring: 164
  • Sl. viku: 1819
  • Frá upphafi: 1231987

Annađ

  • Innlit í dag: 38
  • Innlit sl. viku: 1621
  • Gestir í dag: 38
  • IP-tölur í dag: 38

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband