Leita í fréttum mbl.is

Egill Helgason segir evrusvæðið óhagkvæmt

silfuregils_ruvEgill Helgason áttar sig á því að Evrópusambandið er ekki hagkvæmt gjaldmiðilssvæði. Hann segir í nýlegri færslu: „Evrópusambandið sem er alltof ólíkt innbyrðis til að sameiginlegur gjaldmiðill virki.“

Enn fremur segir Egill: „Þau ná ekki vel saman Tsipras og Varoufakis annars vegar og  Merkel og Juncker hins vegar. Forysta ESB átti mun auðveldara með að tala við gamla spillta liðið í Nea Demokratia og Pasok en Syriza.“

Egill þekkir sjálfsagt betur til í Grikklandi en margur.

Væntanlega er hann sammála bandaríska prófessornum Robert Aliber sem segir að evran henti ekki Íslendingum.


Bretum betur borgið utan ESB segir í nýrri skýrslu

Ný og viðamikil skýrsla sýnir að Bretum er betur borgið utan ESB miðað við núverandi regluverk og aðstæður. Einungis viðamiklar breytingar á regluverki ESB gætu breytt þessu mati. Fram kemur að útflutningur breskra fyrirtækja á vörum beint til ESB sé í raun fremur lítill en samt verða þau að hlíta íþyngjandi regluverki sambandsins. 

Það verður fróðlegt að fylgjast með þróun ESB-málanna í Bretlandi næstu árin. Cameron forsætisráðherra hefur lofað þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild landsins að ESB fyrir árslok 2017.

 


mbl.is Miklar breytingar nauðsynlegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðsluáróður ESB varðandi Grikkland - enn einu sinni?

JunckerTsiprasJean-Claude Juncker, formaður framkvæmdastjórnar ESB, kom heiminum í uppnám um daginn með því að tala um að úrslitastund yrði í dag vegna Grikklands. Í dag segir hann hins vegar fundinn nánast vera spjallfund þar sem menn bera saman bækur sínar. Samt kalla sumir fundinn enn neyðarfund.

Juncker tekst sannaralega að halda mönnum við efnið.


mbl.is Dvínandi vonir um samkomulag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. júní 2015

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 226
  • Sl. sólarhring: 228
  • Sl. viku: 1704
  • Frá upphafi: 1230034

Annað

  • Innlit í dag: 201
  • Innlit sl. viku: 1505
  • Gestir í dag: 179
  • IP-tölur í dag: 176

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband