Leita í fréttum mbl.is

Norðmenn inn í landhelgina í boði Brims hf?

Hugmyndir um að Brim hf. fari á norskan hlutabréfamarkað þarf að skoða í samhengi við aðgengi að landhelginni sem Íslendingar börðust fyrir með blóði, svita og tárum.

Það var aldrei meiningin að erlendar þjóðir kæmust bakdyramegin inn í 200 mílurnar.

Ef kvótakerfið býður upp á bakdyr þarf að loka þeim eða breyta kerfinu.

 


mbl.is ÚR vill erlendar fjárfestingar í Brimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöðug andstaða við evruna í evrulöndunum

evrvidskSíðustu ár hefur andstaðan við gjaldmiðilinn evruna verið stöðug á evrusvæðinu. Andstaðan náði hámarki á árunum eftir evrukreppuna miklu í kringum 2010 þegar þriðjungur íbúa í evrulöndunum taldi evruna vera slæma fyrir efnahaginn. Í ár eykst andstaðan um eitt prósent er 26% íbúa evrusvæðisins telja evruna slæma fyrir efnahagslífið. 

Eins og kunnugt er hefur evran og evrusamstarfið gert það að verkum að Þýskaland hefur skotist langt fram úr flestum öðrum evrulöndum hvað hagsæld varðar, en vegna styrks þýsks efnahags- og atvinnulífs hefur framleiðsla þar verið ódýrari og Þýskaland því skilað meiri viðskiptaafgangi og hagvexti en nágrannalöndin, s.s. Ítalía, Frakkland og fleiri lönd. Fyrir vikið safna mörg nágrannalanda Þýskalands skuldum og búa við meira atvinnuleysi á meðan Þjóðverjar safna eignum. Þetta er óleyst vandamál, enda telur enn um þriðjungur Frakka og Ítala evruna vera slæma. Lausnin gæti falist í sameiginlegum ríkisfjármálum - en það munu mörg evrulöndin aldrei sætta sig við - og líta má á úrsögn Bretlands sem birtingarmynd þess að íbúar í Evrópu er lítt hrifnir af auknum völdum ESB í Brussel.

Sjá nánar hér: Skýrsla um evruna

Sjá hér líka umfjöllun Kjarnans um málið - en þar er lögð áhersla á jákvæðari þætti evrusamstarfsins.

 


Bloggfærslur 3. desember 2019

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 192
  • Sl. sólarhring: 199
  • Sl. viku: 1636
  • Frá upphafi: 1120092

Annað

  • Innlit í dag: 165
  • Innlit sl. viku: 1382
  • Gestir í dag: 158
  • IP-tölur í dag: 158

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband