Leita í fréttum mbl.is

Guðmundur Ingi Guðbrandsson og yfirvofandi endalok bókunar 35

 

Eins og menn þekkja eru allar horfur á að þrýstingur á umhverfið geti aukist til muna ef bókun 35 nær fram að ganga.  Evrópusambandið þyrstir í hreina orku og leggur töuvert á sig til að koma málum þannig fyrir að hægt verði að sækja hana t.d. til Íslands, í fyllingu tímans.  Á það vitaskuld jafnt við um vatnsorku, jarðvarma og vindorku. 

Nú gefur Guðmundur Ingi Guðbrandsson kost á sér til varaformanns VG, undir gunnfána umhverfisverndar.  Hann brennur fyrir henni í hjálögðu viðtali. 

Skýrara getur þetta varla orðið hjá Guðmundi.  Til hamingju með það!  Að berjast fyrir umhverfisvernd og að samþykkja bókun 35 er nefnilega eins og að þurrka sér í sturtu.  

 

https://www.visir.is/k/882537fc-ce67-48c5-a40f-c06d98aa8f91-1727118504587/gudmundur-ingi-gefur-ekki-kost-a-ser


Saga, skreytt stolnum fjöðrum og misskilningi

Undanfarin ár, og áratugi, hefur saga EES-samningsins verið skreytt stolnum fjöðrum af hálfu stjórnvalda og svokallaðra Evrópusinna.  Allt sem mönnum þykir gott hafa gerst er reynt að tengja EES og samtímis er reynt að draga upp þá mynd að á Íslandi hæfust menn við í torfkofum með berkla ef EES væri ekki til bjargar.  Raunveruleikinn er auðvitað allt annar.  Ekki er ástæða til að ætla að Ísland væri verr á vegi statt en það er nú, ef ekki væri EES.  Ljóst er á hinn bóginn að mikill uppsafnaður kostnaður hefur orðið af þessu samstarfi.  Sá peningur hefði kannski nýst betur í annað. 

Öll er þessi helgimynd af EES-samningnum hin spaugilegasta.  Þá fyrst skellir maður upp úr þegar því er haldið fram að hrynji EES, þá hrynur Evrópusambandið, eins og lesa má úr orðum utanríkisráðherra, og Hjörtur J. Guðmundsson greinir frá:

https://www.fullveldi.is/?p=45276


Bloggfærslur 24. september 2024

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.9.): 3
  • Sl. sólarhring: 115
  • Sl. viku: 1526
  • Frá upphafi: 1147063

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1355
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband