Leita í fréttum mbl.is

Nú reynir á samstöðuna innan ESB

The Guardian segir frá því í morgun (28. janúar 2025) að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sé nú á leið til Berlínar, Parísar og Brussel til að leita eftir samstöðu um viðbrögð við áhuga Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, á að komast yfir Grænland.

Í yfirlýsingu frá henni sem birt var á dönsku sagði: „Danmörk er lítið land með sterka bandamenn. Hún er hluti af sterkri evrópskri samfélagsheild þar sem við getum sameiginlega mætt þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. … Með stríð á meginlandinu og breytingum á alþjóðlegum veruleika er ... samstaða lykilatriði

Í heimsókninni í Berlín sagði hún m.a.: "Við þurfum sterkari og ákveðnari Evrópu sem stendur sjálfstæðari, fær um að verja og efla evrópska hagsmuni. Það er undir Evrópu komið að skilgreina framtíð álfunnar okkar."

Á sama tíma hefur Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, lýst yfir stuðningi við Danmörku en dregið úr vægi viðræðna um Grænland. Hún sagði: "Við erum ekki í viðræðum um Grænland" og bætti við að ekki ætti að velta sér upp úr getgátum um hvað ef, þar sem það væri ekki staðan núna. Nú reynir á leiðtoga ESB landanna að sýna að þeir geti náð samstöðu sem skilar árangri.

Greinilegt er að "Plan B" hefur ekki verið útbúið í Brussel, þ.e. viðbrögð við því að nýr forseti Bandaríkjanna meinti það sem hann segir.

 

https://www.theguardian.com/world/live/2025/jan/28/denmark-greenland-mette-frederiksen-donald-trump-europe-latest-live-news?utm_source=chatgpt.com


Bloggfærslur 28. janúar 2025

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 7
  • Sl. sólarhring: 277
  • Sl. viku: 2305
  • Frá upphafi: 1189370

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 2106
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband