Fimmtudagur, 9. janúar 2025
Framsækið verðmætamat hinna réttsýnu
Nú, þegar fokið er í flest skjól þeirra sem hafa hingað til viljað ganga í Evrópusambandið og taka aðra Íslendinga með í þá ferð, er gripið í síðasta hálmstráið: Verðmætamatið.
Verðmætamat Evrópusambandsins er svo ári líkt verðmætamati Íslendinga, að það liggur beint við að þessi gömlu nýlenduveldi eigi að stjórna Íslandi. Þó matið væri svipað, er það vitaskuld út í bláinn, en kannski er það ekki svipað. Snorri Másson skrifar um það beittan pistil á Fasbókina.
Að honum lesnum verður eflaust einhverjum orðfall. Evrópa er meiri ormagryfja en margur hugði.
Þetta segir Snorri:
Stefnt er að því af hálfu sitjandi ríkisstjórnar að koma Íslandi inn í Evrópusambandið og vinnan er hafin. Þegar svona mikið stendur til duga engin vettlingatök í áróðursstarfseminni.
Samfylkingarmaðurinn Guðmundur Andri Thorsson sparar ekki stóru orðin: Kominn er tími til að við Íslendingar horfumst í augu við að við deilum gildum og verðmætamati með Evrópusambandsþjóðunum, og nú gætum við hreinlega þurft að fá skjól frá þeim þjóðum gagnvart lífsrýmishyggju Trumps, sem verður æ brjálæðislegri í ofsafengnum þjóðernisofstopa hans, og minnir ískyggilega á tal þýskra nasista kringum sína valdatöku á fjórða áratug síðustu aldar.
Samkvæmt þessu grefur nasisminn um sig vestanhafs og þá bersýnilega ekki annað í stöðunni fyrir okkur en að ganga ESB á hönd. Einkum í ljósi hinna sameiginlegu gilda og verðmætamats.
Ljóst er að fram undan er harðvítug deila um áhrif ESB á okkur Íslendinga á öllum sviðum þjóðlífsins. Til einföldunar skulum við í þessari grein velta fyrir okkur einum anga málsins, sem er skoðana- og málfrelsi borgara. Hvaða sess hafa þau grunngildi í verðmætamati sambandsins?
- Lýðræðisríki til fyrirmyndar -
Þjóðverjar stórhertu löggjöf í kringum tjáningu á netinu árið 2017, ekki í baráttu við hefðbundin lögbrot eins og barnaníð eða skipulagða glæpastarfsemi, heldur í baráttunni við hina nýju óvini ríkisins, hatursorðræðu og upplýsingaóreiðu á meðal almennra borgara.
Með þessu leyfðist stjórnvöldum til dæmis að skylda samfélagsmiðlafyrirtæki til að eyða út færslum innan sólarhrings, ella ættu þau meiri háttar sektir yfir höfði sér. Kælingaráhrifin eru þess eðlis að þessi sömu fyrirtæki fylgjast sérstaklega vel með orðræðu sem stjórnvöldum mislíkar og spara sér í sumum tilvikum sporin með því að banna hana fyrir fram.
Þessi framsækna löggjöf færði þýsku ríkisvaldi svo hentugar valdheimildir að önnur ríki víða um heim tóku sér hana til fyrirmyndar og settu sér svipuð lög.
Hið vestræna frjálslynda lýðræðisríki veitti þar innblástur stjórnvöldum í Rússlandi, Venesúela, Víetnam og Hvíta-Rússlandi, sem vísuðu mörg beint til hinnar þýsku löggjafar þegar þau hertu sjálf tökin á umræðunni heima fyrir.
- Varar stjórnmálamann við að veita viðtal -
Evrópusambandið sjálft fylgdist hrifið með. Árið 2022 voru sjónarmið Þjóðverja tekin upp og innleidd í pakka sem mætti kalla evrópska stjórnarskrá fyrir netheima, Digital Services Act. Þeirri löggjöf hefur verið lýst sem leiðarvísi fyrir ritskoðun af þýska blaðinu Die Welt.
Einn ábyrgðarmanna þeirrar löggjafar ESB var hinn franski Thierry Breton, sem þar til í fyrra var framkvæmdastjóri innri markaðar hjá sambandinu.
Breton er enn ötull talsmaður regluverksins og hefur farið mikinn gegn breytingum Elon Musk á ritskoðunarkerfum á samfélagsmiðlinum X. Nú síðast sendi kommissarinn fyrrverandi út sérstakt tíst til Alice Weidel, formanns hins þýska Alternative für Deutschland, þar sem hann varaði hana við að veita Musk viðtal á miðlinum, í ljósi meintra brota Musk á samfélagsmiðlareglum ESB.
Oft er það afgreitt sem ofsóknaræði þegar menn lýsa áhyggjum af ritskoðunartilhneigingum Evrópusambandsins. En nú er svo komið að þær birtast okkur bæði í opinberum yfirlýsingum á
borð við þessar, en einnig í formlegri löggjöf.
- Umræða um kynja- og útlendingamál leyfð -
Það þarf ekki að hafa undirritaðan fyrir þessu. Í merkri nýlegri yfirlýsingu gagnrýnir Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook og Instagram, stjórnvöld víða um heim fyrir að þrýsta á bandaríska samfélagsmiðla að ritskoða sífellt meira efni. Evrópa hefur innleitt sífellt fleiri lög, þar sem ritskoðun er lögfest með kerfisbundnum hætti, segir forstjórinn.
Zuckerberg staðfestir líka það sem þó hefur lengi legið fyrir, að á undanförnum fjórum árum hafi bandarísk yfirvöld, undir forystu demókrata, þrýst á samfélagsmiðla að ritskoða ákveðið efni. Nú stendur til að aflétta þeirri ritskoðun á miðlum Meta.
Athyglisvert er að þar nefnir forstjórinn sérstaklega að ritskoðun hafi verið mikil í málaflokkum á borð við innflytjendamál og kynjamál.
Að sönnu virðist forstjóri Meta með yfirlýsingum sínum öðrum þræði vera að koma sér í mjúkinn hjá nýjum forseta repúblikana. Við heima getum þó notað tækifærið til að taka alvarlega þær opinberanir sem koma fram, óháð því við hvaða kringumstæður þær fljóta upp á yfirborðið.
- Woke gervigreind -
Annar bandarískur tæknifrömuður og stjórnarmaður hjá Meta, Marc Andreessen, hefur svipt hulunni af því sem hann segir gerræðislegar fyrirætlanir fráfarandi stjórnvalda demókrata í tengslum við málfrelsið. Segir hann að ritskoðunarstefnan á samfélagsmiðlum hafi ekki verið neitt miðað við það sem stóð til að gera með hin nýju gervigreindarlíkön, sem hafi átt að gera að stökkbreyttri ritskoðunarvél.
Andreessen bætir við: Allt var það 100% með ráðum gert. Þannig færðu hluti eins og þeldökkan George Washington hjá Google.
Þar er vísað til þess þegar Gemini-gervigreindarlíkan Google vakti heimsathygli fyrir sögufalsanir í nafni fjölbreytileikans.
Mögulega hefur Þórunn Sveinbjarnardóttir, Samfylkingarkona og nýr forseti Alþingis, verið sátt með hina nýju söguskoðun, en hún skrifaði nýlega: Mynd gervigreindar af heiminum er skelfileg. Allir hvítir og eiginlega bara karlar. Valdastrúktúrinn!
Hugmyndafræðilegir straumar í þessum dúr munu í öllu falli hafa tryggt að starfsmenn Google pössuðu vel upp á allar stillingar, jafnvel þótt það kostaði þá trúverðugleikann.
- Ísland til framtíðar -
Ef menn leggja þetta út á versta veg, teiknast upp ákveðin martraðarsýn þar sem ofurgreindar vélar eru látnar, að skipan stjórnvalda, ljúga blákalt að grunlausum almenningi, hvort sem það er með gervigreind eða á samfélagsmiðlum eða hvoru tveggja í senn. Við þær aðstæður er aukaatriði hve inngildandi hin yfirlýsta hugmyndafræði er.
Ef Ísland gengur í Evrópusambandið verður tjáningarregluverk þess að reglu hér í meira mæli en er nú þegar. Forvitnilegt væri að fá það fram frá forsætisráðherra hvort henni hugnist þeir ritskoðunartilburðir sem liggja nú fyrir í opinberum ummælum.
Í umræðu um þau mál sem Zuckerberg nefndi, útlendingapólitík og kynjapólitík, gætir þeirrar tilhneigingar að stjórnmálamenn sýni því ekki sérstakan áhuga að kjósendur séu óánægðir með þessi mál.
Öllu heldur hafa sumir stjórnmálamenn fyrst og fremst áhyggjur af möguleikum kjósenda til að tjá þessa óánægju. Slíkur hugsunarháttur skal aldrei verða ofan á hér á Íslandi.
Úr því að þegar hefur verið ákveðið að kljúfa þjóðina í tvennt með og á móti ESB, er alveg eins gott að við notum tækifærið og efnum til umræðu um okkar grunngildi og verðmætamat, eins og Guðmundur Andri orðaði það.
Það er þó spurning í þeirri umræðu hver mun bera mesta ábyrgð á skautuninni. Manni verður í sambandi við varnaðarorð Samfylkingarmannsins hugsað til hins þekkta lögmáls Godwins: Eftir því sem umræða á netinu dregst á langinn, nálgast líkurnar á að einhver sé borinn saman við nasista eða Hitler 100%.
Hér þurfti umræðan ekki einu sinni að dragast á langinn. Það er vika liðin af nýju ári. Erum við ekki á móti ofstopa?
Bloggfærslur 9. janúar 2025
Nýjustu færslur
- Framsækið verðmætamat hinna réttsýnu
- Að hlusta á þjóðina
- Ósvarað
- Aðalfundur
- Rykbindiefni
- Leiðindasuð
- Breyttur skilningur Samfylkingar á ESB-viðræðum
- Asni klyfjaður gulli
- Gullmolar á nýju ári
- Nýtt ár
- Ormagryfjan djúpa
- Hve stór er Evrópa?
- Passaðu þrýstinginn maður!
- Orkumálaráðherra Svíþjóðar er bláreið við Þjóðverja
- Ekki af baki dottnir
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.1.): 10
- Sl. sólarhring: 319
- Sl. viku: 1983
- Frá upphafi: 1182747
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 1727
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar