Leita í fréttum mbl.is

Er ţetta nokkuđ svo flókiđ?

Nú keppast margir viđ ađ skrifa umsagnir til Alţingis um bókun 35.  Alţingi vill fá ţćr fyrir nćstu mánađamót á umsagnir@althingi.is

Feitlagin umsögn mun koma frá Heimssýn, en ţar til ađ ţví kemur sakar ekki ađ rifja upp síđustu umsögn Heimssýnar um bókun 35.  Hún eldist vel og er hér:

 

14.05.2023

Til Alţingis

Umsögn um frumvarp til laga um EES, nr. 890 (bókun 35)

Heiđrađa Alţingi


Löggjafarvald á Íslandi er samkvćmt stjórnarskrá lýđveldisins í höndum Alţingis og forseta
sem eru kjörnir af fólkinu í landinu. Engu ađ síđur hefur sá háttur veriđ á um nokkurt skeiđ
ađ lög sem samin hafa veriđ af erlendu ríkjasambandi hafa veriđ gerđ ađ lögum á Íslandi, ađ
heita má umrćđulaust. Er ţá iđulega horft framhjá ţví hvort umrćdd lög henti á Íslandi eđa
hvađa kostnađ ţau hafi í för međ sér. Ţrátt fyrir ađ íslenska ríkiđ hafi samkvćmt samningi
fulla heimild til ađ hafna ţví ađ setja lög međ ţessum hćtti virđist svo vera ađ ađilar innan stjórnkerfis landsins og sumir stjórnmálamenn telji ađ slík höfnun kalli á svo harđar ađgerđir af hálfu hins erlenda ríkjasambands ađ heimildin til ađ hafna löggjöf sé ekki til stađar í raun. Ţetta er einkennileg stađa og vandséđ er ađ ţetta fyrirkomulag standist stjórnarskrá. Vinnubrögđin sem hér er lýst eru hćttuleg hagsmunum Íslendinga og ganga gegn
hugmyndum ţorra fólks um lýđrćđi.

Frá ţví fyrrgreint fyrirkomulag tók gildi hefur hiđ erlenda ríkjasamband teygt arma sína inn á sífellt fleiri sviđ samfélagsins međ ýmsum hćtti. Má ţar nefna löggjöf um orkumál, dóm um
innflutning á ófrosnu kjöti og hćgfara eyđing á hinu tveggja stođa kerfi EFTA og
Evrópusambandsins. Svo mćtti áfram telja. Allt ţađ veldur ţví ađ núverandi fyrirkomulag
fjarlćgist enn meira ramma stjórnarskrárinnar.

Nú liggur fyrir frumvarp sem hnykkir á forgangi laga sem eiga uppruna sinn í lögum frá
Evrópusambandinu og fjallar einnig um stjórnvaldstilskipanir af sama tagi. Hiđ síđarnefnda
er undarlegt og til ţess falliđ ađ auka flćkjustig stjórnkerfisins. Hér er á ferđinni skref í átt ađ tilfćrslu valds frá lýđrćđislega kjörnum stjórnvöldum á Íslandi til Evrópusamandsins sem erfitt er viđ ađ una.

Heimssýn telur ađ best sé ađ leggja fyrrgreinda bókun 35 til hliđar og hefjast ţegar í stađ
handa viđ ađ koma samskiptum Íslands viđ ţćr ţjóđir sem eftir eru í Evrópusambandinu í
ţann farveg ađ hagsmunir Íslendinga séu sem best tryggđir, án ţess ađ fullveldi landsins sé
skert eđa fargađ.

Fyrir hönd Heimssýnar

Haraldur Ólafsson, formađur


Bloggfćrslur 21. febrúar 2025

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Feb. 2025
S M Ţ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.2.): 39
  • Sl. sólarhring: 282
  • Sl. viku: 1959
  • Frá upphafi: 1198562

Annađ

  • Innlit í dag: 37
  • Innlit sl. viku: 1777
  • Gestir í dag: 36
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband