Leita í fréttum mbl.is

Skáldleg ádrepa

Það er alvörumál þegar stjórnmálamenn láta eins og stjórnarskráin komi þeim lítið við, en sá hefur verið tónninn í þingmönnum sem vilja að óskiljanlegum ástæðum knýja bókun 35 til samþykktar.  Staðreyndin er sú að bókunin var ekki samþykkt á sínum tíma vegna þess að EES-samningurinn var þá þegar á mörkum þess sem hægt var að bjóða stjórnarskránni upp á og bókun 35 hefði tvímælalaust komið þeim samningi á rautt.  Reyndar má með góðum rökum segja að hann sé nú þegar kominn þangað. 

Arnar Þór Jónsson hefur verið óþreytandi við að minna Íslendinga að ýmis grundvallaratriði í samfélagi, lögum og stjórnskipan.  Það eru atriði sem skipta máli.   Arnar Þór skrifar hvassa ádrepu sem hér er tengt við.  Lokaorð hennar eru þessi:

Lokapunkti er náð þegar valdhafar eru orðnir tilbúnir til að virða stjórnarskrána að vettugi ef það þjónar þeirra eigin hagsmunum, þegar lagatækni er notuð til að réttlæta lögleysu, þegar meginreglur laga eru orðnar að yfirborðskenndu skrauti og þegar æðstu ráðamenn starfa utan við ramma stjórnarskrár og laga. Þetta sjáum við nú gerast þegar Alþingi undirbýr framsal á ríkisvaldi til ESB með frumvarpi um bókun 35 og í því hvernig ráðherrar í ríkisstjórn brjóta daglega gegn hlutleysisstefnu Íslands með því að hella olíu á ófriðarbál í stað þess að tala fyrir friði. Þá hefur hræsni og vanþekking leyst ábyrgð og þekkingu af hólmi.

Það gustar þegar Arnar Þór tekur til máls, og þá leggja menn við hlustir. 

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2312614/


Bloggfærslur 29. mars 2025

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.9.): 19
  • Sl. sólarhring: 253
  • Sl. viku: 2006
  • Frá upphafi: 1256235

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 1825
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband