Leita í fréttum mbl.is

Hitt stóra málið

Ótal rök lúta að því að best sé að Ísland haldi sjálfstæði sínu, þ.e. að valdhafar sæki umboð sitt til fólksins í landinu, en ekki einhverra annarra sem hafa aðra hagsmuni. 

Rifjað var upp í gær að tvennt hefur breyst nýverið í alþjóðamálum.  Hvort tveggja leggur blýþung lóð á vogarskálar fullveldis.  Annað er yfirvofandi hervæðing Evrópusambandins með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.  Hitt er tollastríðið. 

Bandaríkin leggja háa tolla á vörur frá Evrópusambandinu. Tollar á vörur frá Íslandi eru mun lægri. Væri Ísland í Evrópusambandinu hefði ákvörðun Bandaríkjastjórnar um tollahækkun verið mjög þungt högg fyrir íslenskan efnahag. Þetta verður að hafa í huga í því sambandi:

1. Verslun við N-Ameríku er mun mikilvægari fyrir Íslendinga, en nánast alla 400 þúsund manna hreppa í Evrópusambandinu. 

2. Evrópusambandið mun aldrei láta viðskiptahagsmuni Íslendinga stjórna ferðinni í samningum við Bandaríkin. 

3. Hlaupi snurða á þráð viðskipta við Bandaríkin, eða önnur ríki, getur ríkisstjórn Íslands gengið rakleitt í að leysa þann hnút.  Það getur hún ekki ef Ísland er í Evrópusambandinu.  

 

Íslendingar verða að stjórna eigin utanríkisverslun.  Það er ekki hægt séu menn í Evrópusambandinu, þá er það Evrópusambandið sem stjórnar. 

 


Bloggfærslur 30. júní 2025

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 143
  • Sl. sólarhring: 203
  • Sl. viku: 883
  • Frá upphafi: 1232654

Annað

  • Innlit í dag: 130
  • Innlit sl. viku: 765
  • Gestir í dag: 121
  • IP-tölur í dag: 116

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband