Leita í fréttum mbl.is

Stjórnarskráin forsenda frekari stækkunar ESB

c_documents_and_settings_hjortur_desktop_euconstitutionAngela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði það söguleg mistök ef aðildarríkjum Evrópusambandsins tekst ekki að semja um stjórnarskrá fyrir sambandið og fá hana samþykkta. Sagði hún sambandið í raun ekki starfhæft fyrr en stjórnarskráin hafi tekið gildi. Þjóðverjar tóku við forsætinu innan Evrópusambandsins um áramótin og gegna því næsta hálfa árið. Þýsk stjórnvöld hafa lagt á það megináherslu að stuðla að því að stjórnarskráin verði samþykkt fyrir kosningarnar til Evrópusambandsþingsins vorið 2009.

Sem kunnugt er höfnuðu Frakkar og Hollendingar stjórnarskránni í þjóðaratkvæðagreiðslum 2005 og síðan hefur hún verið í algeru uppnámi. Merkel sagði nauðsynlegt að halda málinu til streitu jafnvel þó stjórnarskránni hefði verið hafnað "í einhverjum aðildarríkjum Evrópusambandsins" og bætti við að hún væri sjálf ekki hlynnt því að fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur færu fram um málið. Hermt er að í Bryssel sé unnið að því að skoða hvaða málsgreinar þurfi að fella burt úr stjórnarskrárdrögunum til að þau fáist samþykkt - helst án þjóðaratkvæðagreiðslna í aðildarríkjunum.

Merkel sagði ennfremur að án nýrrar stjórnarskrár væri frekari stækkun Evrópusambandsins útilokuð og stjórnskipulag sambandsins í ólestri. Þau ummæli eru í samræmi við orð José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, frá því fyrir jól þar sem hann sagði að gera þyrfti breytingar á stofnunum sambandsins áður en fleiri ríki gætu bæst í hópinn. M.ö.o. orðum að fá stjórnarskrána samþykkta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 493
  • Sl. viku: 2081
  • Frá upphafi: 1219777

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 1886
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband